Fréttablaðið - 14.09.2018, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 14.09.2018, Blaðsíða 34
Viltu birta minningargrein á frettabladid.is? Minningargreinar skal senda á timamot@frettabladid.is. Birting er endurgjaldslaus og opin öllum á frettabladid.is/timamot Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Svava Sjöfn Kristjánsdóttir Ásvegi 1, Hvanneyri, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi, 7. september 2018. Útför hennar fer fram frá Reykholtskirkju laugardaginn 15. september klukkan 14.00. Jarðsett verður í Hvanneyrarkirkjugarði. Pétur Jónsson Ómar Pétursson Íris Björg Sigmarsdóttir Kristján Ingi Pétursson Anna Sigríður Hauksdóttir Kristín Pétursdóttir Øyvind Kulseng og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, sambýliskona og systir, Þórdís Harðardóttir lést á líknardeild Landspítalans sunnudaginn 9. september. Hún verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánudaginn 17. september klukkan 13. Hörður Lúðvíksson Sigurveig Sigurðardóttir Laufey Rúnarsdóttir Hjalti Hjaltason Sigurlaug Rúnarsdóttir Stefán Karlsson barnabörn Aðalsteinn Blöndal systkini Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Kristín Hólmfríður Tryggvadóttir fv. skólastjóri, lést að Hrafnistu í Hafnarfirði 9. september sl. Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 17. september kl. 15.00. Helgi Jóhann Hauksson Heiða Hafdísardóttir Unnur Aðalbjörg Hauksdóttir Alda Margrét Hauksdóttir Grettir Sigurjónsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Haraldur Gísli Sigfússon fv. leigubifreiðastjóri, frá Stóru-Hvalsá, Álfheimum 44, Reykjavík, lést á hjartadeild Landspítalans 11. september. Útförin verður auglýst síðar. Hreinn Haraldsson Ólöf Erna Adamsdóttir Hanna Dóra Haraldsdóttir Bjarni Jón Agnarsson Sigfús Birgir Haraldsson Hanna Jóhannsdóttir barnabörn og langafabörn. Ástkær faðir okkar og bróðir, Victor Friðþjófur Guðnason Búastaðabraut 8, Vestmannaeyjum, andaðist fimmtudaginn 6. september. Jarðarförin fer fram í Landakirkju 22. september kl. 14.00. Guðni Friðþjófur Victorsson Halldór Páll Victorsson Kristinn Freyr Victorsson Tómar Ingi Victorsson Hlöðver Sigurgeir Guðnason Ólafur Óskar Guðnason Sigríður Ágústa Guðnadóttir Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Gunnar Berg Björnsson flugstjóri, verður jarðsunginn frá Neskirkju mánudaginn 17. september kl. 13.00. Sigrún Jóhannesdóttir Björn Berg Gunnarsson Tinna Þorsteinsdóttir Eyjólfur Berg Þorsteinn Berg Gunnar Berg Gunnarsson Þórhildur Baldursdóttir Gréta Gunnarsdóttir Linda og Elín Hjördís Haraldsdætur Ástkær eiginkona mín, Sjöfn Halldórsdóttir lést miðvikudaginn 5. september. Útförin fer fram miðvikudaginn 19. september kl. 14.00 frá Kotstrandarkirkju. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna, Eyvindur Erlendsson Hér er yndislegt að vera, það bara bærist ekki strá,“ segir Hilmar Ragnarsson rafmagns-verkfræðingur staddur í S k a g a f i r ð i n u m , nánar tiltekið að Mel. Þar er hann með nokkrum veiðifélögum við Sæmundará en sjálfur ekki með stöng á lofti þessa stundina. „Við skiptumst á, þetta er bara tveggja stanga á,“ útskýrir hann. Kveðst hafa verið í öðrum laxveiðitúr fyrir fáum dögum, í Svartá í Húnavatnssýslu sem leiðsögumaður með nokkrum erlendum vinum sínum. „Það var líka rosalega skemmtilegur túr og sama yndislega veðrið, besta veður sumarsins, sögðu bændur sem voru að koma af fjalli.