Verslunartíðindi - 01.11.1923, Side 13

Verslunartíðindi - 01.11.1923, Side 13
VERSLUNARTÍÐINDl 129 Kisútflutningur hefir verið fremur iítill, en útlitið heldur betra með verð á brenni- steinskís. Fitusíldveiðarnar gengu illa í september- mánuði. Aflinn er yíir vertíðina frá 1. júlí til septemberloka 175000 hl, en 355000 hl. á sama tíma í fyrra. Tolltekjurnar voru 6,5 milj. kr. í sept- embermánuði, 5,2 milj. kr. í fyrra. Fyrstu 3 mánuði fjárhagsársins hafa komið inn 18.8 milj. kr., en 20,3 milj. kr. á sama tíma í fyrra. Útflutningur af norskum vörum nam samtals í ágúst 75,3 milj. kr. (í ágúst 1922 72.8 milj. kr.). Matvörur úr dýraríkinu námu 19,4 milj. kr., feiti og olíu 6,3 milj. kr., trjáviður 5,7 millj. kr., pappír og papp- irsvörur 27,1 millj kr., og málmar hálf- unnir og óunnir 5,3 milj. kr. Samtals nam útflutningur á tímabilinu janúar—ágúst 1923 511,2 millj. kr., en 477,2 millj. kr. á sama tíma í fyrra. Atvinnulausratala hefur ýrækkað, 13,400 í septemberlok en 9,500 í ágústmánaðar- lok. Þessi tala er þó 35% hegri en hún var um sama leyti í fyrra. Útdráttur úr brjefi frá Skotlandi. Leitli, Edinburgh, 29. okt. 1923. Loksins er farið að líta dálítið betur út með fiskimarkaðinn, einkum með sumar vörutegundir, og verður að vona að svo haldi áfram. Einkum hefur verið talsverð eflirspurn eftir stórum saltfiski. Að þessu verið gefið fyrir hann £ 15 til £ 15:10/— tonnið (leveret), en nú er hægt að fá meira, ef kaupandi getur fengið hann eft- ir vild, annaðhvort til skotskrar hafnar eða til austurstrandar Englands. Má það líka gott heita ef hægí er að fá einu sterlingspundi meira fyrir tonnið, sjerstak- lega þegar suðurlandamarkaðurinn er hafð- ur í huga. Því þó þar sje gert ráð fyrir 19—20 £ söluverði, þá má óhætt draga 10% frá fyrir rýrnun og ýmiskonar kostn- aði, svo að eftir verður vart meira en 14:10/— til 15 £ fob. Aftur á móti má telja smáan saltfisk alt að 2 kr. lægri hjer. Um tima leit ilia út með sölu á verk- uðum fiski á Spáni, vegna þess hvað mikið barst að af honum. En úr þessu rættist þó nokkuð vegna þess að thunfiskveiðarn- ar gengu illa á Norðurspáni, og eru fisk- birgðirnar því ekki miklar sem stendur. En nú er von á 6 gufuskipum hlöðnum af fiski, og hver áhrif það hefur á fiskmark- aðinn fer nokkuð eftir því hvað farmarnir dreifast. Aður fjell Kataióníumönnum Vestfjarða- fiskuriun best, en smám saman hefur Aust- fjarðafiskurinn rutt sjer rúm vegna stærð- arinnar og Faxaflóafiskurinn af því þurk- unin á honum er 7/8. Rn Þv* leiðir aftur að ekki er hægt að selja hann þar sem menn vilja hafa fullþurkaðan fisk. Búist er við að smáfiskur haldist í sama verði, en þó ekki óhugsandi að hann hækki heldur, ef minna berst að af honum, en gert hefur verið ráð fyrir. Miðlungsstóran fisk er aftur á móti erfitt að selja nema fyrir minna verð en smáfisk. Þó nokkur eftirspurn hefur verið eftir ísu, keilu og ufsa, og er sennilegt að það stafi af því að lítið hefur borist að af þessum fiskteg- undum í ár, vegna þess hve illa gekk að selja þær í fyrra. Talað hefur verið um að farið sje að draga úr fiskiaflanum á »Dogger Bank« í Norðursjónum og er ýmist kent um straum- breytingum eða of mikið hafi verið veitt þar síðan stríðið hætti. Aftur á móti hef- ur heyrst að nýtt fiskimið hafi fundist 80 mílur frá Labradorströndinni, þar sem ó- grynni sje af þorski og lúðu á 70 faðma

x

Verslunartíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.