Fréttablaðið - 14.09.2018, Side 16

Fréttablaðið - 14.09.2018, Side 16
Tillögur að friðlýsingum svæða í verndarflokki rammaáætlunar Umhverfisstofnun hefur hafið formlega kynningu á tillögum að friðlýsingu svæða í verndarflokki áætlunar um vernd og orkunýtingu landsvæða sbr. ályktun Alþingis, nr. 13/141, frá 14. janúar 2013. Svæðin sem nú eru lögð fram til kynningar eru: 1. Suðurland - vatnasvið Tungnaár: 24 Tungnaárlón og 25 Bjallavirkjun. 2. Suðurland - vatnasvið Jökulfalls og Hvítár í Árnessýslu: 32 Gýgjarfossvirkjun og 33 Bláfellsvirkjun. 3. Suðurland - vatnasvið Hólmsár: 20 Hólmsárvirkjun við Einhyrning, með miðlun. Kynningartími er þrír mánuðir eða til 14. desember 2018. Nánari upplýsingar á umhverfisstofnun.is. Athugasemdum skal skilað inn á vefsíðu Umhverfisstofnunar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða með bréfpósti; Umhverfisstofnun, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík. 1 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 F Ö s t U D A G U r16 s p o r t ∙ F r É t t A b L A ð i ð HAnDboLti Gangi spá Fréttablaðsins um deildina eftir mun Valur hrifsa Íslandsmeistaratitilinn af Fram sem er ríkjandi Íslands- og bikar- meistari. Valur varð deildarmeistari síðasta vor, en náði hins vegar ekki að fylgja því eftir með því að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn. 1 Valur1. sæti | 34 stig | ’17-’18  Þrátt fyrir að hafa misst nánast allt byrjunarlið sitt frá síðasta keppnistímabili mætir Ágúst Þór Jóhannsson til leiks með lið sem getur klárlega farið alla leið og orðið Íslandsmeistari. Valur tapaði fyrir Fram í úrslitum Íslandsmótsins í vor, en nú komast þær skrefi lengra. Valur hefur fengið Írisi Björk Símonardóttur í markið sem er mikill styrkur og þá mun Sandra Erlingsdóttir stjórna sóknarleiknum og hafa sér til fulltingis Lovísu Thompson sem hefur, líkt og Íris Björk og Anna Úrsúla Guðmunds- dóttir sem ætla að taka slaginn með liðinu, reynslu af því að verða Íslandsmeistari. 2 Fram2. sæti | 32 stig | ’17-’18 Síðasta keppnistímabil var gjöfult fyrir Fram sem stóð uppi sem bæði Íslands- og bikarmeistari. Það er erfitt að afskrifa lið með Steinunni Björnsdóttur, Karen Knútsdóttur, Þóreyju Rósu Stefánsdóttur og Ragnheiði Júlíusdóttur innanborðs í baráttunni um titilinn. Hins vegar missti liðið Guðrúnu Ósk Marías- dóttur sem fór yfir í Stjörnuna í sumar. Markvarslan gæti orðið hausverkur fyrir Fram, en liðið treystir á tvær ungar og efnilegar stúlkur og fékk svo til liðs við sig Erlu Rós Sigmarsdóttur frá ÍBV til þess að freista þess að fylla skarð Guðrúnar Óskar. 3 ÍBV3. sæti | 30 stig | ’17-’18 Sami staður. 30 stig í fyrra. Eyja- konur hafa þétt raðirnar svo um munar frá síðasta keppnistíma- bili. Til liðsins eru komnar Arna Sif Pálsdóttir, sem er fyrsti línumaður íslenska landsliðsins, og Sunna Jónsdóttir landsliðskona í skyttu- hlutverkið. Þessi liðsstyrkur styrkir ekki hvað síst varnarleik liðsins sem verður ógnvænlegur með þær tvær, auk Esterar Óskarsdóttur, sem valin var leikmaður ársins á lokahófi HSÍ síðastliðið vor, í miðri vörninni. Erfitt verður hins vegar að fylla það skarð sem Sandra Erlingsdóttir skilur eftir sig. 4 Haukar 4. sæti | 30 stig | ’17-’18 Sami staður. 30 stig í fyrra. Síðasta tímabil var gott fyrir Haukakonur sem náðu árangri sem var vel viðun- andi. Portúgalska skyttan Maria Ines Silva Pereira verður áfram í lykilhlut- verki hjá liðinu í sóknarleiknum, en liðið hefur fengið Ramune Pekar- skyte til þess að efla vopnabúrið í sóknarleiknum. Þarna verður mark- varslan ákveðið spurningamerki, en frammistaða Elínar Jónu Þorsteins- dóttur heillaði forsvarsmenn Vendsyssel og söðlaði hún um til Danmerkur í vor. Ástríður Glódís Gísladóttir mun verja mark Hauka í vetur, en hún er ungur og efnilegur markvörður sem ver mark U-20 ára liðs Íslands. Hún þarf að verja vel ætli Haukar að afsanna þessa spá og gera sig meira gildandi í toppbarátt- unni. Ástríður Glódís mun svo fá samkeppni frá Selmu Þóru Jóhanns- dóttur og Sögu Sif Gísladóttur. 5 Selfoss6. sæti | 9 stig | ’17-’18 Það mun að sjálfsögðu muna gríðarlega um það fyrir Selfoss að Hrafnhildur Hanna Þrastar- dóttir er orðin heil heilsu. Það mun hins vegar ekki duga til þess að liðinu takist að tryggja sér sæti í úrslitakeppni deildarinnar. Liðið mun verða í baráttu við Hauka og Stjörnuna um að verða fjórða og síðasta liðið þangað inn, en það er ekki mikill munur á þessum liðum og baráttan verður jöfn. Vörn og hraðaupphlaup þar sem Perla Ruth Albertsdóttir verður í fararbroddi gætu hins vegar breytt þessari stöðu. 