Fréttablaðið - 15.09.2018, Blaðsíða 24
sér inn í allar hugsanir og snúa öllu
á haus.
„Ef við horfumst í augu við dauða
okkar, myndi það breyta einhverju
um það hvernig okkur langar að lifa?
Þetta fannst mér svo spennandi til-
hugsun. Nokkru áður fylltist ég
ótta. Ég fór að sækja um stjórnunar-
stöður hér og þar. Komst oft áfram,
fékk viðtal en fékk svo ekki starfið.
Ég hélt ég myndi ekki vinna aftur.
Nú væri ég bara orðin of gömul. Ég
þyrfti að drífa mig að finna vinnu.
Fastráða mig,“ segir Charlotte.
„Það var auðvitað engin skyn-
semi í þessar panikk hjá mér. Með
óttanum fylgdi ákveðin uppgjöf.
Ég gafst svolítið upp. Fannst ég eins
og Sýsifos, rúllandi hnullungi upp
sama fjallið,“ segir hún. „Þetta var
ekki algjör uppgjöf, þetta var smá
tilvistarkrísa. En krísan tók fljótt
enda þegar ég varð hugfangin af
dauðanum,“ segir Charlotte.
Rannsakar dauðann
„Einn daginn kom þessi hugmynd
sterkt til mín: Þú verður að gera
sýningu um dauðann. Ég fór strax
að rannsaka dauðann. Lesa mér til.
Skoða allt í lífinu með augum dauð-
ans. Hann var nefnilega ekki mjög
nálægt mér. Stærsti missir minn var
þegar Brynja, móðir Benedikts, dó.
Andi hennar svífur einmitt hér yfir
í Skemmtihúsinu. Hún dó árið 2008,
þá var ég kasólétt að tvíburum. Hún
náði því miður aldrei að hitta tví-
burana. Eitt lagið í kabarettinum
Þetta er lífið var tileinkað henni
Brynju,“ rifjar Charlotte upp.
„Ég fann mig í stiganum á leið
niður. Það var Carl Jung sem setti
fram myndlíkinguna um æviskeið-
ið sem gang upp og niður stiga.
Við klifrum upp þar til æviskeiðið
er hálfnað, svo höldum við niður.
Næsta stopp dauðinn! Og hvernig
líður manni á leið niður stigann?
Hvernig getur manni liðið? Ég er
að hugleiða um þetta, mér finnst
að einmitt á þessu æviskeiði þurfi
maður ekki að þóknast neinum
öðrum en sjálfum sér. Ég þarf auð-
vitað að lifa, vinna mér inn tekjur.
Að skapa og miðla eru líka grunn-
þarfir hjá mér. Ég get hins vegar
valið mér allt annað og meira frels-
andi viðhorf en áður. Og svo þarf
maður að læra að sleppa! Það er
ein af stóru lexíum þessa lífs,“ segir
Charlotte.
Betri eða bitrari?
„Við höfum hvort sem er ekki val.
Við þurfum að sleppa. Við missum
vini og ættingja. Ég missti vinkonu
mína úr krabbameini. Við þurfum
að sleppa börnunum okkar. Og í
lokin þurfum við auðvitað að sleppa
tökunum á lífinu sjálfu. En kannski
þurfum við líka að sleppa hugmynd-
um um heiminn og okkur sjálf,“
nefnir Charlotte og segist finna það
sjálf að hún þurfi að sleppa ýmsu
sem hún vilji ekki burðast með. „Það
er svo margt sem þjónar engum til-
gangi að draga með sér,“ bendir hún
réttilega á.
„Vinkona mín sem ég missti var
ákaflega gjafmild. Ég ákvað að taka
þann eiginleika og láta hana lifa í
gegnum hann. En sumu verðum við
að sleppa. Til að verða frjáls.
Viltu verða betri manneskja eða
L istakonan Charlotte Bøving er Íslendingum að góðu kunn. Hún hefur búið á Íslandi samanlagt í fimmtán ár með eigin-manni sínum, Benedikt
Erlingssyni leikstjóra. Hún átti að
baki glæstan feril í dönsku leik-
húsi þegar hún flutti fyrst hingað til
lands árið 1999. Hún og Benedikt
bjuggu í nokkur ár í Kaupmanna-
höfn stuttu eftir aldamótin. Þau
fluttu alfarið hingað heim árið 2007
og búa nú í Mosfellsbæ.
