Fréttablaðið - 28.08.2018, Blaðsíða 22
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Hulda Sigríður Ólafsdóttir
Hrafnistu við Brúnaveg,
áður Básenda 1, Reykjavík,
lést þriðjudaginn 21. ágúst 2018.
Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 29. ágúst klukkan 13.00.
Hallgrímur Jónasson Guðríður Kristófersdóttir
Guðrún Jónasdóttir Eiríkur Páll Eiríksson
Helga Jónasdóttir
Elísabet Jónasdóttir
Ólafur Jónasson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Arnfinnur Friðriksson
ökukennari,
lést á hjartadeild Landspítalans
laugardaginn 18. ágúst. Útförin fer
fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum,
þriðjudaginn 4. september kl. 14. Blóm, kransar og
samúðarkort vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Hjartaheill.
Steinunn Pálsdóttir
Sólveig Þóra Arnfinnsdóttir Guðmundur Jóhann Gíslason
Friðrik Páll Arnfinnsson Ragnheiður Vala Arnardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og vinarhug
við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
Sigurðar Tómassonar
Sólheimatungu.
Rita Larsen
Helle Larsen Júlíus Árni Rafnsson
Kristín Sigríður Sigurðardóttir
og afabörn.
Okkar heittelskaða og ljúfa mamma,
sambýliskona, tengdamóðir, amma,
tengdadóttir, mágkona og vinkona,
María Jolanta Polanska
túlkur og þýðandi,
lést á heimili sínu í faðmi fjölskyldu og
ástvina þann 24. ágúst. Útförin fer fram frá
Grafarvogskirkju, fimmtudaginn 30. ágúst kl. 15.
Hafsteinn Auðunn Hafsteinsson
Maria Magdalena Steinarsdóttir Hjörleifur
Björnsson
Sandra María Steinarsdóttir Polanska Kjartan
Guðjónsson
Árna Steinunn Rögnvaldsdóttir
og aðrir aðstandendur og vinir Jolantu.
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, dóttir og amma,
Guðbjörg Bjarnadóttir
Heiðargerði,
801 Selfoss,
lést á krabbameinslækningadeild
Landspítalans miðvikudaginn 22. ágúst.
Útför hennar fer fram frá Skálholtsdómkirkju föstudaginn
31. ágúst kl. 14.00.
Ragnar Ingólfsson
Þórunn Ragnarsdóttir Óskar Örn Gunnarsson
Bryndís Ragnarsdóttir Kristján Bergur Helgason
Jónína K. Kristjánsdóttir
barnabörn.
Ástkær stjúpfaðir okkar og
móðurbróðir,
Ingi Þorbjörnsson
frá Kirkjubæ í Vestmannaeyjum,
síðast til heimilis að Safamýri 81,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir,
laugardaginn 25. ágúst sl. Sérstakar þakkir
færum við starfsfólki Eirar fyrir frábæra umönnun.
Guðmunda Kristinsdóttir
Sigríður Hanna Kristinsdóttir Hjörleifur H. Helgason
Hannes Kristinsson
Þóra Kristinsdóttir Rögnvaldur Möller
Ingibjörg Bragadóttir
Þorsteinn Árnason
Jóhannes Þór Ingvarsson Margrét Lilja Kjartansdóttir
Elskulegur sonur minn og bróðir,
Þorsteinn Kristinn
Stefánsson
Lokastíg 4, Dalvík,
lést þriðjudaginn 21. ágúst.
Jarðarförin fer fram frá Dalvíkurkirkju
þriðjudaginn 4. september kl. 13.30.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hans er bent á Neistann, styrktarfélag hjartveikra barna.
F.h. aðstandenda,
Rannveig Anna Guðmundsdóttir
V ið höfum haldið upp á 200 ára afmælið með ýmsum hætti allt árið,“ segir Örn Hrafnkelsson, sagnfræðingur á Lands-bókasafni Íslands, en
28. ágúst 1818 telst stofndagur þess.
