Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.09.2018, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 14.09.2018, Qupperneq 24
S toðmjólk er ætluð börnum frá sex mánaða til tveggja ára aldurs en næring ung- barna er einstaklega mikilvæg svo þau dafni vel. Fyrstu mánuð- irnir eru tiltölulega einfaldir að þessu leyti, en fylgi barnið sinni vaxtarkúrfu og sé vært dugir móðurmjólk og/eða rétt blönduð þurrmjólk því vel. Í kringum sex mánaða aldurinn fer barnið að kynnast nýjum fæðutegundum og smám saman byrjar það að borða fjölbreyttan mat með öðru heim- ilisfólki. Á þessu tímabili kynna margir foreldrar börnunum stút- könnu og þá er gott að gefa þeim vatn og Stoðmjólk með mat. Stoðmjólk er unnin úr íslenskri kúamjólk og mælt er með notkun hennar í stað nýmjólkur fyrir börn frá sex mánaða til tveggja ára aldurs. Stoðmjólkin var þróuð af MS að beiðni og í samvinnu við samstarfshóp um næringu ungbarna á vegum Manneldisráðs, Landlæknisembættisins, barnalækna við Land- spítalann, félags barna- hjúkrunarfræðinga og félags heilsugæsluhjúkrunar- Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Stoðmjólk er C-vítamínbætt og hefur því jákvæð áhrif á járnbúskap barna. Hún hentar vel samhliða brjóstagjöf. nordiCpHotoS/getty Stoðmjólk – fyrir börn frá 6 mánaða til 2 ára aldurs Hentugur og hollur valkostur fyrir barnið þitt. Það er staðreynd að mjög ung börn fara í leikskóla í Noregi en ekki eru allir sáttir við það. Margir telja börnin vera of ung. Umræðan er þó á margan hátt pólitísk. Þrýst er á byggingu fleiri leikskóla og að börnin fari sem fyrst á leikskóla eftir fæðingarorlof foreldra. Mikilvægt er að þessi pól- itíska umræða leiði ekki til skertrar þjónustu eða lífsgæða fyrir yngstu börnin, að því er segir á forskning. no. Það þarf að leggja áherslu á að börnin njóti sín í dagvistun á meðan foreldrar vinna úti. Mikil fjölgun hefur orðið á leikskólum víða um land í Noregi á undan- förnum árum enda brýn nauðsyn fyrir þá. Nær allir foreldrar vinna úti og nútímabörn eru alin upp á leikskólum með öðrum börnum. Langtímaáhrif leikskólavistar á ung börn í Noregi hafa ekki verið rannsökuð sérstaklega. Hins vegar var gerð bandarísk rann- sókn árið 2007 þar sem 1.300 börnum var fylgt eftir frá því að þau voru mánaðargömul fram að grunnskóla. Sú rannsókn leiddi í ljós að leikskólar þar sem lögð er áhersla á gæði í starfi hafa jákvæð áhrif á málþroska barna. Sömu niðurstöður fengust einnig í sænskri rannsókn. Vísbendingar komu einnig fram um að börn sem dvalið höfðu frá unga aldri og í langan tíma á leikskóla voru frekar með hegðunarvandamál þegar þau komu í grunnskóla en önnur börn. Tekið er fram að hegðunarvandamál barna á fyrstu árum í grunnskólum hafi aukist almennt á undanförnum árum. Það er áhyggjuefni meðal kennara. Þótt börnin dvelji á leikskóla yfir daginn eru það vitaskuld for- eldrarnir sem eru mikilvægastir í lífi þeirra. Samband barnsins við foreldra utan leikskóla er afar þýðingarmikið fyrir þroska þess. Sterkt og gott samband við for- eldra hefur mikil áhrif á það hvern- ig barnið spjarar sig í lífinu. Gæði leikskólans hafa gríðarlega mikið að segja, vel rekinn leikskóli með fagfólki getur haft mikil áhrif á málþroska og andlega líðan yngstu barnanna. Starfsfólk leikskóla þarf að vera meðvitað um ábyrgð sína á uppeldi barnsins og hvernig það muni þroskast félagslega. Ef barn sýnir streitueinkenni í leikskólanum og hegðun þess versnar þarf að taka fljótt og vel