Það er ekkert einfalt mál fyrir
leikara að byggja upp nýjan feril, á
nýju tungumáli. Að verða allt í einu
innflytjandi.
Charlotte hefur aldreið látið það
stöðva sig og notað hindranir í veg-
inum og líf sitt sem efnivið.
Hún var tilnefnd til Grímunnar
fyrir einleik sinn Hina smyrjandi
jómfrú árið 2003. Í einleiknum
byggði hún á reynslu sinni af því að
flytjast til Íslands.
Í öðru verki frá árinu 2010,
kabarettinum Þetta er lífið – og
nu er kaff en klar heldur hún áfram
að nota lífshlaupið sem efnivið.
Verkið er nokkurs konar óður til
lífsins og Charlotte hlaut Grímutil-
nefningu 2011 fyrir besta sönginn.
„Ég dey“ er þriðji einleikur Char-
lotte og blaðamaður fær tækifæri til
þess að skyggnast inn í sköpunar-
ferlið. Einleikurinn verður fluttur í
janúar á næsta ári og Charlotte ætlar
að takast á við dauðann sjálfan frá
sjónarhóli lífsins.
Í stellingum vísindamanns
Charlotte segist setja sig í stellingar
vísindamanns þegar hún semur
leikverk og undanfarin ár hefur
hún skoðað allt mögulegt með
augum dauðans. Hversdagslegar
Bónusferðir og hversu mikið heim-
iliskötturinn fær að éta snýst upp í
hugleiðingar um dauðann.
„Ég var nýorðin 50 ára þegar
þeirri hugsun laust niður að ég
myndi deyja. Hvers vegna í ósköp-
unum hafði ég ekki hugleitt áður
að ég myndi deyja?“ segir Charlotte
sem býður blaðamanni í aðsetur
sitt í miðborginni, Skemmtihúsið
á Laufásvegi 22A. Hús sem hjónin
Brynja Benediktsdóttir og Erlingur
Gíslason byggðu sér sem vinnu-
stofu, stúdíó, gallerí og athvarf fyrir
leiklistarstarfsemi. Eftir að þau féllu
bæði frá er húsið enn að miklu leyti
notað í þágu leiklistarinnar. Char-
lotte semur og æfir í húsinu.
„Hér get ég æft mig og skrifað.
Leikhúshópurinn sem ég vinn með,
Ratatam, æfir hér. Ég ætla líka að
halda námskeið hér,“ segir Char-
lotte sem hefur starfað sem mark-
þjálfi frá árinu 2010.
„Hér er ég alla daga að hugsa
um dauðann,“ segir hún og starir
á blaðamann og skellir svo upp úr.
Hún hefur einstakt lag á því að nota
minnstu svipbrigði til að kalla fram
það broslega.
Hélt ég myndi ekki vinna aftur
„Ég átti stórafmæli fyrir fjórum
árum og varð þá svo hissa á því að
fortíðin var orðin lengri en fram-
tíðin. Ég hafði farið í gegnum lífið
hratt, eiginlega á handahlaupum.
En þarna stansaði ég og hugsaði:
Hei! Hvers vegna er ég eiginlega
að þessu? Hvers vegna hef ég ekki
horfst í augu við það fyrr að ég þarf
að deyja? Að ég þurfi að fara héðan,“
segir Charlotte um kveikjuna að
leikverkinu. Dauðinn fór að smeygja
Af oföldum
ketti og
dauðanum
í Bónus
Viltu verða betri manneskja eða bitrari? Spyr Charlotte sem veltir fyrir sér dauðleikanum. FRéttaBlaðið/EyþóR
Ef þú gerir aðeins
einn hlut á dag sem
þú hefur aldrei gert
áður þá breytist
margt, segir leik-
konan og leikstjórinn
Charlotte Bøving
sem gefur innsýn í
ferlið við að semja
verk um dauðann.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
Ég fór að sækja um
stjórnunarstöður
hÉr og þar. komst oft
áfram, fÉkk viðtal en
fÉkk svo ekki starfið.
Ég hÉlt Ég myndi ekki
vinna aftur.
1 5 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r24 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
1
5
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
D
6
-F
0
0
4
2
0
D
6
-E
E
C
8
2
0
D
6
-E
D
8
C
2
0
D
6
-E
C
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
0
4
s
_
1
4
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K