Fréttablaðið - 15.09.2018, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 15.09.2018, Blaðsíða 24
sér inn í allar hugsanir og snúa öllu á haus. „Ef við horfumst í augu við dauða okkar, myndi það breyta einhverju um það hvernig okkur langar að lifa? Þetta fannst mér svo spennandi til- hugsun. Nokkru áður fylltist ég ótta. Ég fór að sækja um stjórnunar- stöður hér og þar. Komst oft áfram, fékk viðtal en fékk svo ekki starfið. Ég hélt ég myndi ekki vinna aftur. Nú væri ég bara orðin of gömul. Ég þyrfti að drífa mig að finna vinnu. Fastráða mig,“ segir Charlotte. „Það var auðvitað engin skyn- semi í þessar panikk hjá mér. Með óttanum fylgdi ákveðin uppgjöf. Ég gafst svolítið upp. Fannst ég eins og Sýsifos, rúllandi hnullungi upp sama fjallið,“ segir hún. „Þetta var ekki algjör uppgjöf, þetta var smá tilvistarkrísa. En krísan tók fljótt enda þegar ég varð hugfangin af dauðanum,“ segir Charlotte. Rannsakar dauðann „Einn daginn kom þessi hugmynd sterkt til mín: Þú verður að gera sýningu um dauðann. Ég fór strax að rannsaka dauðann. Lesa mér til. Skoða allt í lífinu með augum dauð- ans. Hann var nefnilega ekki mjög nálægt mér. Stærsti missir minn var þegar Brynja, móðir Benedikts, dó. Andi hennar svífur einmitt hér yfir í Skemmtihúsinu. Hún dó árið 2008, þá var ég kasólétt að tvíburum. Hún náði því miður aldrei að hitta tví- burana. Eitt lagið í kabarettinum Þetta er lífið var tileinkað henni Brynju,“ rifjar Charlotte upp. „Ég fann mig í stiganum á leið niður. Það var Carl Jung sem setti fram myndlíkinguna um æviskeið- ið sem gang upp og niður stiga. Við klifrum upp þar til æviskeiðið er hálfnað, svo höldum við niður. Næsta stopp dauðinn! Og hvernig líður manni á leið niður stigann? Hvernig getur manni liðið? Ég er að hugleiða um þetta, mér finnst að einmitt á þessu æviskeiði þurfi maður ekki að þóknast neinum öðrum en sjálfum sér. Ég þarf auð- vitað að lifa, vinna mér inn tekjur. Að skapa og miðla eru líka grunn- þarfir hjá mér. Ég get hins vegar valið mér allt annað og meira frels- andi viðhorf en áður. Og svo þarf maður að læra að sleppa! Það er ein af stóru lexíum þessa lífs,“ segir Charlotte. Betri eða bitrari? „Við höfum hvort sem er ekki val. Við þurfum að sleppa. Við missum vini og ættingja. Ég missti vinkonu mína úr krabbameini. Við þurfum að sleppa börnunum okkar. Og í lokin þurfum við auðvitað að sleppa tökunum á lífinu sjálfu. En kannski þurfum við líka að sleppa hugmynd- um um heiminn og okkur sjálf,“ nefnir Charlotte og segist finna það sjálf að hún þurfi að sleppa ýmsu sem hún vilji ekki burðast með. „Það er svo margt sem þjónar engum til- gangi að draga með sér,“ bendir hún réttilega á. „Vinkona mín sem ég missti var ákaflega gjafmild. Ég ákvað að taka þann eiginleika og láta hana lifa í gegnum hann. En sumu verðum við að sleppa. Til að verða frjáls. Viltu verða betri manneskja eða L istakonan Charlotte Bøving er Íslendingum að góðu kunn. Hún hefur búið á Íslandi samanlagt í fimmtán ár með eigin-manni sínum, Benedikt Erlingssyni leikstjóra. Hún átti að baki glæstan feril í dönsku leik- húsi þegar hún flutti fyrst hingað til lands árið 1999. Hún og Benedikt bjuggu í nokkur ár í Kaupmanna- höfn stuttu eftir aldamótin. Þau fluttu alfarið hingað heim árið 2007 og búa nú í Mosfellsbæ. Það er ekkert einfalt mál fyrir leikara að byggja upp nýjan feril, á nýju tungumáli. Að