Fréttablaðið - 14.09.2018, Blaðsíða 16
Tillögur að friðlýsingum svæða
í verndarflokki rammaáætlunar
Umhverfisstofnun hefur hafið formlega kynningu á tillögum
að friðlýsingu svæða í verndarflokki áætlunar um vernd og
orkunýtingu landsvæða sbr. ályktun Alþingis, nr. 13/141, frá
14. janúar 2013.
Svæðin sem nú eru lögð fram til kynningar eru:
1. Suðurland - vatnasvið Tungnaár:
24 Tungnaárlón og 25 Bjallavirkjun.
2. Suðurland - vatnasvið Jökulfalls og Hvítár í Árnessýslu:
32 Gýgjarfossvirkjun og 33 Bláfellsvirkjun.
3. Suðurland - vatnasvið Hólmsár:
20 Hólmsárvirkjun við Einhyrning, með miðlun.
Kynningartími er þrír mánuðir eða til 14. desember 2018.
Nánari upplýsingar á umhverfisstofnun.is. Athugasemdum skal skilað
inn á vefsíðu Umhverfisstofnunar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is
eða með bréfpósti; Umhverfisstofnun, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.
1 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 F Ö s t U D A G U r16 s p o r t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
HAnDboLti Gangi spá Fréttablaðsins
um deildina eftir mun Valur hrifsa
Íslandsmeistaratitilinn af Fram
sem er ríkjandi Íslands- og bikar-
meistari. Valur varð deildarmeistari
síðasta vor, en náði hins vegar ekki
að fylgja því eftir með því að tryggja
sér Íslandsmeistaratitilinn.
1 Valur1. sæti | 34 stig | ’17-’18
Þrátt fyrir að hafa misst nánast
allt byrjunarlið sitt frá síðasta
keppnistímabili mætir Ágúst Þór
Jóhannsson til leiks með lið sem
getur klárlega farið alla leið og
orðið Íslandsmeistari. Valur tapaði
fyrir Fram í úrslitum Íslandsmótsins
í vor, en nú komast þær skrefi
lengra. Valur hefur fengið Írisi Björk
Símonardóttur í markið sem er
mikill styrkur og þá mun Sandra
Erlingsdóttir stjórna sóknarleiknum
og hafa sér til fulltingis Lovísu
Thompson sem hefur, líkt og Íris
Björk og Anna Úrsúla Guðmunds-
dóttir sem ætla að taka slaginn
með liðinu, reynslu af því að verða
Íslandsmeistari.
2 Fram2. sæti | 32 stig | ’17-’18
Síðasta keppnistímabil var gjöfult
fyrir Fram sem stóð uppi sem bæði
Íslands- og bikarmeistari. Það er
erfitt að afskrifa lið með Steinunni
Björnsdóttur, Karen Knútsdóttur,
Þóreyju Rósu Stefánsdóttur og
Ragnheiði Júlíusdóttur innanborðs
í baráttunni um titilinn. Hins vegar
missti liðið Guðrúnu Ósk Marías-
dóttur sem fór yfir í Stjörnuna í
sumar. Markvarslan gæti orðið
hausverkur fyrir Fram, en liðið
treystir á tvær ungar og efnilegar
stúlkur og fékk svo til liðs við sig
Erlu Rós Sigmarsdóttur frá ÍBV til
þess að freista þess að fylla skarð
Guðrúnar Óskar.
3 ÍBV3. sæti | 30 stig | ’17-’18
Sami staður. 30 stig í fyrra. Eyja-
konur hafa þétt raðirnar svo um
munar frá síðasta keppnistíma-
bili. Til liðsins eru komnar Arna Sif
Pálsdóttir, sem er fyrsti línumaður
íslenska landsliðsins, og Sunna
Jónsdóttir landsliðskona í skyttu-
hlutverkið. Þessi liðsstyrkur styrkir
ekki hvað síst varnarleik liðsins sem
verður ógnvænlegur með þær tvær,
auk Esterar Óskarsdóttur, sem valin
var leikmaður ársins á lokahófi HSÍ
síðastliðið vor, í miðri vörninni.
