Víkurfréttir - 26.02.1981, Blaðsíða 1
4. tbl. 2. árg. Fimmtudagur 26. febrúar 1981
FEÉTTIE
Félagslegar íbúðir í Keflavík:
Útboðið hljóðaði upp á 300
millj. gkr. - Kemur til með
kosta 600 millj. gkr.
6. febrúar sl. rann út umsókn-
arfrestur um félagslegar íbúðir
sem í byggingu eru á vegum
Keflavíkurbæjar aó Heiðar-
hvammi 2-4. Hér er um að ræða
12 íbúðir, 2ja og 3ja herbergja.
Áætlað er að íbúðunum verði
skilað fullgerðum utan sem inn-
an i lok þessa árs.
16 umsóknir bárust og verður
tekin ákvörðun um úthlutun á
næstunni, en þeir ganga fyrir um
úthlutun sem ekki eiga íbúð fyrir
eða búa í ófullnægjandi hús-
næði og hafa haft lágar tekjur
undanfarin ár.
Nokkrir hafa hringt til blaðsins
og kvartað yfir háu verði á þess-
um íbúðum og bent á að það sé
ekki auðvelt fyrir fólk með lágar
tekjur að eignast þessar íbúðir,
sem þó eru sagðar byggðar á fé-
lagslegum grundvelli.
Við höfðum samband við Guð-
jón Stefánsson, formann bygg-
ingarnefndar hússins, og spurð-
um hann hvað þessar íbúðir
kæmu til með að kosta:
,,Satt best að segja veit það
enginn," sagði Guðjón. „Hús-
næðismálastofnunin reiknar
verðið út með einhverjum lík-
indareikningi, og þá ferð það
Framh. á 10. sffiu
lc 10 80 0» 0> Oi
Ný sundlaug
í Keflavík?
Að undanförnu hafa átt sér
stað miklar umræður í iþrótta-
ráði um íþróttamannvirki í Kefla-
vík, en í þessum umræðum hefur
oft borið á góma bygging nýrrar
sundlaugar í Keflavík. Af þvítil-
efni var eftirfarandi bókun gerð é
fundi íþróttaráðs 31. jan. sl.:
„íþróttaráð leggur til við bæj-
arstjórn Keflavíkur, að hún hlut-
ist til að hið fyrsta verði hafist
handa um staöarval og undir-
búning fyrir byggingu útisund-
laugar".
|80 80 80 0> 0» 0>l
Sundhöllin
máluð
án leyfis
Byrjafi er afi steypa upp 3. h»S fjölbýllshússlns
VÍTAVERT KÆRULEYSI
Nokkrir aðilar hafa hringt til
blaðsins og látið í Ijós mikla
óánægju með frammistööu
Keflavíkurradíós í óveðrinu sem
gekk yfir mánudagskvöldið 16.
febrúar sl„ en þá var enginn
starfsmaður á vakt við talstöð-
ina frá kl. 19 um kvöldið, þrátt
fyrir að talstöðin eigi að vera
opin til kl. 23.
Ekki voru allir bátar komnirað
landi þegar óveðrið skall á og
það getur vart talist verjandi af
starfsmanni radíósins, sem á
vakt var, að hverfa til síns heima,
þó svo að rafmagnið hafi farið af
klukkan að verða 8. Það kom þó
aftur á í u.þ.b. 20 mínútur seinna
um kvöldið og þá hefði verið
hægt að hafa samband við þá
báta sem enn voru ókomnir að
landi. Það kemur óneitanlega illa
við fólk sem á sína nánustu úti á
sjó i veðri sem þessu, að þegar
það hringir til að fá upplýsingar
um þá, er enginn við til að veita
upplýsingar, - allt lokaö.
Ekki fær maður séð hvernig
vaktmaðurinn vissi að rafmagns-
laust yrði mest alltkvöldiðogalla
nóttina, nema hann búi þá yfir
einhverjum yfirnáttúrulegum
hæfileikum, og ef svo er þá væri
fengur fyrir almannavarnir að fá
hann til starfa hjá sér.
Það kom fram hjá þeim aðilum
sem samband höfðu við blaðið,
að þeir furðuðu sig áaðekki væri
Ijósavél hjá jafn þýðingarmikl-
um öryggisaðila eins og Kefla-
víkurradíó er fyrir sjómenn hér,
og vildu þeir koma þeirri ósk á
framfæri við Útvegsmannafé-
lagið, að það gerði strax ráðstaf-
anir til að verða sér úti um slíkt
tæki sem fyrst.
TIL HAMINGJU, NJARÐVÍKINGAR!
Ungmennafélag Njarðvikur varð íslandsmeistari í körfuknattleik árið 1981, og er óha&tt að segja að þar
hafi langþráður draumur jjeirra ræst. Eins og flestir vita þá hafa þeir oft nú (seinni tið verið með aðra
höndina á bikarnum en aldrei tekist aðklófesta hannfyrren nú. VtKUR-fréttiróska þeim til hamingju með
sigurinn. - Sjá fleiri myndir í opnu.
Á fundi bæjarráðs Keflavíkur
3. febr. sl. lagöi bæjarstjóri fram
reikning frá málaraverktaka hér í
bæ vegna málningarvinnu í
Sundhöll Keflavíkur. Verkið var
unnið án samþykkis eftirlits-
manns, en upphæð reiknings-
ins var kr. 22.211,50. Lýsir bæjar-
ráð furðu sinni á því að forstöðu-
maður sundhallar skuli hafa látið
vinna verkið án samþykkis við-
haldsdeildar.
80 80 80 0> 0> 0>
Fóstrur og þroska-
þjálfar í Keflavík:
Segja upp
störfum
Á fundi bæjarráðs 10. febr. sl.
las bæjarstjóri uppsagnarbréf frá
fóstrumog þroskaþjálfum ádag-
vistunarheimilum Keflavíkur-
bæjar, þar sem þau segja uþp
störfum frá og með 1. febrúar
1981, að tilskildum 3ja mánaða
uppsagnarfresti. Ástæðan fyrir
uppsögninni er sú að þau telja
sig starfa við óviðunandi kjör.
80 80 80 O Oj aT
Orgel I Ytri-
NJarðvíkurkirkju
Sérstök nefnd með Helga
Bragason organista íbroddi fylk-
ingas. kannar nú orgelkaup í nýju
kirkjuna. Ljósteraðhérerumað
ræða gríðarmikið átak, því sam-
kvæmt lauslegri athugun kostar
hljóöfæri sem hentar kirkjunni á
bilinu 350-500 þús. kr.