Fréttablaðið - 28.08.2018, Blaðsíða 30
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Elmar Hallgríms Hallgrímsson elmar@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Valdimar Birgisson valdimar@frettabladid.is
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ólafur H.
Hákonarson olafurh@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI
512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Vinsælir viðburðir
framundan
Miðakaup á www.midi.is
Sóli Hólm - Aukasýning
Hlégarði 30. ágúst
Valdimar - Útgáfutónleikar
Háskólabíó 22. september
Sycamore Tree
Hard Rock 29. september
Hjarta Hafnarfjarðar
- Útisvæði
Bæjarbíó 31. ágúst og 1. september
Uppistand Ismo Leikola, Words Apart, er á ensku þar sem hann leikur sér að enska tungumálinu og skoðar merkingu
þess með augum aðkomumannsins.
Klippur hans á Youtube sýna færni
hans í enskri tungu en eftir að hann
kom fram í þætti Conans O’Brian
fór frægðarsól hans að rísa.
Hann er fyrsti Finninn sem hefur
komið fram í þættinum og hefur
myndbandið af uppstandinu fengið
um 63 milljón áhorf á Facebook.
Ismo kemur til landsins í dag
frá Edinborg og fer á morgun til
Bandaríkjanna þar sem hann býr.
Þetta er í annað eða þriðja sinn sem
hann kemur til landsins. Hann er
nefnilega ekki alveg viss. „Þetta er
síðasti dagurinn í Edinborg og ég
hlakka mikið til að koma til Íslands
þó þetta verði stutt stopp. Ég kom
í fyrra og ég held að ég hafi komið
einu sinni áður. Þá minnir mig að
ég hafi skemmt á einhverjum litlum
klúbbi,“ segir hann hugsi.
„Ísland er svo magnað land og
svo ótrúlega fallegt. Það er verst að
ég get ekki stoppað lengur. Ég næ
bara einum degi en ég vonast til að
sjá sem mest á sem stystum tíma.“
Þeir sem hafa fylgst með Ismo
vita að hann gerir grín að enskri
tungu. Hann segir að það sé enn
meginuppistaðan í sinni sýningu en
hann sé einnig með nýtt efni í poka
horninu. „Mestmegnis er þetta nýtt
efni. Þetta er lengri sýning núna en
síðast. Þá var ég með Ara Eldjárn og
við vorum með 45 mínútna uppi
stand hvor. Núna er þetta lengra.
En þetta er byggt í grunninn á því að
gera grín að enskri tungu. Þetta er
svo skrýtið tungumál og ég er alltaf
að komast að einhverju nýju.“
Ismo hefur verið í Edinborg und
anfarinn mánuð og komið fram og
fylgst með öðrum uppistöndurum
á Fringe Festival. Hann hefur séð
nokkra Íslendinga koma þar fram
og segir þá vera mjög góða. Ari Eld
járn sé þó enn sinn maður.
„Ég hef séð Ara mörgum sinnum
koma fram og hann kom til Finn
lands eitt sinn fyrir mörgum árum.
Síðan var ég með honum í Mel
bourne fyrir skömmu, af einskærri
tilviljun en hann er frábær. Hérna í
Edinborg voru nokkrir Íslendingar
sem ég fylgdist aðeins með og tók
eftir.“ Sýning Ismo hefst klukkan
20 í Tjarnarbíói.
benediktboas@frettabladid.is
Gerir mest grín
að enskri tungu
Fyndnasti maður jarðarinnar árið 2014, Finninn Ismo Leikola, verð-
ur með uppistand í Tjarnarbíói í kvöld. Hann stoppar stutt á Íslandi
nú en fylgist vel með Ara Eldjárn og íslenskum uppistöndurum.
Finnski uppistandarinn Ismo Leikola troðfyllti Tjarnarbíó tvisvar í fyrra og er nú mættur aftur. NORDIcPhOTOS/GETTy
Ismo LeIkoLa
Fæddur 22. janúar 1979
n Kom fyrst fram árið 2002.
n Sló í gegn á Just For Laughs
hátíðinni í Montreal og Fringe
Festival í Edinborg.
n Hann kom fyrst fram í Banda-
ríkjunum árið 2014 og vann
titilinn fyndnasti maður
jarðarinnar.
n Hann býr núna í Los Angeles
og kemur reglulega fram í
klúbbnum Laugh Factory.
ÍsLand er svo
maGnað Land oG svo
ótrúLeGa faLLeGt. Það er
verst að éG Get ekkI stopp-
að LenGur.
2 8 . á g ú s t 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D A g U R22 l í f I Ð ∙ f R É t t A B l A Ð I Ð
2
8
-0
8
-2
0
1
8
0
5
:1
2
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
A
B
-1
C
C
8
2
0
A
B
-1
B
8
C
2
0
A
B
-1
A
5
0
2
0
A
B
-1
9
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
3
2
s
_
2
7
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K