Víkurfréttir - 22.10.1981, Síða 2
'Z F.immtudagur 22. október 1981
Míkur
fCÉTTIC
Ritstjórn og ábyrgöarmenn: Elías Jóhannsson, sími 2931
Siflurjón Vikarsson, simi 2968 Emil Páll Jónsson, sími 2677
St§in'grimur Lilliendahl, sími 3216 Páll Vilhjálmsson, sími 2581
Einar Páll Svavarsson
Ritstj. og augl.: Hringbraut 96, Keflavik, sími 1760
Setning og prentun: GRÁGÁS HF., Keflavík
Trésmiðja
rwf Keflavíkur sf.
f\ Bolafæti 3, Njarðvík
Símar 3516, 3902 og 1934
Sérsmíðum
ELDHOSINNRÉTTINGAR, BAÐINNRÉTTINGAR
FATASKÁPA og SÓLBEKKI.
Föst verðtilboð - Vönduð vinna - Hagstætt verð.
KEFLAVÍK
Útsvör
Aðstöðugjöld
Fjórði gjalddagi eftirstöðva útsvara og að-
stöðugjalda er 1. nóvember n.k.
Gerið skil á gjalddögum og forðist þannig
dráttarvexti og önnur óþægindi.
Innheimta Keflavíkurbæjar
Höfum hin frábæru
SEMPERIT
radial-vetrardekk
Einnig aörar tegundir nýrra og sólaðra
dekkja.
AÐALSTOÐIN h.f.
Bílabúð — Sími 1517
VÍKUR-fréttir
Frá v.: Eigendur Rekstrartækni sf., Kristján Sigurgeirsson og Gísli Er-
lendsson, og Már Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóri í Keflavik.
Rekstrartækni sf.
opnar í Keflavík
I byrjun þessa mánaöar opn-
aöi rekstraráðgjafa- og tölvu-
þjónustufyrirtækið Rekstrar-
tækni sf. i Reykjavík, skrifstofu
að Hafnargötu 37a, í Keflavík.
Með því hyggst fyrirtækið flytja
til heimabyggðar megnið af
þeirri vinnu, sem unnin er fyrir
fyrirtæki á Suðurnesjum, auk
þess að opna fleiri fyrirtækjum
möguleika á að nýta sér þjón-
ustu Rekstrartækni sf. Teljaverð-
ur verulegt hagræði fyrir við-
skiptavinina að geta nu snúið sér
til skrifstofu á svæðinu með
þjónustu, frekar en sækja hana
til Reykjavíkur. Á þetta sérstak-
lega við rekstrarráðgjöf og
tækniþjónustu.
Á undanförnum tíu árum hefur
starfsemi Rekstrartækni sf. á
Suðurnesjum einkum beinst að
fyrirtækjum tengdum sjávarút-
vegi. Má þar nefna, að fyrirtækið
hefur gegnt þýðingarmiklu hlut-
verki við hönnun, viðhald og þró-
un afkastahvetjandi launakerfa
(bónus) í frystiiðnaðinum. Auk
þess hefur Rekstrartækni sf.
beitt sér fyrir ákveðnu samstarfi
þeirra frystinúsa, sem njóta þjón-
ustu fyrirtækisins í formi mán-
aðarlegra funda, þar sem stjórn-
endur frystihúsanna bera saman
bækur sínar og skiptast á sam-
anburðarhæfum upplýsingum.
Á sama tíma hafa nokkur iðn-
aðar- og verslunarfyrirtæki á
svæðinu notið þjónustu fyrir-
tækisins, m.a. hefur eitt iðnfyrir-
tæki verið tengt tölvubúnaði
Rekstrartækni sf. um símalínu
um nokkurt skeið.
Rekstrartækni sf. í Keflavík er
þannig ætlað að veita alhliða
rekstrarráðgjöf og tækniþjón-
ustu með tæknimönnum stað-
settum í Keflavík, í nánu sam-
starfi við tæknideild Rekstrar-
tækni sf. í Reykjavík.
( tölvuvinnslu stendur við-
skiptavinum til boða allur hug-
búnaður Rekstrartækni sf. í
Reykjavík, auk aðgangs að öfl-
ugum tölvubúnaöi fyrirtækisins.
Með því að færa þannig starf-
semina nær viðskiptavinunum
vonast Rekstrartækni sf. til þess
að geta enn betur sinnt þjónustu-
hlutverki sínu við fyrirtæki á sviði
iðnaðar, verslunar og þjónustu,
auk fiskvinnslu og útgerðar.
Framkvæmdastjóri Rekstrar-
tækni sf. i Keflavík er MárSvein-
björnsson rekstrartæknifræð-
ingur.
Dagstjarnan og Bergvik:
Enn bilaðar
Eins og fram kom hér í blaðinu
fyrir nokkru, biluðu báðir skut-
togararnir Dagstjarnan og Berg-
vík í ágústbyrjun, og var áætlað
að viðgerð tæki hátt á annan
mánuð. Viðgerð á aðalvélum
beggja skipanna hefur hins
vegar dregist það, að báðir tog-
ararnireru enn i slipp til viðgerð-
ar og hafa því verið frá veiðum á
þriðja mánuð, sem er mjög baga-
legt fyrir útgerð þeirra.
Fisk-Ex sf.
Karl Ketill Arason, Njarðvík,
Einar Þór Lárusson, Grindavík,
Tor Jón Nilsenog JóhannesAra-
son, Garði, hafa stofnað sam-
eignarfélag í garði undirnafninu
Fisk-Ex sf.
Tilgangur félagsins er útflutn-
ingur sjávarafurða, svo og inn-
flutningur sjávarefna, tækja og
annars til verkunar sjávarafurða.
Framkvæmdastjóri er Einar Ara-
son, Njarðvík.
Leiðrétting
( gjafa- og áheitalista Þroska-
hjálpar i síðasta blaði var mein-
leg villa. Þar var sagt frá 300.000
kr. gjöf frá Svövu Árnadótturog
Sigurbirni L. Guðnasyni.
Hið rétta er, að gjöfin er frá
Svövu ÁrnadótturogGuðnaSig-
urbjörnssyni, Faxabraut9, Kefla-
vík, til minningar um Sigurbjörn
L. Guðnason og Sigriði Þ. Sig-
urbjörnsdóttur.
Þroskahjálp biður viðkomandi
aðila velvirðingar á þessum mis-
tökum.