Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.10.1981, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 22.10.1981, Blaðsíða 14
Míkur fCETTIC [ Fimmtudagur 22. október 1981 ] SPARISJÓÐURINN er lánastofnun allra Suöurnesjamanna. Framsóknarflokkurinn í Keflavík klofinn Sér framboð ungliöa í næstu bæjarstjórnarkosningum Undanfarnar vikur hefur sá orðrómur gengið fjöllunum hærra, að ungliðar innan Fram- sóknarflokksins hyggðust segja skilið við móðurflokkinn. Þessi orðrómur hefur nú verið stað- festur og er formlega séð orðinn að veruleika. Kemur þetta m.a. fram í viðtali sem blaðið átti við Valdimar Þorgeirsson annars staðar i blaðinu. Einnig hafa ung- liðar Framsóknarflokksins sagt sig úr fulltrúaráði flokksins. Auðvitað vakna ýmsar spurn- ingar við slík tímamót sem þessi. T.d. hvaða hópur sé hér á ferð- inni, hvers vegna þeir kjósi að segja skilið viðflokkinn og hvaða stefnu þeir hyggjast taka. Að sögn Friðriks Georgsson- ar, eins þeirra er að klofningi þessum standa, studdu „ungir Framsóknarmenn þetta eins og þeir lögðu sig." Sagði hann enn Fundur um iðnþróun á Suðurnesjum Iðnaðarmannafélag Suður- nesja efnir til fundar um iðnþró- un á Suðurnesjum í kvöld, fimmtudaginn 22. okt., kl. 20.30 í Iðnaðarmannasalnum að Tjarn- argötu 3. Frummælandi verður Þórir Aðalsteinsson, nýráðinn iðnþróunarfulltrúi Suðurnesja. Tilgangurinn með þessum fundi Iðnaðarmannafélagsins er sá, að koma á sambandi milli þeirra aðila sem áhuga hafa á, og iðnþróunarfulltrúans, sem er boðinn og búinn til þess að að- stoða menn við endurskipulag eða nýiðnað. Að máli Þóris loknu verður orðið gefið laust og mun hann svara fyrirspurnum ef fram koma. lönaðarmannafélagið væntir þess að sem flestir sæki fund þennan og að þarna skapist um- ræður og að einhver sjónarmið komi fram um þessi mál. Öllum er heimill aðgangur. Hver á fallega jólamynd? Víkur-fréttir auglýsa hér með eftir fallegri jólamynd i lit, til birt- ingar á forsíðu jólablaðsins. Margir taka fallegar myndir um jólin og ef þeirvildu láta blaðinu i té myndir, þá væri það þegið með þökkum. Þær mega hvort tveggja vera á pappír eða slides. fremur að hér væri á ferðinni stór hópur ungra manna sem telja samtryggingu allra flokka hér á Suðurnesjum orðna of hættu- lega. Benti hann á að ungir Fram- sóknarmenn heföu lagt fram til- lögur í fulltrúaráðinu sem beind- ust í átt til aukins lýðræðis, en þær hefðu allar verið felldar. Þvi var ekki til annars bragðs að taka en að segja sig úr því. Innan flokksins sagði Friðrik að deilan snerist um „ólýðræðis- leg vinnubrögð." Vinnubrögð sem samræmdust ekki stefnu flokksins. „Við teljum að Fram- sóknarflokkurinn hér hafi verið of lengi í stjórn með ihaldinu, teljum að þeir séu komnir of langt frá stefnu flokksins. Þeir eru búnir að vera það lengi, að vart má á milli sjá hvort þeir séu í Framsóknar- eða Sjálfstæðis- flokknum." Eins og fram kemur í viðtalinu við Valdimar Þorgeirsson í opnu, hyggst hópur þessi efna til sér- staks framboðs í næstu bæjar- stjórnarkosningum Um örlög Framsóknarflokksins hér í bæ segir Valdimar: „Það er harla lítil von á að til verði ungir menn til að taka við, þar sem kjarninn hefur nú þjappað sér saman um hið nýja framboð." Guðjón Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins: