Fréttablaðið - 14.09.2018, Qupperneq 13
HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is
Straumhvörf
Audi A3 e-tron
sameinar tvo heima
► 17“ álfelgur ► Bakkmyndavél
► Dökkar rúður ► Málm/glitlakk
► Nálgunarvörn framan og aftan
► MMI útvarp ► Bluetooth símatenging
► Bluetooth tenging fyrir tónlist
► Dynamic stefnuljós ► LED afturljós
► Fjarstýrðar samlæsingar
► Lyklalaust aðgengi
► Tenging fyrir USB og Iphone
► Tvískipt sjálfvirk loftkæling
► Hæðarstillanleg framsæti
► Skriðstillir (Cruise control)
► Ljósa- og regnskynjari
► Skynjari fyrir loftþrýsting í hjólbörðum
► Baksýnisspegill með glýjuvörn
► Rafdrifnir upphitaðir og aðfellanlegir útispeglar
► Audi hljóðkerfi 180w með 10 hátölurum
► Leðurklætt aðgerðastýri ► Hiti í framsætum
► ABS bremsukerfi ► ESP stöðugleikastýring
► Árekstrarvörn (pre sense)
Listaverð 4.560.000 kr.
Tilboðsverð 4.090.000 kr.
Til afhending
ar strax
Fyrir utan samsetningu á IKEA húsgögnum þá er fátt sem hefur valdið eins mikilli togstreitu í samskiptum mínum við eiginkonu mína í gegnum tíðina og ákvarð-
anir um hvað þurfi að pakkast með í
utanlandsferðir. Það er óbrigðult að
kvöldið fyrir ferðalag fer fram nákvæm-
lega sama fyrirsjáanlega umræðan um
það hversu margar töskur þurfi að hafa
með í ferðina og hvað eigi að vera í
þeim.
„Hversu margar dúnúlpur heldurðu í
alvörunni að við þurfum á Tenerife?“
„Það getur verið kalt á kvöldin og í
flugvélinni.“
„En er þá ekki nóg að taka með
jakka?“
„En ef það verður brjálað veður þegar
við komum út á völl í fyrramálið?“
„Þá skutla ég ykkur bara upp að
stöðinni og legg bílnum.“
„En ef það verður stormur þegar við
komum til baka, um miðja nótt. Viltu
að börnin krókni úr kulda á stutterma-
bol í hagléli og sautján vindstigum á
meðan við leitum að bílnum sem þú ert
búinn að gleyma hvar þú lagðir?“
„Það er nú kominn júlí.“
Ökkli eða eyra
Mín kenning er nefnilega sú að það
sé hægt að fara í sumarfrí með ekkert
annað en kreditkort og vegabréf upp
á vasann. Allt annað muni einhvern
veginn leysast. Ef ég fengi að ráða þá
tæki fimm mínútur að henda ofan
í plastpoka nokkrum flíkum og við
gætum svo lagt af stað. Það er að
minnsta kosti þetta sem ég reyni að
halda fram. Ef eiginkona mín fengi að
ráða þá þyrftum við líklega að gera það
sama og sádiarabíska kóngafólkið sem
sendir aukaflugvél með farangurinn
þegar það ferðast til útlanda, og tvær til
baka með afrakstur verslunarferðanna.
Þessi togstreita milli okkar hefur á
endanum oftast skilað þeirri niður-
stöðu að farangurinn sem við tökum
með okkur rúmast nokkurn veginn
fullkomlega innan þeirra heimilda sem
flugfélög gera almennt ráð fyrir með
vísitölufjölskyldu. Tvær tiltölulega
stórar ferðatöskur eru tékkaðar inn,
ein flugfreyjutaska kemur með í vélina
og allir hafa á sér bakpoka eða tösku
með afþreyingarefni fyrir flugferðina.
Engum verður kalt. Enginn verður
blautur. Allir hafa feykinóg af afþrey-
ingu. 50% af farangrinum reynast
óþörf.
Og þótt þessi niðurstaða hafi ætíð
reynst mjög farsæl þá höfum samt sem
áður átt erfitt með að venja okkur af því
að karpa hressilega um málið áður við
sættumst á sömu lausn og áður.
Farangurseinvaldur
En nýverið hefur orðið sú gleðilega
breyting á að eiginkona mín virðist
loksins hafa séð að sér. Áralangur
ágangur virðist hafa skilað því að hún
nennir ekki þessum rökræðum. Loksins
fæ ég að vera nokkurn veginn einráður
um það hversu mikill farangur var
tekinn með. Ein stór taska og bakpoki
á línuna. Eina vitið. Skiptir einhver um
föt í sumarfríi? Þarf maður ekki einmitt
bara stuttbuxur og svo einn eða tvo
boli?
