Verslunartíðindi - 01.01.1930, Qupperneq 15

Verslunartíðindi - 01.01.1930, Qupperneq 15
VÉÍtSLÚNARTÍÐIND' 9 Utanríkisverslun Hollands. í síðustu 5 árin hefur utanríkisverslun Hollands verið þessi: Innfl. Útfl. 1924 milj. gyll. . . 2364 1661 1925 — — . . 2455 1808 1926 — — . . 2442 1749 1927 — — . . 2549 1900 1928 — — . . 2684 1986 Hvað útflutningsvörurnar snertir, þá hef- ur útflutningur aukist talsvert af mjólkur- búa-afurðum og grænmeti. Smjörútflutning- urinn jókst þá frá árinu áður úr 85,8 upp i 88 milj. gyll., ostaútflutningurinn úr 76,7 upp í 80,2, mjólk 50,3 upp í 56,4, egg 50,9 upp í 54,2 og grænmeti úr 48,9 upp í 68,7 milj. gyll. Ennfremur hefur útflutningsverð aukist á bómullarvörum, skipum, glóðar- lömpum, raftækjum og þráðlausum síma- æ kjum. Mestur er innflutningurinn frá Þýska- landi, var siðastl. ár 730 milj. gyll. eða 27 °/o, þvínæst kemur Belgía 11 °/0, Bandarík- in 10°/0, Bretland 9°/0, nýl. í Austur-Ind. 5°/0 og Frakkland 4,5°/0. Nálega helmingur af útflutningsvörunum fer til Þýskalands og Bretlands. Síðastl. ár nam útflutn. til Þýskalands 468 milj. gyll., til Bretlands 432 milj, til nýl. Austurind. 175 milj. og til Belgíu 172 milj. gylliui. — Talsvert fluttist einnig til Frakklands og Bandaríkjanna. Árið 1927 voru fluttar inn 11788 smál. (brúttó) af saltaðri og ferskri hafsíld, og nam sá innfl. 1.61 milj. gyll. Þessar tölur voru 1928 7256 og 0.95 milj. Af þessu kom frá Noregi árið 1927 2481 smál., er nam 224 þús, gyll. Innfl. frá Nor- egi og Bretlandi minkaði svo aftur 1928 og nam þá 146 þús. og 734 þús. gyll. Útflutn. af þessari vöru var einnig talsverður, og fór meira en helmingur þess til Þýska- lands. Innflutningur af ferskri síld og síld, er salti var stráð í, var 1926 2711 smál, 1927 2986 og 1928 2915 smál., er nam 410,403 og 323 þús. gyll. Mest af þessari vöru kom frá Bretlandi og Noregi og einnig talsvert frá Belgíu. Árið 1927 fluttist inn 56 smál. at söltuð- um þorski, keilu, löngu og ufsa og 130 smál. 1928. Nam þetta 13 þús. og 36 þús gyllina. Síðara árið komu 16 smál. af þess- ari vöru frá Noregi, 57 frá Danmörku og 47 smál. frá Bretlandi. Innflutn af þurkuð- um fiski var aftur á móti tvö síðustu árin 655, 768 smál. og verðið 347 þús. og 438 þús. gyll.; var mest af þessu frá Noregi. 1927 fluttist inn 389 smál. (nettó) af ál, fyrir 505 þús. gyllini; þar af var frá Dan- mörku 209 smál., frá Þýskalandi 68, frá Frakklandi 54 og frá Noregi 6 smái. 1928 fluttist inn 551 smál., 658 þús. gyll.; þar af frá Danmörk 184 srnál,, Frakklandi 171, Noregi 55 og frá Þýskalandi 43 smál, 1927 fluttist inn 312 smál. af ferskum, söltuðum og reyktum laxi f. 546 þús gyll, 1928 var þessi innflutningur 337 smál.; þar af var frá Bretlandi 131 smál., Bandaríkj- unum 59, Þýskalandi 63, Póllandi og Dan- zig 47 og Noregi 7 smál. Af ferskum humar var flutt inn árin 1926 til 1928 117, 127 og 148 smál., að verð- mæti 159, 181 og 209 þús. gyll. Af Chilesaltpjetri var flutt inn 1927 88269 smál. (brúttó) fyrir 11,5 milj. gyll. 1928 voru flutt inn 172958 smál. fyrir 20,1 milj. gyll. Meiri hlutinn af þessari vöru kom frá Chile. Á síðustu tveimur árum hefur ná- lega allur kalksaltpjetursinnflutningurinn verið frá Þýskalandi. Lýsisinnflutningurinn hefur verið þessi síðustu 5 árin:

x

Verslunartíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.