Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.09.2018, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 14.09.2018, Qupperneq 20
Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@frettabladid.is Dagur íslenskrar náttúru hefur verið haldinn hátíðlegur þann 16. september ár hvert síðan árið 2010. Einstaklingar, fyrirtæki, félagasamtök, skólar og stofnanir eru hvött til að hafa daginn sérstaklega í huga í starf- semi sinni. Guðbjörg Gissurardóttir, útgefandi og ritstýra tímaritsins Í boði náttúrunnar, og samstarfs- fólk hennar hefur allt frá upphafi gróðursett tré í kringum þennan dag. „Við erum með gróðurreit uppi í Heiðmörk og plöntum trjánum í samstarfi við Skógrækt Reykja- víkur. Við blöndum saman ýmsum tegundum, svo sem birki og greni. Við notum tré í tímaritið okkar og þetta er mjög viðeigandi leið til að gefa náttúrunni til baka. Tíma- ritið er prentað í umhverfisvænni prentsmiðju og trén sem eru notuð í pappírinn eru úr sjálfbærum skógi en okkur langaði til að gera eitthvað meira og þetta er okkar framlag,“ segir Guðbjörg en árið 2013 var hún tilnefnd til fjölmiðlaverðlauna umhverfis- og auðlindaráðuneytis- ins sem veitt eru þennan dag. Hríslur verða líka að skógi „Á hverjum degi eru felld tré um allan heim á svæðum sem eru á stærð við marga fótboltavelli. Við Íslendingar höfum til að mynda fellt 95% af þeim skógi sem var hér við landnám. Þess vegna er nauð- synlegt að allir séu meðvitaðir um umhverfið og geri sitt til að lágmarka skaðann og helst gefa náttúrunni til baka. Það eru allir sammála um að við þurfum að minnka kolefnisspor- Tré fyrir hvern áskrifanda Jón og Guðbjörg planta trjám á hverju ári og vonast til að eftir þrjátíu ár verði reiturinn orðinn að myndarlegum skógi sem þau verði stolt af og njóti að vera í. ið okkar og gróðursetning trjáa er ein leið til þess. Trén búa til súrefni, þau eru eins og hálfgerðar ryksugur og minnka mengun í andrúmsloft- inu, ekki síst kolefnismengun,“ segir Guðbjörg. Þá eru tré mikilvæg til að byggja upp skjól í okkar vindasama landi og skógar eru taldir hafa heilandi áhrif. „Gróðursetning reynir að vísu stundum dálítið á þolinmæðina. Þegar maður fer út í móa að gróður- setja litla hríslu er því gott að muna að það tekur áratugi að græða upp skóg. Ég vonast til að eftir þrjátíu ár verði reiturinn okkar orðinn að myndarlegum skógi sem við getum verið stolt af og njótum að vera í,“ segir hún glaðlega. Fólk meðvitaðra um umhverfið Átta ár eru frá því að Guðbjörg og eiginmaður hennar, Jón Árnason, settu tímaritið á stofn og á þeim tíma þóttu þau ákveðnir brautryðjendur í umhverfismálum. Spurð hvort hún finni fyrir meiri áhuga á umhverf- inu nú en þá segir hún svo vera. „Ég finn fyrir miklum mun á ákveðnum sviðum og má þar sem dæmi nefna plastið. Þar hefur orðið umbylting á hugarfari og flestir reyna t.d. að nota taupoka frekar en plastpoka. Við höfum aldrei pakkað tímaritinu í plast, hvorki þegar við sendum það til áskrifenda eða í verslanir heldur er því pakkað inn í pappír. Fólk er líka mun meðvitaðra um matarsóun. Ég áttaði mig nýlega á að fyrir fimm- tán árum gerði ég matreiðslubók sem fjallaði í raun um matarsóun en á þeim tíma var það hugtak ekki til. Fólk er almennt orðið meðvitaðra um umhverfið og heilsuna, sem er frábært og er alveg í takt við þann græna og heilbrigða lífsstíl sem við fjöllum um.“ Þessa dagana hefur Guðbjörg í mörg horn að líta en fyrir utan Í boði náttúrunnar gefur hún út tímaritið Fæða / Food. Það kemur út á íslensku og ensku. „Þar erum við líka að vinna í tengslum við náttúruna og fjöllum um mat í alls konar samhengi. Þetta er þriðja tölublaðið og þemað núna er sjálfbærni. Sjálfbærni er stórt og mikið umhverfismál og snýst m.a. um hvernig við nýtum og notum náttúruna og mikilvægi þess að ofnýta ekki auðlindir okkar,“ segir Guðbjörg að lokum. Trén búa til súrefni, þau eru eins og hálfgerðar ryksugur og minnka mengun í andrúmsloftinu, ekki síst kolefnismengun, að sögn Guðbjargar. Guðbjörg Giss- urardóttir, ritstýra tímaritsins Í boði náttúrunnar, gróðursetur tré fyrir hvern áskrif- anda á hverju ári í tilefni af Degi íslenskrar náttúru. FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir Jón Ívar Vilhelmsson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins. Sími 512 5429 / jonivar@frettabladid.is VÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR Veglegt sérblað Fréttablaðsins um vörubíla og vinnuvélar kemur út 25. september nk. T yggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . s e p T e m B e R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R 1 4 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 D 5 -1 C 3 0 2 0 D 5 -1 A F 4 2 0 D 5 -1 9 B 8 2 0 D 5 -1 8 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 1 3 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.