Sér framboð gildir sama og úrsögn úr flokknum [ tilefni af ummælum Valdim- ars Þorgeirssonar og Friðriks Georgssonar höföum við sam- band við Guðjón Stefánsson og inntum hann eftir afstöðu til þessa máls. Til að byrja með spurðum við hvort rétt væri að FUF hefði sagt sig úr fulltrúa- ráðinu? ,,Já, þeir hafa sagt sig úr full- trúaráði flokksfélagsins í Kefla- Er þetta stór hópur? „Hann hefur ekki verið fjöl- mennur undanfarið." Þá spurðum viö hvort þetta þýddi úrsögn þessara aðila úr flokknum. „Ekki held ég það.“ Þá spurðum við hvort sérstakt fram- boð þessa hóps þýddi hið sama og úrsögn úr flokknum. Taldi hann svo vera. Því næst spurðum við Guðjón hver væri rótin að þessu klofn- ingi. „Þetta er ágreiningur milli fé- laga. Þessir ungu menn telja sig ná meiri árangri með klofningi. Það má vera að þeir nái þrótt- meira starfi. Nú, þetta þarf ekki endilega að vera til tjóns, slíkt getur frískað upp á menn." Hvaða áhrif hefur þetta fram- boð á framboð Framsóknar- flokksins? „Engin afgerandi. Ef þeir eru að fara út í sér framboð þá hljóta þeir að hafa eitthvað á bak við sig. Annars hef ég ekki heyrt um sér framboð þessara aðila og sé þannig ekki fyrir mér hver áhrif þetta kann að hafa á framboðs- mál flokksins." Víkurbær opnar í breyttum húsakynnum: Stefnir að lækkun vöruverðs og auknu vöruúrvali Eins og fram kom í síðasta blaði hafa orðið eigendaskipti að Vörumarkaði Víkurbæjar, en Ómar Hauksson, eigandi Kosts, keypti verslunina af Árna Sam- úelssyni. Ómar opnaði versl- unina sl. föstudag eftir miklar breytingar, hafði endaskipti á henni, ef svo má að orði komast. Blaðið hitti Ómar að máli og spurði hann hvaða fyrirkomulag hann myndi hafa varðandi rekst- ur verslunarinnar. „Verslunin verður opin fyrst um sinn á sama tíma og Árni hafði, þ.e.a.s. frá kl. 9-20 alla dagavikunnar, nemaáföstudög- um, þá til kl. 22," sagði Ómar. „Ég stefni að vörumarkaðsversl- un með lægra vöruverði, hér verða helgartilboð og svipað form eins og kjarapallarnir, og fyrirhugað er að vera með verulega gott kjötborð og ávaxta- borð. Ég hef ráðið matreiðslu- mann og kjötmann, sem er jafn- framt lagermaður, og ég vona að ég geti boðið upp á góða kjöt- vöru, og svo salöt o.fl. Einnig verða hér vörukynningar. Þá verð ég með fatnað, vinnufatn- að skólafatnað og jafnvel nær- fatnað og hugsanlega búsáhöld að einhverju leyti, svipað og markaðir erlendis, sem ég hef kynnt mér. Ég hef nú þegaraukið vöruúrvalið hérna og stefni að því að eiga verulegan lager og verða þannig samkeppnisfaer við Framh. á 4. síðu Ómar stefnir að auknu úrvali ávaxta og grænmetis Tilraunaboranir hafnar Nýlega var gengið frá samn- ingum milli Fjárfestingarfélags (slands og Vatnsleysustrandar- hrepps um leigu á landsvæði fyrir laxeldistöð. Tilraunabor- anir eftir vatni eru nú hafnar á vegum Orkustofnunar og er áætlað að bora þrjár holur. Að sögn Sveins Eiðssonar, sveitarstjóra, verður laxeldistöð- in mikil lyftistöng fyrir byggðar- lagið, m.a. skapast þarna 30-40 ný atvinnutækifæri. Sveinn kvaðst ekki geta sagt hvenær framkvæmdir hæfust við sjálfa stöðina, en eins og fram hefur komið í fjölmiðlum þá eru það Fjárfestingarfélagið og banda- riskt fyrirtæki, sem standa að framkvæmdinni.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.