Erfitt verður hins vegar að fylla
það skarð sem Sandra Erlingsdóttir
skilur eftir sig.
4 Haukar 4. sæti | 30 stig | ’17-’18
Sami staður. 30 stig í fyrra. Síðasta
tímabil var gott fyrir Haukakonur
sem náðu árangri sem var vel viðun-
andi. Portúgalska skyttan Maria Ines
Silva Pereira verður áfram í lykilhlut-
verki hjá liðinu í sóknarleiknum, en
liðið hefur fengið Ramune Pekar-
skyte til þess að efla vopnabúrið í
sóknarleiknum. Þarna verður mark-
varslan ákveðið spurningamerki, en
frammistaða Elínar Jónu Þorsteins-
dóttur heillaði forsvarsmenn
Vendsyssel og söðlaði hún um til
Danmerkur í vor. Ástríður Glódís
Gísladóttir mun verja mark Hauka í
vetur, en hún er ungur og efnilegur
markvörður sem ver mark U-20 ára
liðs Íslands. Hún þarf að verja vel
ætli Haukar að afsanna þessa spá og
gera sig meira gildandi í toppbarátt-
unni. Ástríður Glódís mun svo fá
samkeppni frá Selmu Þóru Jóhanns-
dóttur og Sögu Sif Gísladóttur.
5 Selfoss6. sæti | 9 stig | ’17-’18
Það mun að sjálfsögðu muna
gríðarlega um það fyrir Selfoss
að Hrafnhildur Hanna Þrastar-
dóttir er orðin heil heilsu. Það
mun hins vegar ekki duga til þess
að liðinu takist að tryggja sér sæti
í úrslitakeppni deildarinnar. Liðið
mun verða í baráttu við Hauka og
Stjörnuna um að verða fjórða og
síðasta liðið þangað inn, en það er
ekki mikill munur á þessum liðum
og baráttan verður jöfn. Vörn og
hraðaupphlaup þar sem Perla Ruth
Albertsdóttir verður í fararbroddi
gætu hins vegar breytt þessari
stöðu.
6 Stjarnan5. sæti | 21 stig | ‘17-’18
Niður um eitt sæti. 21 stig í
fyrra. Segja má að Stjarnan mæti
til leiks með nýtt lið að þessu
sinni. Miklar breytingar urðu
bæði á leikmannahópnum og
þjálfarateymi liðsins. Guðrún Ósk
Maríasdóttir mun sjá til þess að
markvarslan verði í góðum málum,
Elísabet Gunnarsdóttir er reyndur
og góður línumaður og Þórey Anna
Ásgeirsdóttir fær stærra hlutverk
í sóknarleiknum. Þá auka Laufey
Ásta Guðmundsdóttir og Auður
Ómarsdóttir breiddina í sóknar-
leiknum. Sebastian Alexandersson
og Rakel Dögg Bragadóttir halda um
stjórnartaumana hjá liðinu og eru
líklega ekki sammála þessari spá og
ætla að gera mun betur.
7 HKNýliði
Það verður hlutskipti HK að fara
aftur í umspil um laust sæti í efstu
deild næsta vor. Liðið er hins vegar
með unga og spennandi leikmenn
sem gætu hæglega þroskast hratt
og orðið til þess að liðið sleppi við
umrædda umspilsleiki. Sig ríður
Hauks dótt ir er góður hornamaður
og það verður hlutverki Berglindar
Þorsteinsdóttur að binda saman
varnarleik liðsins. Þá eru Valgerður
Þorsteinsdóttir og Díana Kristín
Sigmarsdóttir öflugir leikmenn sem
mikið mun mæða á.
