Fréttablaðið - 15.09.2018, Blaðsíða 98
leiki Williams þar til hún biður
Ramos afsökunar.
Trúlega mun fyrr frjósa í helvíti.
Eftir að Ramos hafði dæmt víti á
hana fyrir að vera þjálfuð frá áhorf-
endabekkjunum, en slíkt er strang-
lega bannað, sakaði Williams hann
um lygar. Flestir eru á því að dómur
Ramos hafi verið réttur.
Því næst braut hún spaðann og
víti var eðlilega rétt ákvörðun hjá
Portúgalanum. Þriðja brot hennar
var að kalla Ramos þjóf og vera með
dónaskap. Fyrir það fékk hún víti á
sig og Osaka fékk stig í kjölfarið sem
tryggði í raun sigur hennar. Ramos
hefur í gegnum dómaraferil sinn
verið strangur gagnvart öllum dóna-
skap. Hann mun dæma næst í Dav-
ies-bikarnum milli Bandaríkjanna
og Króatíu.
Williams er þó ekki af baki dottin
og ætlar að berjast áfram gegn karl-
rembunni því henni finnst að hvítir
menn í tennis fái að gera hluti sem
hún fengi aldrei að komast upp með.
Og um það snýst málið. Að konur
fái sömu meðferð.
Billy Jean King, goðsögn í tennis-
heiminum og einn af stofnendum
tennissambands kvenna, WTA,
sagðist á Twitter-síðu sinni styðja
Williams. Það sé fáránlegt að refsa
konu fyrir að vera í uppnámi og
segja hana hysteríska en segja karl-
menn hreinskilna þegar þeir hegða
sér á sama hátt.
Tennisleikarnir Andy Roddick og
James Blake hafa einnig stigið fram
til stuðnings Williams. WTA sagði í
yfirlýsingu að þolinmæði gagnvart
karlmönnum væri mun meiri og
kallaði eftir aðgerðum.
Dómarinn Carlos Ramos sagði
í örviðtali við Tribuna Expresso í
Portúgal, að sér væri slétt sama –
svona miðað við aðstæður. „Þetta
er viðkvæmt mál en þetta er ekki
klippt og skorið. Þannig er það
aldrei. En það þarf enginn að hafa
áhyggjur af mér.“
Blaðið segir að nokkrir leikmenn
og vinir hafi sent honum stuðnings-
kveðjur. WTA hefur kallað eftir jafnri
meðferð og að þjálfun á meðan á
leik stendur verði leyfð.
Hvort karlrembunni í tennisheim-
inum verði útrýmt er erfitt að spá
fyrir um. Það gengur hægt í fótbolta
til dæmis og íþróttum almennt. Trú-
lega er jafnréttið mest í MMA. En
flestir eru sammála um að það þurfi
að setja skýrari reglur um þjálfun
frá hliðarlínunni. Þar hefur Serena
eitthvað til síns máls. Trúlega mun
málflutningur hennar verða til þess
að reglunum verði breytt.
Eitt er víst að þó að Serena hafi
tapað úrslitaleiknum þá vinnur hún
sjálfan tennisleikinn þegar öll kurl
eru komin til grafar. Hún hefur sýnt
það áður á ferlinum.
benediktboas@frettabladid.is
Fararstjóri er
Emil Örn Kristjánsson
Norður England 12.-17. maí
Skemmtileg ferð um Norður England.
Gist í Jórvík, þar sem Egill Skallgrímsson gerði garðinn
frægan, ekið um Jóvíkurheiðar að Norðursjávarströnd-
inni og einnig yfir Pennínafjöllin til Vatnahéraðsins,
innblásturs skálda og listamanna. Í lok ferðar er gist í
stórborginni Manchester. Verð frá 179.400,-
Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar
Sími 511 15 15 – ferdir.is
Skemmtileg ferð um Norður England.
Gist í Jórvík, þar sem Egill Skallgrímsson
gerði garðinn frægan, ekið um Jóvíkurheiðar
að Norðursjávarströndinni og einnig yfir
Pennínafjöllin til Vatnahéraðsins, innblásturs
skálda og listamanna. Í lok ferðar er gist í
stórborginni Manchester.
Verð frá 179.400.
Nánar á ferðir.is
outgoing@gjtravel.is
Forskot á aðventuna
Aðventuferð til Edinborgar 22.- 25.11.
