Fréttablaðið - 14.09.2018, Síða 26

Fréttablaðið - 14.09.2018, Síða 26
Barn sem fær ástúðlegt viðmót og viðeigandi svörun jafnt og þétt fær allt aðra mynd af umheiminum og sjálfu sér heldur en barn sem býr við rifrildi og hranalegt viðmót. Brynhildur Björnsdóttir brynhildur@frettabladid.is Sæunn Kjartansdóttir, sál- greinir og einn af stofn- endum Miðstöðvar foreldra og barna. MYND/ANtoN BriNK „Það eru minni líkur á að barn verði frekt og stjórnsamt ef brugðist er fljótt við þegar því líður illa.“ NorDicphotoS/GettY Algengustu ástæður þess að fólk leitar til okkar eru van­líðan eða áhyggjur foreldra sem tengjast því að eignast barn, annaðhvort á meðgöngu eða eftir fæðingu,“ segir Sæunn Kjartans­ dóttir, einn stofnendanna. „Margir halda að barnsfæðingu fylgi bara gleði og hamingja en veruleikinn er sá að fátt veldur jafn miklu álagi; barneignir reyna á sambandið, heilsuna, fjárhaginn, starfið, frí­ tíminn fer út um þúfur að ekki sé minnst á nætursvefninn. Og þetta er bara það venjulega. Í ofanálag hafa margir foreldrar orðið fyrir áföllum eða erfiðleikum sem þeir hafa kannski aldrei leitt hugann að, en þegar þeir ganga í gegnum svona miklar breytingar og álag geta hellst yfir þá tilfinningar sem trufla þá í foreldrahlutverkinu. Líðan foreldra er grundvallar­ atriði vegna þess að fyrstu árin eru ungbörn fullkomlega háð því að þörfum þeirra sé svarað jafnt og þétt. Ef foreldri er mjög kvíðið, áhyggjufullt eða dapurt á það mun erfiðara með að setja sig í spor barnsins síns og sinna því á þann hátt sem það þarfnast. Hjá okkur starfar þverfaglegt teymi fagfólks sem hefur sérhæft sig í tengsla­ eflandi meðferð og foreldrar geta leitað beint til okkar eða með Lítil börn gráta ekki af frekju heldur vanlíðan Miðstöð foreldra og barna er tíu ára í ár. Hún var stofnuð af fjórum heilbrigðismenntuðum kon- um sem allar höfðu að auki menntað sig til að sinna þörfum foreldra og ungbarna sem líður illa. milligöngu heilsugæslunnar eða annarra tilvísenda. Miðstöðin er ekki stór í sniðum og þess vegna þarf fólk oft að bíða, því miður.“ Sæunn segir miðstöðina hafa aðstoðað fjölmarga foreldra á þessum tíu árum. „Starfsemin felst í viðtalsmeðferð þar sem við reynum að skilja hvað veldur van­ líðaninni og hvernig hægt sé að bregðast við henni. Þegar vel tekst til er ávinningur slíkrar meðferðar sam­ bland margra þátta eins og að fá að tala um hvernig manni líður án þess að verða dæmdur, að geta sett hluti í samhengi og skilið þá betur og að geta upplifað tilfinningar sem maður hefur kannski alltaf óttast. Oft eru það nefnilega aðferðirnar sem maður notar til að verjast vanlíðan sem eru aðalvandamálið. Við skoðum barnæsku foreldranna og pælum í hvað var gott og hvað þeir vilja forðast að endurtaka.“ Sæunn er höfundur bókarinnar Árin sem enginn man – áhrif frum­ bernsku á börn og fullorðna en hún segir fyrstu ár lífsins skipta sköpum fyrir framhaldið. „Ef ung­ barn upplifir mikla streitu hefur það áhrif á mótun heilans og eins fer það að tileinka sér aðferðir til að verjast vanlíðan, aðferðir sem geta leitt til erfiðleika síðar. Á fyrstu árunum byrja hugmyndir barnsins um sjálft sig og heiminn sem það fæddist í að verða til,“ segir hún. „Barn sem fær ástúð­ legt viðmót og viðeigandi svörun jafnt og þétt fær allt aðra mynd af umheiminum og sjálfu sér heldur en barn sem býr við rifrildi og hranalegt viðmót. Ef barn upplifir umhverfið að jafnaði ógnandi verður streitukerfi þess virkt sem gerir það óöruggt og á varðbergi, ekki bara heima hjá sér heldur líka annars staðar. Þetta getur haft áhrif á námsgetu og færni í félags­ legum samskiptum því að þegar streitukerfið er í botni er ekki hægt að gleyma sér í leik eða námi.