Fréttablaðið - 28.08.2018, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 28.08.2018, Blaðsíða 14
Fólk er kynningarblað sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveg@frettabladid.is s. 512 5351 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is, s. 512 5368 | Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 512 5347 | Sigríður Inga Sigurðar- dóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 512 5442, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429, Unnur byrjaði í nýliðaþjálfun hjá Flugbjörgunarsveitinni árið 2012. „Við erum hópur sjálfboðaliða sem sinnum útköllum, leit og björgun. En félagsskapurinn er líka mikilvægur enda erum við hópur fólks með svipuð áhugamál sem snúast um að stunda útivist og fara út fyrir þægindahringinn,“ lýsir Unnur sem er leiðbeinandi í skyndihjálp og hluti af fallhlífahópi sveitar- innar. Hefur hún alltaf leitað út fyrir þægindahringinn? „Nei,“ svarar hún hlæjandi. „Það var ekki fyrr en ég fór að nálgast þrítugt að ég fór að vilja ögra sjálfri mér.“ Unnur kynntist fallhlífastökki í Bandaríkjunum og þekkti því vel til áður en hún fór að stökkva með Flugbjörgunarsveitinni. En hvað er svona heillandi við þetta sport? „Allir sem hafa prufað fallhlífa- stökk segja frá því hvað þeim líður vel eftir á enda er frjálst fall mögnuð upplifun. Líklega er það adrenalínflæðið sem heillar. Eftir því sem maður nær meiri færni getur maður gert skemmtilegri hluti í frjálsu falli og undir fallhlíf,“ segir Unnur sem nýlega náði sér í leiðbeinendaréttindi í fallhlífa- stökki. Flesta óar við tilhugsuninni um að kasta sér úr flugvél í mikilli hæð. Er hún ekkert smeyk við að stökkva? „Það var gamall fallhlífastökkv- ari sem eitt sinn sagði mér að hætta aldrei að vera hrædd, því svo lengi sem maður hefur áhyggjur er maður alltaf með öryggisatriðin í lagi,“ svarar Unnur og viðurkennir að hún fái alltaf smá fiðring fyrir hvert stökk. „Enda er sú tilfinning drifkraftur fyrir því að hoppa út úr flugvél í 13.000 fetum.“ Finnur fyrir í öllum kroppn- um Unnur reri kajak fyrst þegar hún var í bakpokaferðalagi á Nýja-Sjá- landi. „Ég heillaðist alveg en hins vegar liðu fjögur ár þangað til ég fór aftur og þá í félagsróður með Kayakklúbbnum á Geldinga- nesi. Þá fann ég mig heima. Þetta hentar minni líkamsbyggingu og mér líður vel að vera á sjónum,“ segir Unnur. Ekki skemmir fyrir að félagsskapurinn er mjög góður. „Ég var hvött áfram af klúbbfélögum sem varð til þess að ég keypti mér bát og fór að stunda sportið af kappi.“ Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is Unnur Eir kastar sér mjög reglulega út úr flugvél.Unnur sigraði í öllum þeim keppnum sem hún tók þátt í í fyrra og var útnefnd kajakkona ársins. Kayakklúbburinn er með aðstöðu við Geldinganes en hægt er að stunda kajakróður víða við strendur landsins. Líklega er fátt meira róandi fyrir sálina en að renna eftir spegilsléttum sjó og fylgjast með fögru sólsetrinu. Markaðurinn fylgir Fréttablaðinu á miðvikudögum » Þú getur einnig nálgast Markaðinn í Fréttablaðs appinu Vettvangur viðskiptafrétta Unnur segir kajakróður frábæra útivist og mjög góða hreyfingu. „Sumir nota þetta sem sína líkams- rækt,“ segir hún en bendir á að hægt sé að stunda kajakróður á marga mismunandi vegu. „Sumir kjósa að róa á lygnum sjó við örugga höfn. Aðrir leitast eftir því að fara í öldur í misjöfnu veðri. Þannig ögrar maður sjálfum sér og finnur líka fyrir í öllum kroppnum. Það eru eigin- lega langskemmtilegustu róðrarnir þar sem maður þarf að berjast við veðuröflin og sjólagið.“ Unnur hefur tekið kajaksportið með trompi en hún var valin kajakkona ársins í fyrra. „Það gaf mér mikið,“ segir hún hlæjandi en ástæða nafnbótarinnar var sú að hún sigraði í öllum þeim keppnum sem hún tók þátt í, í kvennaflokki, en keppni í kajakróðri gengur út á hraða. Paradís kajakræðara „Annar partur af kajakmennskunni eru ferðalög og þau eru dásamleg,“ segir Unnur. Hún segir hægt að fara hvert sem er en mikilvægt sé að hafa góða þekkingu á sjávarföllum, veðurfræði og staðháttum. „Kayak- klúbburinn hefur skipulagt þó nokkuð margar ferðir. Þá er farið með viðlegubúnað í kajökunum á einhvern afvikinn stað, til dæmis út í eyju þar sem gist er um nótt og róið áfram daginn eftir. Þetta eru ferlega skemmtilegar ferðir,“ segir Unnur. Hún hefur bæði farið í ferðir út frá Geldinganesi og í eyj- arnar á sundinu en einnig á Breiða- fjörð. „Breiðafjörðurinn er paradís fyrir kajakferðamennsku. En það þarf að fara varlega og þekkja til því það getur verið varasamt að róa þar vegna strauma og sjávarfalla.“ Mælir með námskeiði Hvað eiga þeir að gera sem langar að prófa kajakróður? „Ég mæli með því að fólk skrái sig fyrst á námskeið því lágmarks- þekking er alger grundvöllur fyrir því að fara á sjó,“ segir Unnur og bendir á Kajakskólann og Arctic seakayaks. „Eftir að fólk hefur fengið grundvallarþekkingu ætti það bara að mæta í félagsróður með Kayakklúbbnum. Þar er ávallt tekið vel á móti nýliðum og mjög færir ræðarar gæta þeirra sem eru að mæta í fyrsta sinn,“ segir Unnur. Hún bendir á að Kayakklúbburinn standi fyrir einum opnum félags- róðri í hverri viku, allt árið um kring. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . ÁG Ú S T 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U R 2 8 -0 8 -2 0 1 8 0 5 :1 2 F B 0 3 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 A B -2 6 A 8 2 0 A B -2 5 6 C 2 0 A B -2 4 3 0 2 0 A B -2 2 F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 3 2 s _ 2 7 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.