Verslunartíðindi - 01.01.1930, Qupperneq 10
4
VERSLUNARTÍÐINDÍ
Fiskimjöl og sildarmjöl. Útflutningurinn
nam á árinu 10.365.410 kg. á kr. 2 705.340.00.
Sildarolía. — Framleiðslan er nokkru
meiri en í fyrra, en verðið Iægra. Útflutn-
ingurinn var 6.795.320 kg. á krónur
2.213.080.00.
Lýsi. Útflutningurinn var mun minni en
síðastl. ár. Nam hann til áramóta 5.095.060
kg. á krónur 3.264.890. Það nam að
verðmæti á sama tímabili í fyrra krónum
5.606.730.
Sundmagar. — Útflutningurinn svipaðnr
og árið áður, en verðið nokkru hærra. Nam
útflutningurinn á árinu 50.317 kg. á kr.
124.290.00.
Hrogn (söltuð). — Framleiðslan talsvert
minni en í fyrra. Útflutningurinn á árinu nam
3927 tn. á kr. 69.320.00, en auk þess voru
flutt út 4950 kg. af hrognum í ís, og nam
sá útflutningur kr. 1050.09.
Fiskbein og hausar. Framleiðslan hefir
heldur aukist, en verðið svipað og siðast-
liðið ár. Útflutningurinn á árinil nam
862.090 kg. á kr. 142.810.00.
Landafurðir.
Kjöt. Saltkjötsútflutningurinn var svipað-
ur og árið áður, en verð heldur lægra. —
Útflutningurínn nam á árinu 20.843 tn.
á krónur 2.177.460.00. Auk þess var flutt
út 697.567 kg. af frystu kjöti og nam sá
útflutningur kr. 590.170.00.
Ull. Útflutningurinn var talsvert meiri en
í fyrra. Nam hann á árinu 819.979 kg. á
2.321.830.00.
Gœrur lækkuðu talsvert í verði á árinu,
Útflutningur af söltuðum gærum nam á ár-
inu 365.121 tals. á kr. 2.085.120.00, og auk
þess var flutt út á árinu sútaðar gærur
tals. 19.943 á kr. 178.320.00, og er það
mun meira en í fyrra.
Kindagarnir. Af hreinsnðum kindagörn-
um var flutt út á árinu 12.193 kg. á kr.
153.610.00 og af söltuðum görnum 74.710
kg. á kr. 86.440.00.
Hross. Útflutningurinn 619 tals á kr.
72'230.00, og er það mun minna en í fyrra.
Mun það að nokkru leyti stafa af aukinni
hrossakjötsneyslu innanlands.
Æðardúnn. Útflutningurinn miklu minni
en í fyrra og verðið heldur lægra. Nam
útflutningurinn á árinu 2610 kg. á kr.
101.500.00.
Lifandi refir. Utflutningurinn er minni en
síðastliðið ár, en verðið mun hærra. Hefir
útflutningurinn verið á árinu 379 tals á
kr. 178.100.00.
Útflutningurinn.
Samkvæmt skýrslu gengisskráningarnefnd-
arinnar hefir útflutningurinn numið á árinu
kr. 69.400.010.00, en var í fyrra á sama
tíma kr. 74.283.870.00.
Innflutningur.
Samkvæmt bráðabirgðarupptalningu geng-
isskráningarnefndar hefir innflutningurinn á
árinu numið um 70 milj. króna, en árið
1928 um 58 milj. kr.
Verðið á útlendu matvörunni hjelst nokk-
uð svipað framan af árinu, en fór hækk-
andi þegar kom fram á mitt sumar, sjer-
staklega hveiti. Með haustinu fór verðið á
ýmsum nauðsynjavörum að lækka og hefir
farið smálækkandi siðan. Kaffi hefir lækk-
að mjög mikið á árinu.
Annars má sjá verðsveiflurnar á helstu
vörutegundunum á eftirfarandi yfirliti:
Verð pr. 100 kg. d. kr.
Khöfn. 1. jan. 1. júlí 1. des.
Rúgmjöl......... 19.50 18.00 16.00
Ameriskt hveiti . 30.00 31.00 32.00
Hrísgrjón....... 28.00 28.00 28.00
Hafragrjón . . . 28.50 29.00 27.50
Kaffi............162.00 162.00 105.00
Högginn sykur . . 35 00 33.00 33.00