Verslunartíðindi - 01.11.1923, Page 10

Verslunartíðindi - 01.11.1923, Page 10
126 VERSLUNARTÍÐINDI vigt en af öðrum tegundum af nettovigt Engar innflutningshömlur. Gengi á finskri mynt hefur í seinni tíð verið nokkuð stöðugt. Leikið á 15,50— 16,00 d. kr. pr. 100 kr. fm. 2. Estland. Estland er 67,750 ferkílómetrar að stærð, með kringum 1,200 þús. íbúa. Helstu bæ- irnir eru: Reval (Tallin) með 123.500 íbúa, Dorpat (Tartu 50 þús., Narva 27 þús. Pernau (Parnu) 18 þús., og Walk (Valk) 11 þús. Ríkismálið er estneska en allur fjöldinn talar lika rússnesku og kaupsýslu- menn margir þýsku. Verslun: Árið 1922 nam innflutningur samtals 5590 milj. estm. og útflutningur 4812 milj. Aðalútfl.vörurnar eru: vefnað- arvörur 1560 milj., viður 866, pappir 575, hveiti 340, smjör 212, jarðepli 136. Enga sundurliður var hægt að fá yfir innflutn- ing á síld, lýsi, ull, skinnum etc. í hag- sk^rslunum er það tekið i einu lagi undir »matvæli og afurðir úr dýraríkinu«, og nema samtals ca. 1800 milj. estrn. Og um- sagnir kaupsýslumanna um þetta atriði voru svo sundurleitar, að á því var lítið byggjandi. En eftir því sem jeg komst næst, er líklegu innflutt um 3000 tonn af síld. Var verð á henni sagt cif. 3000 estm tunnan 110—115 kg. Estn. Samvinnufje- lagið, sem hve vera allstórt fyrirtæki, sagðist kaupa 1000 tonn af síld yfir árið, en ísl. síldin, væri of stór. Vildi þó gjarn- an fá tilboð til reynslu. En yfirleitt var áhuginn ekki mikill fyrir kaup á isl. síld. Fyrir ull býst jeg ekki við að sje mikill markaður. Hún þykir of gróf og hára- löng. Nokkur firma vildu þó fá tilboð, og sögðu að vel mætti brúka hana til blöndunar við aðra ull. Af haustull myndi mega selja nokkuð í þófastígvjel. Af gær- um sagðist 1 firma, sem jeg átt tal við, geta keypt 50—60 þús. stk., ef þau líkuðu og verð væri hæfilegt. Verð á estn. snoð- kliptum gærum væri 160—200 estm. Innflutningstollur pr. 16 4 kg. er á: síld 24 estm., iðnaðarlýsi 80, meðllýsi 240, salt- keti 24, ull 24, söltuðum gærum 20, þurk- uðum 40, selskinnum 40. Gengið: Á þessu ári hefur það verið nokkuð stöðugt, leikið á frá 60—65 estm. fyrir danska kr. Árið 1922 reikaði það meira fram og aftur. Gjaldfrestur: Það bar öllum saman um, er jeg átti tal við, að ef um kaup væri að ræða á ísl. afurðum þyrfti að gera ráð fyrir 3—6 mán. gjaldfresti. Það fengju þeir annnarstaðar, og í mörgum tilfellum frá Englendingum miklu lengri frest. Þeir höfðu líka »Consignationlager«. 3. Lettland. Lettland er talið 65,790 ferkílómetrar að stærð með 1,813 þús íbúa, mestmegnis Lettar. Af helstu bæjum má nefna Riga með 270 þús., Libau 79,500, Windau 15 þús,, Mitau 15 þús og Dunaborg 36 þús. Árið 1914 voru ibúar landsins 2,552 þús., og þá var talið í Riga 520 þús., en fóru 1920 ofan í 117 þús. Ríkismálið er lettiska, en mjög margir talu rússnesku og kaupsýslumenn flestir þýsku. : Innflikningur nam 1922, umreiknað í danska mynt: Kr. 109,452 þús. og út- fluttar vörur 104 milj. 280 þús kr. Af innfluttu vörunum voru frá Danmörku rúm 18 þús. kg. af ull, 170 þús. kg. af síld, 15 þús. kg. lýsi, 3 þús. kg. gærur.. Af síld er mjög mikið innflutt til Riga og einnig til Libau. Jeg skoðaði síldar- geymsluhús tveggja stærstu síldarkaup- manna í Riga. Geta þeir geymt inni í einu fleiri tugi þúsunda tunna, og fer ágætlega um síldina hjá þeim. Tunnurn- ar voru flestar nýjar, hreinar og fullbent- ar og hvergi staflað hærra en í 3 lög,

x

Verslunartíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.