Hann segir fyrirlestraröð vera í gangi og
nefnir líka sögusýninguna Tímanna safn
sem var sett þar upp í vor. „Ég mun labba
um sýninguna í dag klukkan 13 og segja
einhverjar skemmtisögur,“ bætir hann
við glaðlega.
Örn er sviðsstjóri varðveislu og staf-
rænnar endurgerðar á safninu. Hann sér
um að unnið sé skipulega að því að setja
efni þess á alnetið. Nefnir sem dæmi síð-
una timarit.is. „Við náum að halda utan
um alla íslenska útgáfu og setja á netið.
Aðgangurinn er frír og það er sérstakt
á heimsvísu. Erlendis ná þjóðbókasöfn
milljónasamfélaga ekki sama árangri
og þar þarf almenningur að borga fyrir
aðgang.“ Hann segir 2-3.000 manns fara
inn á timarit.is á hverjum sólarhring og
fletta um 30.000 blaðsíðum samanlagt,
að meðaltali. „Ef þessi fjöldi kæmi hér í
húsið daglega, þá gætum við ekki annað
þjónustunni,“ segir hann og nefnir, til
fróðleiks, að 80% af notkuninni séu
innanlands og 20% erlendis.
Allar íslenskar bækur, útgefnar frá
1540 til 1844, sem eru í eigu safnsins, er
búið að mynda, að sögn Arnar og nú er
verið að mynda erlendar ferðabækur.
„Við eigum hér þrjú stór söfn erlendra
ferðabóka, mjög spennandi. Öll Íslands-
kort sem hafa verið gefin út eru aðgengi-
leg á netinu og smám saman erum við að
skrá öll handrit rafrænt og mynda þau,“
upplýsir hann.
Ekki er allt upp talið því Örn bendir á
að á vefnum hljodsafn.landsbokasafn.is
sé mikið efni komið inn. „Fyrsti íslenski
geisladiskurinn var gefinn út 1986 –
Bubbi Morthens – og geisladiskar hafa
ekki endalausan líftíma. Hér er verið að
færa þá alla inn á stafrænt form og sama
er að segja um kasetturnar.“
gun@frettabladid.is
Landsbókasafnið 200 ára
Landsbókasafnið, sem í fyrstu hét Stiftsbókasafnið, er 200 ára í dag. Örn Hrafnkelsson
sagnfræðingur verður með leiðsögn um sýninguna Tímanna safn í Þjóðarbókhlöðunni.
Örn Hrafnkelsson veit sitt af hverju um sögu safnsins og ætlar að miðla því til gesta í dag. Fréttablaðið/Sigtryggur ari
Við náum að halda
utan um alla íslenska
útgáfu og setja á netið. Aðgang-
urinn er frír og það er sérstakt á
heimsvísu.
1971 Hróarskelduhátíðin er sett í fyrsta skipti.
1981 Hallgrímur Marinósson lýkur ferð sinni umhverfis
landið á tíunda degi, hann bakkaði alla leiðina.
1986 Útvarpsstöðin
Bylgjan byrjar út-
sendingar, fyrst stöðva
eftir að einkaréttur
Ríkisútvarpsins er
afnuminn.
1988 Þrjár af flug-
vélum ítalska list-
flugshópsins Frecce
Tri colori rekast saman
yfir Ramstein-flug-
stöðinni. Ein þeirra hrapar á áhorfendur og 75 láta lífið.
1996 Karl Bretaprins og Díana prinsessa skilja.
2014 Recep Tayyip Erdoğan verður forseti Tyrklands.
Merkisatburðir
2 8 . á g ú s t 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D A g U R14 t í m A m ó t ∙ F R É t t A B L A Ð I Ð
tímAmót
2
8
-0
8
-2
0
1
8
0
5
:1
2
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
A
B
-2
6
A
8
2
0
A
B
-2
5
6
C
2
0
A
B
-2
4
3
0
2
0
A
B
-2
2
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
3
2
s
_
2
7
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K