Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.10.1981, Blaðsíða 9

Víkurfréttir - 22.10.1981, Blaðsíða 9
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 22. október 1981 9 Góður árangur hjá UMFN ( ársskýrslu Ungmennafélags Njarðvíkur 1980-81 kemurfram, að UMFN hefur aldrei náð eins góðum árangri á einu tímabili í eins mörgum greinum og nú. Verður hér getið um árangur deildanna sem unnist hefur á þessu timabili: Karfa. Meistaraflokkur ís- landsmeistarar (úrvalsdeild) og UMF(-meistarar. 5. fl. [slandsmeistarar og skólameistarar. 2. fl. kv. skólameistarar. Knattspyrna. Meistarafl. íslandsmeistarar (3. deild) og Suðurnesjameistar- ar innan- og utanhúss. 4. fl. Suðurnesjameistarar inn- an- og utanhúss. 2. II. Suðurnesjameistarar inn- an- og utanhúss. Handbolti. 4. fl. drengja (slandsmeistarar. Sund. Sonja: 2 UMF(-met, auk þess að fá bæði stigabikarinn og af- reksbikarinn i sundi kvenna Eðvarð: 15 Islandsmt í hinum ýmsu greinum yfir tímabilið. Á UMFÍ-mótinu 1 gull, 2 silfur og 1 brons. Á innanhússmeistaramóti íslands 4 gull og 1 silfur. Á (s- landsmeistaramótinu 1 gull (og er þar með handhafi 1 fslands- mets, þ.e. í 200 m baksundi). Kollot-keppnin 1 silfur f.h. ís- lands (landsliðsins). Borgar: 2 gull og 2 siIfur á ald- ursflokkamótinu. Þórður: 2 silfur á UMF(-mót- inu. Á (slandsmeistaramótinu 1 brons. Aldursflokkamót 1 silfur og 1 brons. Eignirnar 75, sem forkaupsréttur er á Tölvustýrð jafnvægisstilling Nú er runninn upp sá tími sem bifreiðaeigendur skipta frá sumar- dekkium vfir á vetrardekkin. Hiá Hjólbarðaþiónustunni á Aðalstöö- inni hefur nú verið tekin i notkun tölva til jafnvægisstillingar. Að sögn Bjarna Valtýssonar er mikið hagræði með tilkomu þessa tækis og nefndi hann sem dæmi að áður þurfti að aka á hjólbörðunum í nokkurn tíma áður en ballansering gat farið fram, en með tilkomu tölvunnar er það nú óþarfi. Vélin tekur öll venjuleg fólksbíla- og jeppa- dekk, allt upp í 50 kg. Hitaveita Suðurnesja: Lækkandi hitastig Mikil óánægja ríkjandi meðal neytenda Bæjarstjórn Keflavíkur krefst skýringa Eins og sagt var frá í siðasta blaði hefur Keflavíkurbær tekið forkaupsrétt í 75 eignum í Kefla- vík. Til að forðast allan misskiln- ing er rétt að taka fram, að ekki er hér verið að fordæma töku for- kaupsréttarins, en hins vegar verið að benda á að rétt hefði verið hjá bænum að tilkynnaeig- endum eignanna hvað um var að ræða, t.d. með dreifibréfi, sem ekki er mikið fyrirtæki að útbúa. Ekki dugar að auglýsa slíka breytingu í Lögbirtingarblaðinu eða láta fasteignasala í Keflavík vita um hana. Með nægilegu upplýsingastreymi hefði verið hægt að koma í veg fyrir leiðindi sem skapast þegar þinglýsa á frjálsri sölu á ji>essum eignum. Heitt vatn til báta? Að undanförnu hafa staðið yfir viöræður milli Landshafnarinnar og Hitaveitu Suðurnesja, um að HS komi heitu vatni á hafnar- garðana í Keflavík og Njarðvík. Virðist ekkert vera þvi til fyrir- stöðu af hálfu Hitaveitunnar. Rætt er um að Hitaveitan sjái um sölu og innheimtu gjalda vegna heita vatnsins, en höfnin um mann til að afgreiða það. Stofnar SSS eigið tryggingafélag? Nú nýlega samþykkti bæjar- stjórn Njarðvíkur eftirfarandi til- lögu frá Áka Granz: „Bæjarstjórn Njarðvíkur sam- þykkir að fara þess á leit við stjórn SSS, að hún láti fara fram athugun á þvi, hvorttímabærtsé, vegna breyttra aðstæðna með til- komu hitaveitu, að endurskoða brunatryggingar sveitarfélag- anna með það í huga að stofna eigið tryggingafélag." Verður nú birtur listi yfir þess- ar eignir. Forkaupsrétturinn skv. auglýsingu Félagsmálaráðu- neytisins frá 23. janúarsl., gildir á eftirtöldum lóðum og öðrum fasteignum í Keflavík: 1. flokkur: Þar sem eingöngu eru íbúðarskúrar á lóðum og hús hafa ekki verið byggð á: Hringbraut 58 Birkiteigur 19 Birkiteigur 5 Smáratún 20 Faxabraut 32B 2. flokkur: Þar sem hús standa út í götustæðum og valda slysa- hættu á gatnamótum: Kirkjuvegur 14 Kirkjuvegur 15 Kirkjuvegur 35 Kirkjuvegur 36 3. flokkur: Þar sem hús standa út í götustæðum: Aðalgata 2, 6, 8, 12, 14, 18. Kirkjuvegur 27, 28, 44, 10. 