“ Tilefni viðtalsins er sjötugsafmæli Hilmars sem er í dag. Hann biður mig samt að vera ekkert að auglýsa það. „Það eru 50 manns búnir að boða komu sína og húsnæðið er ekki nema 100 fermetr- ar,“ segir hann til skýringar. Þó hann kunni hvergi betur við sig en á bökkum veiðiáa á landsbyggðinni kveðst hann enginn sveitalubbi vera. „Ég er Reykvíkingur, fæddist við Sjafnargötuna og ólst mikið upp hjá afa og ömmu, þar var gott næði til að lesa. Þau dekruðu við mig og voru frábær en dóu alltof ung.“ Hilmar kveðst hafa varið rúmum þrjátíu árum af starfsævinni hjá Sím- anum. „Ég byrjaði þar 1974 og var til 2006, síðustu árin sem framkvæmda- stjóri talsímasviðs. Var svo heppinn að fá að taka þátt í stórstígustu framförum í fjarskiptatækninni á Íslandi, svo sem að koma á MNT-kerfinu, GSM-kerfinu og gera landið stafrænt. Síðan varð ég verkefnastjóri hjá dóttur minni, Ágústu Ernu hjúkrunarfræðingi, í fyrirtækinu Hrifum sem er með heilsueflingu innan fyrirtækja. Sjálf var hún að berjast við krabbamein og stofnaði Kraft ásamt Hildi Björk, systur sinni, og fleirum.“ Auk þeirra Ágústu Ernu og Hildar Bjarkar, kennara og viðskiptafræðings, kveðst Hilmar eiga soninn Birgi, betur þekktan sem tónlistarmanninn Bigga Hilmars, með fyrrverandi konu sinni. „Eftir að við skildum eignaðist ég dóttur- ina Veru, hún er myndlistarmaður og býr í Berlín, er vinsæl fyrirsæta þar úti. Hinar dætur mínar hafa verið fyrirsætur líka. Það er svona þegar barnsmæðurnar eru vel valdar!“ segir hann glaðlega og bætir við stoltur að svo eigi hann fjögur barna- börn. Laxveiði og önnur útivera er eftirlæti Hilmars. Hann kveðst oft hafa verið leið- sögumaður á vegum Iceland Seafood Corp oration og Limited á árum áður, þegar starfsmönnum og viðskiptavinum bæði frá Ameríku og Evrópu hafi verið boðið í lax í Norðurá og Víðidalsá. Íþróttir er eitt af því sem Hilmar hefur gaman af, þær iðkaði hann á yngri árum, fyrst og fremst handbolta. „Ég er áhuga- maður í golfi en get ekki neitt, einstaka högg gerir þó það að verkum að maður heldur áfram,“ segir hann kankvís. „Svo er tennis ein skemmtilegasta íþrótt sem ég hef stundað en mjaðmaliðirnir bönn- uðu mér að halda áfram. Tónlistin er líka ofarlega á blaði og þegar ég vil slaka á sest ég við Roland-hljómborðið. Það er margt tónlistarfólk í ættinni. Svo lengi sem frændi minn, sem er að koma inn úr dyrunum núna, tekur ekki lagið, þá er allt í lagi! (Hlátur).“ gun@frettabladid.is Það bara bærist ekki strá Hilmar Ragnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Símanum, var á bökkum skag- firskrar laxveiðiár þegar síminn hans hringdi og eftirfarandi viðtal var tekið. Hilmar með 87 cm hrygnu sem tekin var á fluguna Rauðan Frances í Straumunum, ármótum Norðurár og og Hvítár í Borgarfirði. Ég er áhugamaður í golfi en get ekki neitt, einstaka högg gerir þó það að verkum að maður heldur áfram. 1 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 F Ö s t U D A G U r18 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð tímamót 1 4 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 D 5 -0 8 7 0 2 0 D 5 -0 7 3 4 2 0 D 5 -0 5 F 8 2 0 D 5 -0 4 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 1 3 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.