Sigri hrósandi höfuð fjölskyldunnar,
húsbóndinn á heimilinu, fékk því loks-
ins framgengt að hlustað væri á hans
óbrigðulu rökvísi og allir heimilismenn
framkvæmdu flatan niðurskurð á þeim
óþarfa sem við höfðum áður burðast
með milli landa og heimsálfa. „Sjáið þið
bara kolefnisfótsporið okkar, það bara
minnkar og minnkar. Við erum ekki
bara sparsöm og skynsöm heldur erum
við hreinlega að bjarga umhverfinu og
jörðinni. Namaste. Setjum þetta strax á
Instasnappið.“
Og svona hefur fjölskyldan ferðast í
nokkur skipti; dúnúlpu- og ullarsokka-
laus með örfáar spjarir til skiptanna í
neyðartilvikum. Kampakátur kippi ég
einni léttri tösku af færibandinu á flug-
vellinum og valhoppa svo sönglandi
út, en horfi með samúð til allra hinna
heimilisfeðranna og mæðranna sem
með útþandar hálsæðar stafla útbólgn-
um ferðatöskum upp á töskukerr-
urnar og ýta þeim svo—rymjandi og
stynjandi eins og úrvinda jakuxar—út
um hliðið þar sem ekkert bíður nema
áframhaldandi puð og pína þangað til
komið er á hótelið.
Skammvinnur sigur
Það verður þó að segjast að þessir sigrar
mínir í ferðaskipulagi fjölskyldunnar
hafa ekki endilega verið eins afgerandi
og ég hélt. Það hefur komið í ljós að
þótt gjarnan reynist drjúgur hluti
farangursins óþarfur, þá er ómögulegt
að vita fyrirfram nákvæmlega hvaða
hluti af farangrinum það var sem mátti
missa sín. Fyrir vikið hefur undanfarið
þurft að gera umtalsverð innkaup á
ýmiss konar staðalútbúnaði sem við
áttum til heima. Þannig að nú eigum
við tvö eða þrjú eintök af alls konar
dóti sem við þurfum ekki að eiga nema
eitt af.
Og svo hefur það því miður reynst
óbrigðul niðurstaða af illa upplýstu
einræði mínu í farangursmálum að
við höfum neyðst til þess að kaupa
nýja tösku, eða nýjar töskur, á heim-
leiðinni undir allan varninginn sem við
þurftum að kaupa á ferðalaginu. Þann-
ig að hin upplýsta og umhverfisvæna
farangursstefna mín hefur leitt til þess
að inni á heimilinu eru smám saman
að safnast upp birgðir af bæði ferða-
töskum og ýmiss konar sumarfrísdrasli
í fjölriti, sem gerir ekkert annað en að
éta rúmmetra.
Það má því segja að fullnaðarsigur
minn hafi reynst skammgóður vermir.
Þetta gekk allt miklu betur þegar niður-
staðan í farangursmálum var afrakstur
smávægilegrar togstreitu.
Togstreita til góðs
Þeir sem rannsaka ákvarðanatöku
myndu kannast ágætlega við farangurs-
söguna mína. Ákvarðanir sem byggjast
á samtali og málamiðlunum reynast
oftast betur en þær sem keyrðar eru í
gegn af offorsi. Þetta þurfa þeir að hafa
í huga sem falið er vald því það gerist
nefnilega furðufljótt að valdhafar hætta
að nenna að hlusta á kvabb, kvart og
kvein; en velja frekar að hafa í kringum
sig fólk sem er tilbúið að hlusta, hlýða
og trúa.
Þetta á ekki síst við í málum sem
„allir“ virðast vera sammála um, eða
enginn þorir að mótmæla. Það er ágætt
að hafa þetta í huga í vikunni þegar
Alþingi er sett því jafnvel þótt rifrildi
geti virst leiðinleg, þá geta þau þjónað
mikilvægum tilgangi því togstreitan
sjálf hnikar gjarnan ákvörðunum í rétta
átt.
Upplýst einræði í farangursmálum
Í dag
Þórlindur
Kjartansson
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 13F Ö S T u d a g u R 1 4 . S e p T e m B e R 2 0 1 8
1
4
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
D
4
-F
4
B
0
2
0
D
4
-F
3
7
4
2
0
D
4
-F
2
3
8
2
0
D
4
-F
0
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
1
3
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K