Víkurfréttir - 22.10.1981, Blaðsíða 12
12 Fimmtudagur 22. október 1981
VÍKUR-fréttir
Handknattleikur:
Er dómgæslan í molum?
Tveir leikir í hahdbolta áttu að
fara fram í íþróttahúsinu i Kefla-
vík sl. laugardag. Voru það leikir
ÍBK og Reynis i meistaraflokki,
og leikur (BK og Breiðabliks í
meistaraflokki kvenna. Eru báðir
þessir leikir i íslandsmótinu.
Þegar leikirmr attu að hefjast
kom í Ijós að dómararnir voru
ekki mættir. Eftir mikla leit fund-
ust þeir í hópi áhorfenda í
(þróttahúsinu i Hafnarfirði.
Sögðust þeir hafa tilkynnt forföll
til formanns Dómarafélags HS(.
Átti Dómarafélagið að útvega
nýja dómara í stað þeirra., en af
einhverjum ástæðum fórst það
siðan fyrir. Var leikjunum síðan
frestað. Óvenjumargir áhorfend-
ur voru mættir á staðinn til að
fylgjast með leikjunum.
Það er skammarlegt að félög
séu að leggja t i ferðakostnað,
húsaleigu o.fl. ,fl. fyrir leiki sem
settir hafa verið á af mótanefnd
HSÍ, leikmenn mættir á staðinn
og allt tilbúiuð af hálfu felag-
anna, en þa skuli það vera
eitthvað innra sambandsleysi í
dómarafélaginu sem veldur þvi
ekki aðeins núna helduroft áður.
að leikjum þarf að fresta vegna
þess að dómarar mæta ekki.
Vatnsveituframkvæmdir ofan Eyjabyggöar:
Endurbætur á vatnsgeymí
og virkjun borholu
Á fundi gatnagerðarnefndar 7.
okt. sl. var minnst á nauðsyn
þess, í sambandi við verkefni
næsta árs, að huga aö endurbót-
um á vatnsgeymi bæjarins ofan
Eyjabyggðar og virkjun borholu
sem þar hefur verið boruð fyrir
nokkru. Samkvæmt skýrslu sem
samin hefur verið af Verkfræði-
stofu Sig. Thoroddsen um mál-
efni vatnsveitunnar dags. í febrú-
ar sl., þarf að byggja 1200m3
miðlunargeymi og virkja áður-
nefnda borholu ofan Eyjabyggð-
ar, Verkfræðistofan áætlar
kostnað við smiði geymisins um
1.5 millj. kr.
Þar sem verk þetta þarf veru-
legan undirbúning, leggur
nefndin til að farið verði að und-
irbúa verkefnið. Nuverandi
geymir ofan Eyjabyggðar hefur
bilað og þurft viðgeröa við, og
mun nú leki vera kominn að
honum aftur.
Vatnstankurinn ofan Eyjabyggðar er farinn aö leka
Látið okkur sjá um veisluna
Pantanasíminn er 1777,
mánudaga til föstudaga
kl. 9-12.
tþlðnasm
Fiskifélagsdeild Keflavíkur og Njarðvíkur
AÐALFUNDUR
deildarinnar verður haldinn í Olíusamlags-
húsinu, Keflavík, sunnudaginn 25. október
kl. 14.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf og mál sem
varða Fiskiþing, s.s. fiskveiöistefna
1982 ° fl Stjórnin
Trésmiöja
■ Keflavíkur sf.
I Bolafæti 3, Njarðvík
Símar 3516, 3902 og 1934
Sérsmíðum
ELDHÚSINNRÉTTINGAR, BAÐINNRÉTTINGAR
FATASKÁPA og SÓLBEKKI.
Föst verðtilboð - Vönduð vinna - Hagstætt verð.
MANNVIRKI SF.
Bygglngaverktakar
Hafnargötu 17, Keflavfk
Sfml 3911
Gerum föst tilboð i
mótauppslátt, utanhúss-
klæðningar, þakviðgerðir
og aðra trésmiðavinnu.
Skrifstofan er opin alla virka
daga frá kl. 10-12.
HITAVEITA
SUÐURNESJA
Þjónustu-
síminn er
3536
TEPPAHREINSUN
Tökum að okkur hreinsun áteppum, með nýj-
um og góðum vélum. - Uppl. í síma 2564.