Edinborg er höfuðborg Skotlands og næststærsta borg landsins og
þykir einstaklega fögur. Jólamarkaðurinn hefur verið staðsettur við
rætur Kastalahæðarinnar í hjarta Edinborgar í mörg ár. Þar geta
gestir upplifað ævintýralega stemningu þar sem þeir rölta á milli
sölubása listamanna sem bjóða fallega handverksmuni og þeirr
sem bjóða kræsingar sem kitla bragðlaukana. Einnig er tilvalið að líta
í stórverslanir á Princes street, ganga á milli vertshúsa og verslana
á “ Royal Mile” skoða Edinborgarkastala eða bara slappa af og njóta
þess að horfa á mannlífið. Gist er á Mercure hóteli, Princess street.
Verð
98.500,-
Aukagjald fyrir
einsmanns herbergi
er 43.500,-.
Innifalið í verði er flug, flugvallaskattar, gisting í tveggjamanna
herbergi, morgunver ur og akstur frá og að flugvelli í Skotlandi.
Það var lítill klassi yfir leik Serenu Williams í úrslitaleik Opna banda-ríska meistaramótsins í tennis um síðustu helgi. Williams, sem margir
telja einn besta íþróttamann sög-
unnar enda búin að vina 23 risa-
titla, tapaði þá fyrir Japananum
Naomi Osaka nokkuð verðskuldað
en hegðun hennar í leiknum sjálfum
hefur valdið ofboðslegu fjaðrafoki.
Williams braut spaða í leiknum,
sakaði dómarann, Carlos Ramos,
um lygar, karlrembu og þjófnað og
lét almennt öllum illum látum. Hún
sýndi enga meistaratakta og tapaði
fyrir betri tennisleikara þennan
dag. Alls námu sektirnar sem Ramos
henti á hana 17 þúsund dollurum.
En þótt Serena hafi tapað á vell-
inum var hún ekki klár í að tapa
eftirleiknum líka. Hún hefur haldið
áfram baráttu sinni gegn karlrembu
í tennisheiminum og hefur talað
um að karlmaður af hennar stjörnu-
gráðu hefði aldrei fengið svona
dóma á sig.
Breska blaðið The Times sagði frá
því í vikunni að dómarar í tennis
ætluðu að taka höndum saman og
sniðganga leiki Williams.
Nafnlaus heimildarmaður sem
The Times vitnar í segir að dóm-
arar séu ekki sáttir við skort á
stuðningi frá Tennissambandi
Bandaríkjanna og að Ramos sé
hent fyrir úlfana eingöngu fyrir
að sinna starfi sínu. Allar ákvarð-
anir hans hafi verið réttar og sam-
kvæmt laganna bókstaf og hann
sé þannig dómari. Þeir eru jú
misjafnir eins og leikmennirnir.
Ein tillagan er að sniðganga alla
Williams ræðir við línuvörðinn
árið 2009. Serena hótaði henni
öllu illu fyrir einn dóminn.
Serena Williams hefur unnið alls 39 risatitla á ferlinum að meðtöldum tvíliða- og tvenndarleik. Ein og sér hefur hún unnið 23
risatitla og fjögur Ólympíugull. Hún var á toppi heimslistans 186 vikur í röð og 319 vikur í það heila. Vön að vera númer eitt.
Sigurvegarinn Naomi Osaka gat ekki falið tárin fyrir bauli áhorfenda sem
studdu átrúnaðargoð hennar Serenu Williams sem stöðvaði það í lokin.
Serena
Williams
breytir
tennis
Það hafa fáir fjallað
um Naomi Osaka
sem lagði átrúnaðar-
goðið sitt, Serenu
Williams, í úrslitaleik
Opna bandaríska
meistaramótsins í
tennis um síðustu
helgi. Williams
hefur nefnilega bein
í nefinu og munninn
svo sannarlega fyrir
neðan nefið. Hún
hefur gert allt vitlaust
í tennisheiminum og
trúlega munu tennis-
reglurnar breytast
áður en langt um
líður – þökk sé henni.
Serena Williams
n Fædd 26. september
1981.
n Hefur unnið 88
milljónir dollara í
verðlaunafé.
n Hefur unnið alls 39
risatitla á ferlinum að
meðtöldum tvíliða-
og tvenndarleik.
n Ein og sér hefur hún
unnið 23 risatitla.
n Hún á fjögur Ól-
ympíugull.
n Hún var á toppi
heimslistans í 186
vikur í röð.
n Alls hefur hún verið
319 vikur á toppnum.
n Hún er talin einn
besti íþróttamaður
allra tíma.
n Var eina konan á
lista Forbes yfir 100
ríkustu íþróttamenn-
ina í fyrra.
1 5 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r54 L í f i ð ∙ f r É t t A b L A ð i ð
Lífið
1
5
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
D
6
-E
1
3
4
2
0
D
6
-D
F
F
8
2
0
D
6
-D
E
B
C
2
0
D
6
-D
D
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
0
4
s
_
1
4
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K