á því með faglegum hætti. Lítil börn treysta á fullorðna fólkið og það þarf að stuðla að góðri tengingu á milli svo að börnin séu ekki hrædd eða stressuð í leikskólanum. Á seinni árum hefur aukist með- vitund um slíka hluti og leikskóla- kennarar taka það mjög alvarlega ef upp koma vandamál í leikskól- anum. Samskipti og samskipta- tækni hefur verið efld milli barna og leikskólakennara í samræmi við þarfir þeirra. Sum yngstu börnin í Noregi eru 40 tíma eða lengur í hverri viku á leikskólanum. Rannsókn sem gerð var í fyrra sýndi aukið stress- hormón hjá yngstu börnunum og sérstaklega þeim sem voru í leikskólanum í átta tíma á dag. Nokkuð var rætt um þessa rann- sókn í Noregi en rannsakendur bentu á að streita hjá ungum börnum væri ekki algeng. Í nútímaleikskólum leggja starfsmenn mikið upp úr þörfum barnanna og stuðla að þroska þeirra. Lögð er áhersla á nám, öryggi og góða umönnun þannig að barnið verði tilbúið til að taka þátt í samfélaginu þegar það eldist. Foreldrar gera miklar kröfur til leikskólans og sem betur fer hefur þróunin verið í rétta átt. Íslenskir leikskólar eru mjög góðir ekki síður en þeir norsku. Í könnun sem gerð var meðal foreldra leikskóla- barna á síðasta ári í Noregi voru 78% ánægð með starfið. Ekki er vitað um sambærilega könnun á Íslandi. Leikskólakennarar vinna með börnum frá mismunandi heimilum og úr ólíkum menn- ingarheimum. Börnin eiga foreldra með ólíkan bakgrunn og tungu- mál. Leikskólar eru líklega með þýðingarmestu stofnunum í hverju samfélagi og gera foreldrum kleift að taka þátt í atvinnulífinu. Fólk getur síðan verið ósammála um hversu ung börnin eigi að fara á leikskóla og hversu lengi dagsins þau eiga að dvelja þar. Leikskólar eru góðir fyrir börnin Nokkur umræða hefur verið í Noregi um það hvort leikskólar séu góðir fyrir mjög ung börn. Þar geta börn byrjað ársgömul á leikskóla. Umræðan er af hinu góða og kröfur til leikskóla aukast. fræðinga. „Við framleiðslu hennar er tekið sérstakt tillit til næringar- þarfa ungra barna og hún er líkari móðurmjólk að samsetningu en venjuleg kúamjólk. Stoðmjólk hefur lægra próteininnihald en kúamjólk en það, ásamt járnvið- bót Stoðmjólkur, hefur jákvæð áhrif á járnbúskap barna sem er viðkvæmur á þessu aldursskeiði,“ segir Björn S. Gunnarsson, vöru- þróunarstjóri MS. „Enn fremur er bætt í Stoðmjólk C-vítamíni sem örvar járnupptöku og sér- staða Stoðmjólkurinnar umfram erlendar þurrmjólkurblöndur er að hún er tilbúin til drykkjar og pró- teinsamsetningin í henni er æski- legri en í þurrmjólkurafurðum,“ bætir Björn við. Nýjustu rannsóknir hafa sýnt að íslenska Stoðmjólkin hefur haft jákvæð áhrif á járnbúskap í aldurs- hópnum 6 mánaða til tveggja ára og mælist hann nú mun betri en áður. Hún er seld í 500 ml fernu sem talin er hæfilegur dagskammt- ur af mjólk og mjólkurmat þegar barnið er farið að borða úr öllum fæðuflokkum. Stoðmjólk hentar vel samhliða brjóstagjöf en mælt er með áframhaldandi brjóstagjöf svo lengi sem hugur stendur til hjá móður og barni. Börn byrja í leik- skóla í noregi ársgömul. Hér á landi eru þau yfirleitt orðin tveggja ára. nordiCpHotoS/ getty 4 KynningArBLAÐ 1 4 . S e p t e m B e r 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U RmóÐir og BArn 1 4 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 D 4 -F 4 B 0 2 0 D 4 -F 3 7 4 2 0 D 4 -F 2 3 8 2 0 D 4 -F 0 F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 1 3 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.