“ Hún segir mikilvægt að fólk nálgist börn frá fæðingu sem hugsandi, viðkvæmar tilfinninga­ verur og taki sársauka þeirra alvar­ lega. „Ung börn geta ekki huggað sig sjálf eða komið sér í jafnvægi, það verða hinir fullorðnu að gera. Lítil börn gráta ekki vegna frekju eða stjórnsemi, þau skortir til þess vit. Þau gráta af vanlíðan, frústr­ asjón og vanmætti. Það eru mun minni líkur á að barn verði frekt og stjórnsamt ef fólk bregst að jafnaði fljótt við þegar því líður illa og leyfir því að finna að það skipti máli.“ Hún segir börn þurfa mikil samskipti á hverjum einasta degi. „Annars vegar örvun við hæfi en hins vegar er streitu þeirra haldið innan marka. Þetta er krefjandi, tímafrekt og dýrt,“ segir hún og bætir við: „Það er mikill mis­ skilningur að halda að hægt sé að sleppa billega frá því að eignast og annast barn, hvort sem um er að ræða foreldra eða samfélag. Börn trufla líf fullorðinna og það getur aldrei orðið öðruvísi.“ Hún segir enn fremur marga ofmeta þörf ungra barna fyrir sam­ skipti við önnur lítil börn. „Sumir halda að þau börn sem eru heima fyrstu árin séu svipt mikilvægum tækifærum. Lítil börn hafa vissu­ lega gaman af því að vera innan um önnur börn, upp að vissu marki, en þau hafa mun meiri þörf fyrir fullorðnar manneskjur. Þeir fullorðnu þurfa ekki að vera foreldrar barnsins en þeir verða að vera nægilega vakandi fyrir því og bregðast við þegar barnið þarf á að halda. Þannig læra börn að treysta og finna til öryggis sem er forsenda þess að þau geta gleymt sér í leik og lært.” Hægt er að fá nánari upplýsingar um Miðstöð foreldra og barna á fyrstutengsl.is. Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. Nánari á icecare.is Lífið tók miklum breytingum Góð og öflug vörn fyrir meltingarveginn l Bio-Kult Infantis er vísindalega þróuð blanda af vinveittum gerlum fyrir ungabörn og börn á öllum aldri. l Inniheldur gæða mjólkursýrugerla sem styrkja og bæta meltinguna, eru með hátt hlutfall af Omega 3 og D3 vítamín. l Varan inniheldur ekki viðbættur sykur, litar-, bragð eða önnur aukaefni. Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. Ég er búin að gefa stráknum mínum Bio Kult infantis frá því að hann var 3 mánaða við bakflæði. Núna er hann orðin 18 mánaða og bakflæðið eldst af honum. Ég finn að ef ég gef honum ekki Bio Kult er meira loft í maga hans og meltinginn ekki jafn góð. Hann fær því Bio Kult alla daga núnaog honum líður betur og er hressari Tanja Karen Salmon „Minni magaónot hjá syninum“ 6 KYNNiNGArBLAÐ 1 4 . S e p t e M B e r 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U RMóÐir oG BArN 1 4 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 D 4 -F 9 A 0 2 0 D 4 -F 8 6 4 2 0 D 4 -F 7 2 8 2 0 D 4 -F 5 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 1 3 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.