4. flokkur: Þar sem eru verk- stæðishús inni i byggingahverf- um: Suðurgata 26 Vatnsnesvegur 29-31 Sólvallagata 7 Heiðarvegur 26. 5. flokkur: Óbyggðar lóöir í einkaeign: Birkiteigur 4 og 6 (áður Mel- staður, eign Jóns Brandss.). 6. flokkur: Byggð hús á eignar- lóðum innan landareignar Kefla- víkurbæjar, þar sem æskilegt væri að bærinn eignaðist lóðirn- ar og gæfi út leigusamning: Tjarnargata 6 Vallargata 4, 6, 15, 16, 17, 18, 19, 20, 22, 23, 24, 25, 26, 27, 28, 31. Túngata 9, 10, 12, 13, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 23. Kirkjuvegur 1, 5, 17, 18, 28, 34, 36, 37, 40, 44. Hafnargata 16, 18, 27a. Aðalgata 11, 16a, 17. Vesturgata 5, 11, 13, 14a, 15. Á fundi bæjarstjórnar Kefla- víkur sl. þriðjudag spunnust um- ræður um Hitaveitu Suðurnesja, en að undanförnu hefur fólk orð- ið vart við mjög lækkandi hita- stig, eða allt niður í 65° C þar sem verst lætur. Jafnframt hefur borið á miklum óhreinindum i vatninu. Vegna þessa máls samþykkti Hitastig á vatni Hitaveitunnar hefur mjög veriðtil umræðu und- anfarnar vikur. Umræður um Hitaveituna magnast ævinlega í kuldatíð, enda veröa menn þess þá fyrst varir ef einhverjar trufl- anir eru í kerfinu eða vatns- skammtur er of litill. ( þessu tilviki bætir það ekki um að mönnum verður mjög tíð- rætt um ,,lágt“ hitastig á vatninu. Vatnshiti heita vatnsins, sem fer frá Svartsengi iátttil byggðanna, hefur lengst af verið yfir 90°C, en hitastig þetta hefur stjórnast af fjórum framleiðslurásum í varmaorkuverinu í Svartsengi. Til þess að skýra þetta hitastig nánar skal á það bent, að allt ferskvatn sem kemur frá orku- verinu er hitað upp í 105°C, til þess að eyða súrefni og kolsýru, sem verkar tærandi á málma, en siðan er það kælt i 85“ C áður en það er sent til byggðanna. Af ýmsum tæknilegum ástæðum hefur aldrei veriö settur upp kæli- búnaður við tvær rásirnar, svo að blöndunarhitastigiö frá Svarts- engi hefur verið 94-96° C. Þetta bæjarstjórn eftirfarandi tillögu: „Bæjarstjórn Keflavíkur sam- þykkir að beina þeim tilmælum til stjórnar Hitaveitu Suðurnesja, að hún sendi bæjarstjórn Kefla- víkur greinargerð um ástæður þess að hitastig vatns hefur reynst mun lægra en til hefur verið ætlast. Einnig óskast gerð grein fyrir óhreinindum í neyslu- vatni í seinni tíð.“ hitastig er hættulega hátt, enaa brot á byggingareglugerð frá 1979, gr. 8.1.15 þar sem segir: „Yfirborðshiti ofna má ekki vera hærri en 80°C“, og gr. 8.1.16: „Hitastig heits neysluvatns má ekki vera yfir 80°C“. Það er fyrst með tilkomu Orkuvers II í Svarts- engi aö hægt er að blanda vatnið niður í „rétt" hitastig. Augljóst er að svona mikil lækkun á hitastigi gerir vart við sig hjá notendum, ekki síst þeim sem hafa verið með vatns- skammt í algjöru lágmarki. Því hefur verið haldið fram, aö teng- ing Keflavíkurflugvallar væri or- sök til hins lækkaða hitastigs. Þetta á skv. framansögðu ekki við rök að styðjast. Stefnt er að því að notendur sem næst eru dælustöðinni á Fitjum fái vatnið 80°C heitt. Hitt er svo óhjákvæmilegt, að vatnið skilar ekki sama hita til þeirra sem fjær búa. Þar kemur til ein- falt lögmál eölisfræðinnar, sem ekki er hægt að breyta - því miður. Ingólfur Aöalstelnsson Greinargerð frá Hitaveitunni vegna hitastigs á hitaveituvatninu

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.