Verslunartíðindi - 01.01.1930, Blaðsíða 12
6
V EiiSLUN ARTlÐINDI
Jafnaðarmönnum mun vera nokkur hugnun
að því að. ríkið tekur nú við áramótin að
sjer prentsmiðjurekstur og útgerð strand-
ferðaskipsins »Esja«. — En vonandi glæðist
svo sjálfstæðisáhugi þjóðarinnar á næsta
ári — þjóðhátíðarárinu — að henni skiljíst,
að frjálsræði og framtak einstaklinganna
verði affarasælast.
Markaðsfrjettir.
Samkvæmt skýrslu Fiskifjelagsins var
iiskaflinn á öllu landinu talin um áramótin
417.273 skpd. miðað við fullþurkaðan fisk,
og er það 7300 skpd. meira en árið áður
og 101.122 skpd. meira en árið 1928. Birgð-
irnar voru á sama tíina 52690, en 45 104
árið áður. Fiskverð hefur farið lækkandi
og er verð á húsþurkuðum fiski nú ca. 120
kr. Blautfiskur hefur sjersfakleea lækkað
talsvert. Labrador fiskur hefur líka farið
lækkandi og er verðið nú úr húsi ca. 90
'kr. Aflinn hefur verið mjög rýr í janúar-
mánuði og veldur því afar stirt og óstöð-
ugt tíðarfar.
Síðustu skeyti frá Miðjarðarhafslöndum
23. jan. segja fiskbirgðir í Barcelona 1600
smál. og verðið þar 95/100 pes. pr. 50 kg.
í Bilbao voru birgðir af ísl. fiski á sama
tíma 500 srnál. og af færeyiskum 100 smál
verðið var fyrir ísl. fisk 92/94 og fær. 96/98
pes. pr. 50 kg. Á þessum sama tíma var
markaðurinn í Genua talin fastari og eftir-
spurnin talsverð. Verð var þá á stórum
ísl. saltfiski 290 1. pr. 100 kg.
Verslunartíðindunum hefur borist brjef
frá Kaupmannahöfn, dags 6. jan. og fer
hjer á eftir útdráttur úr því brjefi:
»Eftirspurn eftir ísl. lýsi hefur verið tals-
yerð, en aðflutningurinn hefur verið Iítill,
svo að kaupendur hafa ekki getað fengið
nægilegt og orðið að fá þessa vöru frá
Noregi. Ef til vill er eitthvað af þessu lýsi,
sem fengið er frá Noregi af ísl. uppruna.
Umkvörtun hefur verið um það að ekki
væri nógu vel til þess vandað að hafa
tegundirnar aðskildar í þeim lýsisendingum,
sem kæmu frá íslandi og gæti í lítilli
sendingu t. d. 10 fötum verið 3—4 mis-
munandi litir. Verð fyrir venjulegt iðnaðar-
lýsi vel Ijóst er ca. 60 kr. pr. 100 kg., fyrir
ljósbrúnt ca. 50 kr. og fyrir brúnt ca. 40
kr. Eftirspurn eftir meðalalýsi hefur ekki
verið eins mikil og verðið farið lækkandi,
jafnvel úr 70 kr. niður í 64 kr., en ef til
vill stafar þetta af því að bestu tegundirnar
og megnið af Iýsinu fer til Noregs, en til
Hafnar koma aðeins smáar sendingar af
meðalalýsi, með óreglulegu millibili, þar sem
lýsið er ýmist of dökt eða vond lykt af
því og fer verðið eftir þessu. Er yfir höfuð
ekki að búast við því að markaður hjer
sje góður fyrir þessa vöru. ef ekki fæst
annað en úrgangurinn, sem aðrir vilja ekki
nýta.
Talsverð eftirspurn hefur verið eftir sund-
mögum, en aðflutningurinn hefur verið mjög
lítill alt árið. Væri óskandi að fleiri tilboð
kæmu þar sem verðið er ennþá ca. 2.50—
2.60 pr. kg.
Dilkakjöt hefur verið selt fyrir 98—112
kr. pr. tn. og kjöt af eldra fje 20—30 kr.
lægra. í nokkuð langan tíma hefur verið
eftirspurn eftir þessari vöru en ekkert flust
inn. Síðast var borgað hjer ca. 110 kr. pr.
ín. Óánægju hefur það vakið, að komið
hefur fyrir að kjötið hefur verið í furu-
tunnum í stað beykitunna og hefur upp-
bóta verið krafist. Þess ætti ávalt að vera
getið ef kjötið er ekki sent í beykitunnum.
Erfiðlega hefur gengið með gærusöluna
í ár, en skinnmarkaðurinn hefur yfirleitt verið
daufur, svo eðlilegt er að á sama hátt fari
með gærurnar. Verðið hefur verið 1.90—