Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.10.1981, Blaðsíða 13

Víkurfréttir - 22.10.1981, Blaðsíða 13
VIKUR-fréttir Fimmtudagur 22. október 1981 13 ATHUGASEMD vegna skrifa Víkur-frétta um ráðningu hjúkrunarforstjóra Hr. ritstjóri Sigurjón Vikarsson Hringbraut 96, Keflavík í blaði yðar, Víkur-fréttum, 8. okt. sl., er því haldið fram að ég ásamt tveimur öðrum stjórnat- mönnum i stjórn Sjúkrahúss Keflavíkurlæknishéraðs, hafi úti- lokað frú Sólveigu Þórðardóttur frá starfi vegna pólitískra skoð- ana hennar. Ég vísa þessum ásökunum algerlega á bug, afstaða mín til ráðningarinnar byggist eingöngu á upplýsing- um sem fyrir lágu um umsækj- endur og umsögn hjúkrunar- ráðs, ásamt tillögu yfirlæknis sjúkrahússins. Til þess að lesendur blaðs yðar megi sjálfir meta málið, óska ég eftir að þér birtið meðfylgjandi gögn: 1. Fundargerð sjúkrahússtjórn ar frá 5.10. sl. 2. Umsögn hjúkrunarráðs frá 15. sept. sl. 3. Umsóknir umsækjenda um stöðu hjúkrunarforstjóra. Ég vona að það sé rúm fyrir þetta í næsta blaði. Virðingarfyllst, Steinþór Júliusson. Fundargerö sjúkrahússtjórnar Umsóknir um starf hjúkrunarfor- stjóra, umsóknarfresturvartil l.sept- ember 1981. Eftirtaldar umsóknir bárust: 1. Sólveig Þórðardóttir, hjúkrunar- fræðingur, Keflavík. 2. Sameiginleg umsókn um stöð- una frá Emelíu Guðjónsdóttur, hjúkr- unarfræðing, Keflavík, og Ernu Berg- mann Gústafsdóttur, hjúkrunarfræð- ing, Keflavík. Formaður las upp umsögn hjúkr- unarráðs um umsækjendur, sem fylg- ir með þessari fundargerð. Þá las formaður upp bréf, sem barst inná fundinn undirritað af nokkrum starfsmönnum. Bréfið fylgir með þessari fundargerð. Rætt var um málið og gerðu stjórn- armenn grein fyrir sjónarmiðum sín- um. Kristján Sigurðsson yfirlæknir, gerði tillögu um að umsóknarfrestur um starfið verði framlengdur og gerð tilraun til að fá hjúkrunarfræðing með Á kristniboösári Viö göngum i Sunnudagaskól- ann. Komdu meö. Börn, foreldr- ar, æskufólk. Sunnudagaskólar Fíladelfiu byrja sunnudaginn 25. október. Njarðvíkurskóli kl. 11 f.h. Grindavikurskóli kl. 2 e.h. Munið svörtu börnin. Verið vel- komin. - Kristján Reykdal almenna gröfuvinnu. Hef til leigu M.F.-70. Uppl. i síma 1423. Jóhann Sigvaldason Nónvörðu 11, Keflavik stjórnunarreynslu, en þar til lausn fáist verði Emelia og Erna ráðnar til bráðabirgða. Fyrst var tekin til af- greiðslu tillaga um aö framlengja um- sóknarfrest um starfið til 1. desem- ber 1981. Tillagan samþ. með þremur atkvæðum gegn einu, einn sat hjá. Þá vartekin til afgreiðslu tillaga um að Emelía og Erna verði ráðnar til 31. desember 1981, en þær hafa gegnt starfinu frá 1. júlí til bráðabirgða. Til- lagan var samþ. með þremur atkv. gegn einu, einn sat hjá. Guðrún Guðbjartsdóttir óskar bókað, að hún hafi greitt atkv. á móti báðum tillögunum. Helga Kristinsdóttiróskarbókaðað hún sat hjá við afgreiðslu beggja til- lagnanna, jafnframt að hún telur heppilegra að ein manneskja gegni starfi hjúkrunarforstjóra. Stjórnin er sammála um aö i aug- lýsingu verði tekið fram að æskilegt sé að umsækjandi hafi lokið fram- haldsnámi í stjórnun. Stjórnin er einnig sammála um að til frambúðar verði starf hjúkrunarforstjóra ekki skipt milli tveggja eða fleiri aðila. Guðrún Guðbjartsdóttir óskar bókað: „Ég lýsi undrun minni á að þessi afstaða skuli tekin, þ.e. stjórnin telur ekki að i framtíðinni skuli starf- inu tvískiþt, en samt er sú ákvörðun tekin til bráðabirgða." Umsögn hjúkrunarráðs Stjórn Sjúkrahúss Keflavíkur- læknishéraðs c/o Eyjólfur Eysteinsson Sjúkrahúsi Keflavíkurlæknishéraðs Hjúkrunarráð tók fyrir á fundi sín- um i dag bréf yðar, dags. 4. seþt. sl. varðandi umsóknir um stöðu hjúkr- unarforstjóra við Sjúkrahús Keflavik- urlæknishérað, og var svofelld bókun gerð á fundinum: „Umsækjendur hafa allir lokið prófi í hjúkrunarfræði og hafa hjúkrunar- leyfi og teljast þvi hæfir til að gegna stöðunni. Enginn