8 KA/ÞórNýliði
Nýliði. Stoppið verður stutt hjá
Akureyrarliðinu í efstu deild að
þessu sinni. Liðið er blanda af
ungum og efnilegum leikmönnum
og gömlum refum sem kunna öll
trixin í bókinni í handboltafræð-
unum. Martha Hermannsdóttir og
Hulda Bryndís Tryggvadóttir munu
draga vagninn hjá liðinu og þá
hefur Ólöf Marín Hlynsdóttir leikið
vel á undirbúningstímabilinu og
gæti látið til sín taka í vetur ef hún
heldur áfram góðri spilamennsku
sinni. Ásdís Guðmundsdóttir er svo
upprennandi línumaður sem mun
vera í stóru hlutverki bæði í sóknar-
og varnarleik liðsins.
sport
Fylgstu með þessum leikmönnum í vetur
Ástríður Glódís Gísladóttir
n Markmaður sem gekk til liðs
við Hauka frá Fylki fyrir þetta
tímabil. Hún átti gott tímabil
með Fylki í Grill 66-deildinni í
fyrra. Ástríður Glódís er efni-
legur markmaður sem spilaði
með U-20 ára landsliði Íslands á
heimsmeistaramótinu í sumar
og stóð sig vel.
Ída Bjarklind Magnúsdóttir
n Stór og stæðileg skytta frá Sel-
fossi. Hún fékk nokkuð stórt
hlutverk í fjarverju Hrafnhildar
Hönnu Þrastardóttur á síðustu
leiktíð og spennandi að sjá
hvort hún hafi tekið skref fram á
við frá því í fyrra.
Berglind Þorsteinsdóttir
n Hlaut náð fyrir augum Axels
Stefánssonar landsliðsþjálfara í
leikjum gegn Svíþjóð í lok þessa
mánaðar. Berglind er sterkur
varnarmaður og er óhrædd við
að vaða út í þá sóknarmenn
sem ógna marki HK. Vonandi
nær hún að bæta sig hratt og vel
og festa sæti sitt í landsliðinu til
frambúðar.
Ásdís Guðmundsdóttir
n Línumaður að norðan sem
hefur vaxið mikið undanfarin ár.
Hún var hluti af leikmannahópi
U-20 ára liðs Íslands sem lék á
heimsmeistaramótinu í sumar
og er öflugur línumaður.
Lovísa Thompson
n Þrátt fyrir ungan aldur hefur
Lovísa reynt allt sem hægt er
að reyna í handboltanum hér
heima. Hún skipti úr upp-
eldisfélaginu Gróttu í Val og það
verður fróðlegt að sjá hvernig
hún stendur sig í nýju umhverfi.
Það er mikil pressa á Lovísu að
standa sig vel.
Berta Rut Harðardóttir
n Ein af ástæðum þess að Haukar
stóðu sig vel í fyrra var sú að
Bertu Rut óx mikið ásmegin. Hún
er góð hægri skytta sem getur
einnig leyst af í hægra horninu.
Berta var einn af burðarásunum
í U-20 ára liðinu og sýndi það
þar hversu langt hún er komin á
þroskaferli sínu sem handbolta-
maður þrátt fyrir að vera enn
gjaldgeng í U-18 ára landsliðið.
Fram mun ekki verja titil sinn í vor
Olísdeild kvenna í handbolta hefst um helgina, en tveir leikir fara fram á morgun og umferðin klárast svo með tveimur leikjum á
þriðjudaginn. Fréttablaðið spáir í spilin hvað deildina varðar og tilefnir einnig leikmenn sem gaman verður að fylgjast með í vetur.
Haukar gerðu sér lítið fyrir og skelltu ríkjandi Íslands- og bikarmeisturum Fram í gærkvöldi 22-19 þrátt fyrir stórleik
Ragnheiðar í Safamýrinni. Fyrir kvöldið voru ellefu ár liðin síðan Haukar unnu Meistarakeppni HSÍ. FRéTTABLAðið/eyÞóR
Íslenska U-20 ára
landsliðið stóð sig vel
á HM í sumar. Nokkrir
leikmenn liðsins verða í
lykilhlutverkum í vetur.
1
4
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
D
5
-0
D
6
0
2
0
D
5
-0
C
2
4
2
0
D
5
-0
A
E
8
2
0
D
5
-0
9
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
1
3
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K