6 Stjarnan5. sæti | 21 stig | ‘17-’18 Niður um eitt sæti. 21 stig í fyrra. Segja má að Stjarnan mæti til leiks með nýtt lið að þessu sinni. Miklar breytingar urðu bæði á leikmannahópnum og þjálfarateymi liðsins. Guðrún Ósk Maríasdóttir mun sjá til þess að markvarslan verði í góðum málum, Elísabet Gunnarsdóttir er reyndur og góður línumaður og Þórey Anna Ásgeirsdóttir fær stærra hlutverk í sóknarleiknum. Þá auka Laufey Ásta Guðmundsdóttir og Auður Ómarsdóttir breiddina í sóknar- leiknum. Sebastian Alexandersson og Rakel Dögg Bragadóttir halda um stjórnartaumana hjá liðinu og eru líklega ekki sammála þessari spá og ætla að gera mun betur. 7 HKNýliði Það verður hlutskipti HK að fara aftur í umspil um laust sæti í efstu deild næsta vor. Liðið er hins vegar með unga og spennandi leikmenn sem gætu hæglega þroskast hratt og orðið til þess að liðið sleppi við umrædda umspilsleiki. Sig ríður Hauks dótt ir er góður hornamaður og það verður hlutverki Berglindar Þorsteinsdóttur að binda saman varnarleik liðsins. Þá eru Valgerður Þorsteinsdóttir og Díana Kristín Sigmarsdóttir öflugir leikmenn sem mikið mun mæða á. 8 KA/ÞórNýliði Nýliði. Stoppið verður stutt hjá Akureyrarliðinu í efstu deild að þessu sinni. Liðið er blanda af ungum og efnilegum leikmönnum og gömlum refum sem kunna öll trixin í bókinni í handboltafræð- unum. Martha Hermannsdóttir og Hulda Bryndís Tryggvadóttir munu draga vagninn hjá liðinu og þá hefur Ólöf Marín Hlynsdóttir leikið vel á undirbúningstímabilinu og gæti látið til sín taka í vetur ef hún heldur áfram góðri spilamennsku sinni. Ásdís Guðmundsdóttir er svo upprennandi línumaður sem mun vera í stóru hlutverki bæði í sóknar- og varnarleik liðsins. sport Fylgstu með þessum leikmönnum í vetur Ástríður Glódís Gísladóttir n Markmaður sem gekk til liðs við Hauka frá Fylki fyrir þetta tímabil. Hún átti gott tímabil með Fylki í Grill 66-deildinni í fyrra. Ástríður Glódís er efni- legur markmaður sem spilaði með U-20 ára landsliði Íslands á heimsmeistaramótinu í sumar og stóð sig vel. Ída Bjarklind Magnúsdóttir n Stór og stæðileg skytta frá Sel- fossi. Hún fékk nokkuð stórt hlutverk í fjarverju Hrafnhildar Hönnu Þrastardóttur á síðustu leiktíð og spennandi að sjá hvort hún hafi tekið skref fram á við frá því í fyrra. Berglind Þorsteinsdóttir n Hlaut náð fyrir augum Axels Stefánssonar landsliðsþjálfara í leikjum gegn Svíþjóð í lok þessa mánaðar. Berglind er sterkur varnarmaður og er óhrædd við að vaða út í þá sóknarmenn sem ógna marki HK. Vonandi nær hún að bæta sig hratt og vel og festa sæti sitt í landsliðinu til frambúðar. Ásdís Guðmundsdóttir n Línumaður að norðan sem hefur vaxið mikið undanfarin ár. Hún var hluti af leikmannahópi U-20 ára liðs Íslands sem lék á heimsmeistaramótinu í sumar og er öflugur línumaður. Lovísa Thompson n Þrátt fyrir ungan aldur hefur Lovísa reynt allt sem hægt er að reyna í handboltanum hér heima. Hún skipti úr upp- eldisfélaginu Gróttu í Val og það verður fróðlegt að sjá hvernig hún stendur sig í nýju umhverfi. Það er mikil pressa á Lovísu að standa sig vel. Berta Rut Harðardóttir n Ein af ástæðum þess að Haukar stóðu sig vel í fyrra var sú að Bertu Rut óx mikið ásmegin. Hún er góð hægri skytta sem getur einnig leyst af í hægra horninu. Berta var einn af burðarásunum í U-20 ára liðinu og sýndi það þar hversu langt hún er komin á þroskaferli sínu sem handbolta- maður þrátt fyrir að vera enn gjaldgeng í U-18 ára landsliðið. Fram mun ekki verja titil sinn í vor Olísdeild kvenna í handbolta hefst um helgina, en tveir leikir fara fram á morgun og umferðin klárast svo með tveimur leikjum á þriðjudaginn. Fréttablaðið spáir í spilin hvað deildina varðar og tilefnir einnig leikmenn sem gaman verður að fylgjast með í vetur. Haukar gerðu sér lítið fyrir og skelltu ríkjandi Íslands- og bikarmeisturum Fram í gærkvöldi 22-19 þrátt fyrir stórleik Ragnheiðar í Safamýrinni. Fyrir kvöldið voru ellefu ár liðin síðan Haukar unnu Meistarakeppni HSÍ. FRéTTABLAðið/eyÞóR Íslenska U-20 ára landsliðið stóð sig vel á HM í sumar. Nokkrir leikmenn liðsins verða í lykilhlutverkum í vetur. 1 4 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 D 5 -0 D 6 0 2 0 D 5 -0 C 2 4 2 0 D 5 -0 A E 8 2 0 D 5 -0 9 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 1 3 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.