Fréttablaðið - 14.09.2018, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 1 6 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r F ö s t u d a g u r 1 4 . s e p t e M b e r 2 0 1 8
Skúli Mogensen,
forstjóri og eigandi
WOW air.
Fullviss um
að útboðið klárist
Í tölvupósti sem Skúli sendi á alla
starfsmenn WOW air eftir hádegi
í gær segir hann meðal annars að
skuldabréfaútboði félagsins miði
vel og að endamarkið sé í augsýn.
Unnið sé dag og nótt við að
ljúka útboðinu og þannig tryggja
langtíma fjármögnun félagsins.
Það sé hins vegar eðlilegt, segir
Skúli í tölvupóstinum, að það taki
tíma að ganga frá smáatriðum og
öðrum lausum endum.
3,4
milljarðar króna er
áætlað tap WOW
air á þessu ári.
Allt sem er
frábært
FRUMSÝNT Í KVÖLD
alÞingi Umræða um fjárlagafrum-
varp hófst á Alþingi í gær. Bjarni
Benediktsson fjármálaráðherra
sagði efnahagsuppbyggingu síðustu
ára hafa skilað miklum árangri.
Þorsteinn Víglundsson, varafor-
maður Viðreisnar, sagði ekki merki-
legan árangur að skila ríkissjóði
með afgangi á þessum tímapunkti
í hagsveiflunni.
Ágúst Ólafur Ágústsson, þing-
maður Samfylkingarinnar, sagði að
svigrúm til að bæta kjör hinna lægst
launuðu væri ekki nýtt.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir,
þingmaður Vinstri grænna, sagði
risavaxin skref stigin. Leggja ætti
meira til ýmissa málaflokka eins og
kallað hafi verið eftir. – sar / sjá síðu 6
Fjárlög næsta
árs rædd á þingi
Bjarni Benediktsson í ræðustól í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
bandarÍkin Spá bandarísku felli-
byljamiðstöðvarinnar (NHC) í gær
gerði ráð fyrir því að fellibylurinn
Florence gengi á land í sunnan-
verðri Norður-Karólínu klukkan
átta í morgun að staðartíma, eða á
hádegi að íslenskum tíma.
Meðalvindhraði var um 47 metrar
á sekúndu í gær og var því spáð að
hann yrði svipaður er stormurinn
gengi á land. Þrátt fyrir að stormur-
inn sé kominn niður á annað stig
telst hann enn lífshættulegur.
„Það er bara forleikurinn að
margra daga eymd,“ sagði í umfjöll-
un CNN. – þea / sjá síðu 8
Florence gengur
á land í dag
Veðurfræðingar spá miklu tjóni af
völdum Florence. NORdIcphOTOS/AFp
náttúra Jarðskjálfti af stærðinni
4,1 reið yfir 6,2 kílómetra suður af
Bláfjallaskála upp úr klukkan átta í
gærkvöldi.
Sigrún Magnea Óskarsdóttir,
náttúruvársérfræðingur hjá Veður-
stofunni, sagði að Veðurstofunni
hefði borist fjöldi símtala vegna
skjálftans en margir íbúar höfuð-
borgarsvæðisins fundu fyrir honum.
Sigrún sagðist ekki búast við
frekari skjálftum og sagði að sá sem
reið yfir í gærkvöldi hefði verið á
þekktu skjálftasvæði. Sömuleiðis
væru engin merki um gosóróa. – dfb
Jörð skalf í
Bláfjöllum
Fréttablaðið í dag
sport Olís-deild kvenna hefst um
helgina. Fréttablaðið spáir í spilin
fyrir komandi tímabil. 18
tÍMaMÓt Hilmar Ragnarsson,
fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá
Símanum, er sjötugur í dag. 18
lÍFið Plata The Vint age Cara van,
Gateways, komst á topp 100 yfir
mest seldu plötur Þýskalands.
Fyrir neðan voru Abba, Mich ael
Jackson og Guns N' Roses. 30
plús 2 sérblöð
l FÓlk l MÓðir og barn
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
skoðun Til skoð-
unar er að skattleggja
kaup á erlendum
netauglýsingum,
segir Lilja Alfreðs-
dóttir,
mennta- og
menningar-
málaráð-
herra. 12
dÓMsMál Munnlegur málflutning-
ur hófst í Guðmundar- og Geirfinns-
málum í Hæstarétti í gær. Verjendur
voru myrkir í máli um alla rannsókn
og meðferð málanna á sínum tíma.
Saksóknari sparaði heldur ekki
stóru orðin um óhóflega einangr-
unarvist sakborninga og slæma vist
í Síðumúlafangelsi. Hann fer fram á
sýknu í málinu. – aá / sjá síðu 6
Myrkir í máli
í Hæstarétti
Í hæstarétti í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Viðskipti WOW air er á lokametr-
unum með að sækja sér nægjanlegt
fjármagn svo að lágmarksstærð yfir-
standandi skuldabréfaútboðs flug-
félagsins, 50 milljónir evra, jafnvirði
um 6,5 milljarða króna, verði náð.