umsækjenda hefur lokið framhaldsnámi í stjórnun eða sérfræöinámi í hjúkrunarfræði að loknu prófi frá hjúkrunarskóla, sem telst þó æskilegt, þegar um slíka stöðu er að ræða. Hins vegar lauk Sólveig S.J. Þórð- ardóttir prófi frá Ljósmæðraskóla (sl- lands 30. sept. 1978 og hjúkrunarprófi frá Nýja hjúkrunarskólanum 30. apríl 1981. Reynsla hennar í hjúkrunar- starfi er því sáralitil Hvaö hina tvo umsækjendurna varðar, hafa þeir verulega starfs- reynslu í hjúkrun og hjúkrunarstjórn, eins og fram kemur i umsóknum þeirra, og hlýtur það að vega þungt á metunum, þegar ráða þarf i starf hjúkrunarforstjóra." Vi röi ngarfy I Ist, f.h. hjúkrunarráðs, Ingibjörg R. Magnúsdóttir formaður Umsókn Við undirritaðar sækjum hér með um stöðu hjúkrunarforstjóra við Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs, sem auglýst hefur verið laust til um- sóknar, sbr. auglýsingar í blöðum. Við sækjum í sameiningu um stöð- una sem eitt starf. Með umsókn þessari fylgja hjálagt yfirlit um fyrri störf og Ijósrit af prófskírteinum. Virðingarfyllst, Emelia Guöjónsdóttir Erna Bergmann Gústafsdóttir Yfirlit um fyrri störf Ég lauk námi við Hjúkrunarskóla (slands árið 1957 og vann að námi loknu um nokkurra mánaða skeiö viö Barnadeild Hríngsins í Reykjavik. Flyt til Keflavíkursíðlaárs 1957 og vinn við hjúkrun í heimahúsum og aukavaktir á Sjúkrahúsi Keflavíkurtil ársins 1969 en það ár ræð ég mig i fullt starf við greint sjúkrahús. Gegni starfi forstöðukonu við sjúkrahúsið frá 1971-1977. Frá þeim tima hefi ég starfað sem hjúkrunarfræðingur við sjúkrahúsiö, unnið mikið á skurðstofu og leyst hjúkrunarfor- stjóra af í sumarleyfum. Virðingarfyllst, Emelía Guðjónsdóttir Ég lauk námi við Hjúkrunarskóla (s- lands í nóv. 1963. Að námi loknu hóf ég störf sem deildarhjúkrunarkona við Sjúkrahús (safjarðar allt til sept. '65. Hóf störf við Sjúkrahús Keflavík- ur í júni '66 og vann hálft starf frá des. sama ár til júni'69, en tek þá við starfi yfirhjúkrunarkonu við sjúkrahúsið, þaö starf hef ég undir höndum til jan. 71, starfaði í hlutastarfi við greint sjúkrahús frá '71-74. Starfaði við Sjúkrahús Akraness frá sept. '74 til júni 76, þar af deildarhjúkrunarkona við lyfjadeild í 6 mán. Hóf störf að nýju viö Sjúkrahús Keflavíkur í sept. '76 í hlutastarfi og unnið þar til þessa dags, leyst af hjúkrunarforstjóra í sumarleyfum flest sumur og jafnan unnið mikið á skurðstofu. Virðingarfyllst, Erna Bergmann Gústafsdóttir Umsókn Undirrituð sækir hér með um stöðu hjúkrunarforstjóra við Sjúkrahúsið í Keflavik. Ég er fædd í Keflavík 1.10.1940 og hef lokið eftirtöldum prófum og námskeiöum: Námskeiði í heimilishjálp á vegum Reykjavíkurborgar og sveitarfélaga 1971. Námskeiði í námstækni frá Bréfa- skóla SlS 1973. Gagnfræðaprófi frá Flensborg 1974. Ljósmæðraskóla (slands 1978. Nýja hjúkrunarskólanum 1981. Fyrri störf: Ásamt húsmæðrastörf- um hef ég stundað verslunarstörf og við Sjúkrahús Keflavíkurlæknishér- aös byrjaði ég 16 ára gömul sem gangastúlka í des. 1956 og vann til 1971, og þá sem sjúkraliði. Fjögur ár aðstoðarstúlka á skurðstofu. Á þeim tima var ég kjörinn formaður starfs- mannaráðs og fulltrúi starfsmanna i sjúkrahússtjórn. Þeim störfum gegndi ég þar til ég fór í Ljósmæöra- skólann 1976. Ljósmæðrastörfum í afleysingum í sumarleyfum. Síðan ég lauk námi hef ég starfað ýmist sem Ijósmóðir og hjúkrunarfræðingur. Ég er gift og á 5 börn á aldrinum 16-24 ára. Ég er að sjálfsögðu fús til að gefa frekari upplýsingar um hagi mína ef þér teljið nauðsyn til. Virðingarfyllst, Sólveig S.J. Þóröardóttlr NJARÐVÍKURÐÆR Útsvar Aðstöðugjald Þriðji gjalddagi útsvars og aðstöðugjalda var 1. okt. sl. Dráttarvextir eru 4.5% pr. mánuð. Athygli skal vakin á því að lögtök eru hafin á vangreiddum gjöldum. Greiðið reglulega til að forðast kostnað og frekari innheimtuaðgerðir. Bæjarsjóður - Innheimta

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.