Fréttablaðið - 14.09.2018, Blaðsíða 8
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
KOLEOS
Sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn
og sparneytinn.
Renault Koleos, verð frá: 5.790.000 kr.
Staðalbúnaður í Koleos er m.a.: Virkur neyðarhemlunarbúnaður, Akreinavari, umferðarskiltaskynjun með viðvörun, aðalljós sem beygja um leið og beygt er,
LED stöðuljós með „Follow Me Home“ búnaði, leiðsögukerfi með Íslandskorti, R-Link margmiðlunarkerfi, Apple CarPlay™ og Android Auto™.
Verið velkomin í reynsluakstur.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
9
3
2
0
R
e
n
a
u
lt
K
o
le
o
s
c
ro
s
s
o
v
e
r
5
x
2
0
á
g
ú
s
t
Bandaríkin Spá bandarísku felli-
byljamiðstöðvarinnar (NHC) í gær
gerði ráð fyrir því að fellibylurinn
Florence gengi á land í sunnan-
verðri Norður-Karólínu klukkan
átta í morgun að staðartíma, eða á
hádegi að íslenskum tíma. Þá myndi
stormurinn halda áfram í vestur
þvert yfir Suður-Karólínu og svo
þaðan í norðaustur.
Meðalvindhraði var um 47
metrar á sekúndu í gær og var því
spáð að hann yrði svipaður þegar
stormurinn gengi á land. Hægst
hefur nokkuð á vindi, stormurinn
kominn niður á annað stig, en þrátt
fyrir það telst hann enn lífshættu-
legur. Þegar stormurinn fikraði sig
nær landi í gær gátu íbúar á strand-
lengju Karólínuríkjanna vel fundið
fyrir honum. „Það er bara forleikur-
inn að margra daga eymd,“ sagði í
umfjöllun CNN.
Brock Long, stjórnandi almanna-
varnastofnunarinnar FEMA, sagði í
gær að þótt vindhraði hefði minnkað
væri stormurinn ekki hættuminni.
Þvermál hans hefði tvöfaldast og
þótt dregið hefði úr vindhraða hefði
það ekki haft nein áhrif á úrkomu-
spána. „Úrkoma verður mæld í
fetum, ekki tommum,“ varaði Long
við.
Stjórnandinn varaði íbúa, það
er að segja þá sem ekki höfðu flúið
þegar blaðamannafundurinn var
haldinn, við því að flóð vegna
stormsins gætu orðið gríðarleg. „Þið
hafið ekki mikið meiri tíma. Sjávar-
borð fer hækkandi,“ sagði Long og
benti á að fólk sem byggi nærri ám,
fljótum og á láglendi væri í mestri
hættu. Veðurfræðingar hafa spáð því
að flóðvatn gæti náð fjögurra metra
dýpi í Karólínuríkjunum.
„Þetta snýst í rauninni um stærð
stormsins. Því stærri sem stormurinn
er og því hægar sem hann fer yfir,
þeim mun meiri er hættan. Og sú er
staðan akkúrat núna,“ sagði Ken Gra-
ham, æðsti stjórnandi NHC, í gær.
Í gær héldu íbúar áfram að annað-
hvort byrgja sig upp og inni fyrir
storminn eða flýja. Fimm milljónir
búa á svæðum þar sem fellibyls-
viðvörun er í gildi og álíka margir á
svæðum þar sem stormviðvörun er
í gildi.
Það er deginum ljósara að afleið-
ingar hamfaranna verða alvarlegar ef
spár reynast réttar. Fjölmargir gætu
misst heimili sín og týnt lífi. Þá gætu
áhrif á innviði orðið gríðarleg. Duke
Energy, næststærsta orkufyrirtæki
Bandaríkjanna, greindi frá því í gær
að stormurinn gæti gert þrjár millj-
ónir viðskiptavina rafmagnslausar
vikum saman. thorgnyr@frettabladid.is
Spá margra daga eymd vegna Florence
Stormurinn gengur á land í Bandaríkjunum í dag. Vindhraði hefur minnkað en umfang stormsins margfaldast. Mesta hættan stafar
af úrkomu en flóðvatn gæti náð fjögurra metra dýpi. Enn öflugri stormur vofir yfir Filippseyjum og gæti gengið á land á laugardag.
Margir gista nú í neyðarskýlum. Þessi fjölskylda hélt til í Conway High School í Suður-Karólínu í gær. NordiCpHotoS/AFp
Filippseyjar og Kína í hættu
Fellibyljir gera nú vart við sig víðar
en í Bandaríkjunum. Samkvæmt
kínverska miðlinum Xinhuanet var
12.000 íbúum Guangdong-héraðs
gert að flýja heimili sín í gær. Spár
gerðu ráð fyrir því að fellibylurinn
Barijat gengi á land í nótt.
Fellibylurinn Mangkhut vofir svo
yfir Filippseyjum, en sá er stærri
en Florence. Í gær mældist hann
á fimmta stigi og var vindhraðinn
um áttatíu metrar á sekúndu. Spár
gera ráð fyrir því að Mangkhut
gangi á land á morgun á Luzon-
eyju, norðan við höfuðborgina
Maníla.
„Mangkhut er stærri, sterkari og
hættulegri stormur en Florence.
Ef hann gengur beint á land yrðu
hamfarirnar mun meiri vegna
umfangs stormsins,“ sagði veður-
fræðingur CNN í gær en bætti því
við að austurströnd Bandaríkjanna
væri talsvert þéttbýlli og þar væru
umfangsmeiri innviðir. „Þess vegna
mun Florence nær örugglega valda
meiri skaða, en Mangkhut er í eðli
sínu lífshættulegri þar sem vind-
hraðinn verður meiri og á stærra
svæði og flóð verða sömuleiðis
meiri.“
Mangkhut hefur nú þegar vaðið
yfir Gvam og Marshall-eyjar. Þar
hefur stormurinn valdið miklum
flóðum og rafmagnsleysi og var
hluti Gvam enn án rafmagns í gær.
Þvermál stormsins
tvöfaldaðist í fyrrinótt á
meðan vindhraði minnkaði.
Úrkomuspáin hélst hins
vegar óbreytt.
1 4 . s e p t e m B e r 2 0 1 8 F Ö s t U d a G U r8 F r é t t i r ∙ F r é t t a B L a ð i ð
1
4
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
D
5
-1
2
5
0
2
0
D
5
-1
1
1
4
2
0
D
5
-0
F
D
8
2
0
D
5
-0
E
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
3
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K