Stjórnendur og ráðgjafar félagsins
voru í gærkvöldi, skömmu áður en
Fréttablaðið fór í prentun, þann-
ig búnir að fá erlenda fjárfesta til að
skrá sig fyrir að lágmarki um 45 millj-
ónum evra í útboðinu, samkvæmt
heimildum blaðsins. Gert er ráð fyrir
að skuldabréfaútboðinu ljúki í dag,
föstudag, en vonir standa til að endan-
leg stærð þess verði eitthvað meiri en
sem nemur 50 milljónum evra.
Samkvæmt tveimur heimildar-
mönnum Fréttablaðsins, sem þekkja
vel til stöðu mála, þá er jafnframt
stefnt að því að Skúli Mogensen, for-
stjóri og eini hluthafi WOW air, fái inn
fjárfesti að flugfélaginu sem myndi
leggja því til nýtt hlutafé upp á tugi
milljóna evra samhliða því að skulda-
bréfaútboðið verður klárað. Ekki
liggur fyrir hversu stóran hlut hann
myndi eignast í félaginu verði þau
áform að veruleika. Eiginfjárhlutfall
WOW air var aðeins um 4,5 prósent
um mitt þetta ár og eigið fé þess um
20 milljónir Bandaríkjadala.
Á meðal þeirra sem hafa unnið að
því á síðustu dögum að fá erlenda fjár-
festa til að taka þátt í útboði WOW air
eru Fossar markaðir, sem hafa undan-
farin ár verið leiðandi í að hafa milli-
göngu um kaup erlendra sjóða í skráð-
um verðbréfum á Íslandi, en fyrir
tilstuðlan félagsins hefur bandarískur
fjárfestingarsjóður skráð sig fyrir um
10 milljónum evra í útboðinu, sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Norska verðbréfafyrirtækið Pareto,
sem hefur yfirumsjón með skulda-
bréfaútboðinu, hefur hins vegar tryggt
fjármagn frá erlendum fjárfestum fyrir
um 35 milljónir evra.
Ráðgjafar flugfélagsins, meðal ann-
ars frá verðbréfafyrirtækinu Arctica
Finance, sem hefur hjálpað WOW
air við að kynna útboðið hér á landi
Skúli nálgast
endamarkið
Fjárfestar voru í gær búnir að skrá sig fyrir um 45 milljónum evra í útboði WOW
air. Stjórnendur félagsins fullvissir um að lágmarksstærð útboðsins verði náð.
Unnið að því að fá fjárfesti sem leggur félaginu til tugir milljóna evra í hlutafé.
fyrir fjárfestum, unnu að því hörðum
höndum síðla dags í gær að fá íslenska
fjárfesta til að leggja félaginu til fjár-
magn. Þannig var leitað liðsinnis
ýmissa umsvifamikilla einkafjárfesta
og þá var rætt við forsvarsmenn líf-
eyrissjóðanna en ekki lá fyrir í gær-
kvöldi hvort þeir myndu hafa ein-
hverja aðkomu að útboðinu.
Einn af þeim möguleikum sem
stjórnendur og ráðgjafar WOW air
skoðuðu af alvöru í vikunni var að
fá stóru viðskiptabankana þrjá til
að koma að fjármögnun félagsins í
tengslum við skuldabréfaútboðið.
Þær hugmyndir fólust í sambanka-
láni, sem myndi tryggja að lágmarks-
stærð útboðsins yrði náð, en fljótlega
varð hins vegar ljóst að ekkert yrði
af þeim áformum þar sem mismikill
áhugi var fyrir því hjá bönkunum að
hafa aðkomu að slíkri lánveitingu.
Skuldabréfafjármögnun WOW air
er hugsuð sem brúarfjármögnun fram
að áformuðu hlutafjárútboði. Fjár-
festar sem taka þátt í skuldabréfaút-
boðinu fá kauprétt að hlutafé á 20
til 25 prósenta afslætti, þegar félagið
verður skráð á markað, sem nemur
helmingi af höfuðstól bréfanna en
kauprétturinn verður að fullu fram-
seljanlegur og gildir til fimm ára.
Rekstrarumhverfi WOW air
hefur versnað til muna und-
anfarið en greinendur Pareto
spá því að félagið skili tapi
upp á 3,4 milljarða króna í ár.
Samkvæmt áætlunum WOW
air er gert ráð fyrir verulegum
viðsnúningi á næstu mánuð-
um og misserum og að félagið
skili þannig hagnaði upp á um
tvo milljarða króna á næsta
ári. – hae
1
4
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
D
4
-E
A
D
0
2
0
D
4
-E
9
9
4
2
0
D
4
-E
8
5
8
2
0
D
4
-E
7
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
3
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K