Fréttablaðið - 14.09.2018, Síða 39
Það er mikilvægt að vera í góðum tengslum við fólkið sitt og náttúruna. Hvort sem þú
velur margverðlaunaðan KODIAQ eða glænýjan og snjallan KAROQ gerir þú hvorutveggja.
Komdu og prófaðu jeppabræðurna frá ŠKODA. Hlökkum til að sjá þig!
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum www.skoda.is
ENDURNÝJAÐU TENGSLIN
MEÐ KODIAQ OG KAROQ.
KODIAQ OG KAROQ. FYRIR FÓLKIÐ ÞITT OG NÁTTÚRUNA.
ŠKODA KAROQ frá:
4.490.000 kr.
ŠKODA KODIAQ 4x4 frá:
5.590.000 kr.5 ára
á
by
rg
ð
fy
lg
ir
f
ól
ks
bí
lu
m
H
E
K
LU
a
ð
up
pf
yl
lt
um
á
kv
æ
ðu
m
á
by
rg
ða
rs
ki
lm
ál
a.
Þ
á
er
a
ð
fin
na
á
w
w
w
.h
ek
la
.is
/a
by
rg
d
Vetrarpakki með vetrardekkjum, dráttar-
krók og gúmmímottu í farangursrými
fylgir öllum nýjum jeppum og jepplingum
frá Skoda í september.
Dagskráin er spenn-andi, þrjú verk, öll samin á 20. öldinni,“ segir Guðný Guð-mundsdóttir um tónleika Kammer-
músíkklúbbsins í Hörpu á sunnu-
daginn sem hefjast klukkan 16 í
Kaldalóni. Þeir eru haldnir henni til
heiðurs í tilefni sjötugsafmælis fyrr
á árinu. Nú fær hún til liðs við sig
öndvegis hljóðfæraleikara, íslenska
og erlenda.
„Það er merkilegt að stærsta verk-
ið sem við flytjum, píanókvintett
eftir Edward Elgar, er hundrað ára
gamalt, stórt og viðamikið, róman-
tískt kammerverk sem hefur aldrei
heyrst á Íslandi áður. Við erum búin
að fletta gegnum timarit.is og sögu
Kammermúsíkklúbbsins og ég tel
mig geta fullyrt það.“
Guðný segir ómögulegt að spila
sömu verkin, aftur og aftur. „Það
er svo ótrúlega margt fallegt til og
nú til dags er svo auðvelt að finna
verk í tölvunni. Ég fór bara inn á
YouTube og kannaði þennan Elgar-
kvintett sem ég hef vitað af í mörg
ár og margir höfðu sagt mér að væri
flottur. Ég gat ekki staðist að setja
hann á dagskrá. Erlendu gestirnir
okkar, Anton Miller og Rita Porfiris,
eru hjón, fiðlu- og víóluleikarar og
við höfum spilað töluvert saman
sem strengjatríó. Nú bætum við við
okkur Bryndísi Höllu sellóleikara og
Bjarna Frímanni á píanó til að geta
flutt kvintettinn.
Fyrir hlé eru tvö verk. Hjónin
Miller og Porfiris leika það fyrra, sem
er eftir Ungverjann László Weiner.
„Þessi Weiner var nemandi Zoltáns
Kodály, sem var samlandi hans og er
höfundur síðara verksins fyrir hlé.
Weiner var óskaplega efnilegur en
varð fyrir þeirri hörmung að lenda
í útrýmingarbúðum nasista og náði
bara 28 ára aldri. Kodály gerði allt
sem hann gat til að fá hann lausan,
því Weiner var svo frábær nemandi.
Eftir Weiner liggja einungis sjö tón-
verk og þetta dúó er eitt þeirra.
Þegar flutningi þess er lokið hljóm-
ar strengjatríó (kvöldlokka) eftir
Kodály,“ segir Guðný. „Það er þekkt
verk og hefur verið flutt hér áður.“
Guðný segir Kammermúsíkklúbb-
inn stórkostlegt fyrirbæri. Hún hafi
sótt tónleika þar frá því hún var ung
að læra að spila. „Þá var ekki mikið
um klassíska tónleika en kennar-
arnir mínir voru gjarnan að spila hjá
klúbbnum,“ rifjar hún upp og kveðst
síðar hafa tekið virkan þátt í starfinu
og sett saman hinar ýmsu grúppur.
gun@frettabladid.is
Leika þrjú verk sem öll eiga sína sögu
Anton Miller, Bjarni Frímann, Guðný Guðmunds, Bryndís Halla og Rita Porfiris á æfingu. FRéttABlAðið/Anton BRink
Hundrað ára kvint
ett eftir Edward
Elgar verður flutt
ur í fyrsta sinn á
Íslandi á tónleikum
Kammermúsík
klúbbsins í Kalda
lónssal Hörpu á
sunnudaginn.
WEinEr var
ósKaplEga Efni-
lEgur En varð fyrir
þEirri Hörmung að
lEnda Í útrýmingar-
búðum nasista og náði
bara 28 ára aldri.
m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 23F Ö S T U D A g U R 1 4 . S e p T e m B e R 2 0 1 8
1
4
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
D
4
-F
E
9
0
2
0
D
4
-F
D
5
4
2
0
D
4
-F
C
1
8
2
0
D
4
-F
A
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
3
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K