verða allt í einu innflytjandi. Charlotte hefur aldreið látið það stöðva sig og notað hindranir í veg- inum og líf sitt sem efnivið. Hún var tilnefnd til Grímunnar fyrir einleik sinn Hina smyrjandi jómfrú árið 2003. Í einleiknum byggði hún á reynslu sinni af því að flytjast til Íslands. Í öðru verki frá árinu 2010, kabarettinum Þetta er lífið – og nu er kaff en klar heldur hún áfram að nota lífshlaupið sem efnivið. Verkið er nokkurs konar óður til lífsins og Charlotte hlaut Grímutil- nefningu 2011 fyrir besta sönginn. „Ég dey“ er þriðji einleikur Char- lotte og blaðamaður fær tækifæri til þess að skyggnast inn í sköpunar- ferlið. Einleikurinn verður fluttur í janúar á næsta ári og Charlotte ætlar að takast á við dauðann sjálfan frá sjónarhóli lífsins. Í stellingum vísindamanns Charlotte segist setja sig í stellingar vísindamanns þegar hún semur leikverk og undanfarin ár hefur hún skoðað allt mögulegt með augum dauðans. Hversdagslegar Bónusferðir og hversu mikið heim- iliskötturinn fær að éta snýst upp í hugleiðingar um dauðann. „Ég var nýorðin 50 ára þegar þeirri hugsun laust niður að ég myndi deyja. Hvers vegna í ósköp- unum hafði ég ekki hugleitt áður að ég myndi deyja?“ segir Charlotte sem býður blaðamanni í aðsetur sitt í miðborginni, Skemmtihúsið á Laufásvegi 22A. Hús sem hjónin Brynja Benediktsdóttir og Erlingur Gíslason byggðu sér sem vinnu- stofu, stúdíó, gallerí og athvarf fyrir leiklistarstarfsemi. Eftir að þau féllu bæði frá er húsið enn að miklu leyti notað í þágu leiklistarinnar. Char- lotte semur og æfir í húsinu. „Hér get ég æft mig og skrifað. Leikhúshópurinn sem ég vinn með, Ratatam, æfir hér. Ég ætla líka að halda námskeið hér,“ segir Char- lotte sem hefur starfað sem mark- þjálfi frá árinu 2010. „Hér er ég alla daga að hugsa um dauðann,“ segir hún og starir á blaðamann og skellir svo upp úr. Hún hefur einstakt lag á því að nota minnstu svipbrigði til að kalla fram það broslega. Hélt ég myndi ekki vinna aftur „Ég átti stórafmæli fyrir fjórum árum og varð þá svo hissa á því að fortíðin var orðin lengri en fram- tíðin. Ég hafði farið í gegnum lífið hratt, eiginlega á handahlaupum. En þarna stansaði ég og hugsaði: Hei! Hvers vegna er ég eiginlega að þessu? Hvers vegna hef ég ekki horfst í augu við það fyrr að ég þarf að deyja? Að ég þurfi að fara héðan,“ segir Charlotte um kveikjuna að leikverkinu. Dauðinn fór að smeygja Af oföldum ketti og dauðanum í Bónus Viltu verða betri manneskja eða bitrari? Spyr Charlotte sem veltir fyrir sér dauðleikanum. FRéttaBlaðið/EyþóR Ef þú gerir aðeins einn hlut á dag sem þú hefur aldrei gert áður þá breytist margt, segir leik- konan og leikstjórinn Charlotte Bøving sem gefur innsýn í ferlið við að semja verk um dauðann. Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Ég fór að sækja um stjórnunarstöður hÉr og þar. komst oft áfram, fÉkk viðtal en fÉkk svo ekki starfið. Ég hÉlt Ég myndi ekki vinna aftur. 1 5 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r24 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð 1 5 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :1 1 F B 1 0 4 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 D 6 -F 0 0 4 2 0 D 6 -E E C 8 2 0 D 6 -E D 8 C 2 0 D 6 -E C 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 0 4 s _ 1 4 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.