Verslunartíðindi - 01.02.1932, Qupperneq 5

Verslunartíðindi - 01.02.1932, Qupperneq 5
vÉRSLÚNARTÍÐINDI 15 með eineiki ekkið: Gjaldendurnir hafa talið skattana of þunga, rangláta og til eyði- teggmgar sjer og sinni stjett. II. Endur fyrir löngu hefir sú skoðun fést rætur, að skattar sjeu óumflýjanlegt böl. En mjög hefir menn greint á um, hver skattakerfi væru hagfeldust og rjettlátust, Er eigi rúm til hjer að greina svo mikið sem höfuðdrætti þeirra raka og rökvilla sem fram hefir verið fært með og móti þeim margháttuðu skattakerfum1 er notuð hafa verið. En aðeins skal vikið að þeirri skattastefnu, sem nú á síðustu árum virðist hafa verið efst á baugi meðal flestra allra þjóða, sem á sjer hafa lýðstjórnarsnið. Um langan aldur hafa nú í flestum þjóðlönd- um jöfnum höndum verið notuð tvenn skattakerfi, beinir og óbeinir skattar. Beinir skattar eru lögbundin hundraðshluti af eign og tekjum og skattþegni engrar undankomu frá þeim auðið annarar en að forðast eign og tekjur. Óbeinir skattar eru tollar og þesskonar, sem lagðir eru á neytsluvörur og notkunarmuni og skattþegni því að mjög miklu leyti i sjálfsvald sett, hvort eða hve mikið hann vill greiða í skatt. Þetta er þó eigi algildi þar eð ríkisþarfir hafa víða knúð til þess einnig að tolla lífsnauðsynjar, sem enginn má án vera. Þetta er stofnviður óbeinna skatta, en greinar á þeim stofn eru tollar á innlendri framleiðslu úr innlendum efnum og útfluttri vöru. framleiddri í landinu sjálfu. Vegna sívaxandi ríkisþarfa hafa óbeinir skattar verið hækkaðir mjög, jafnvel marg- faldaðir, víðast hvar á síðustu árum. Beinum sköttum hefir nálega hvarvetna verið skipað í svonefnt stighækkunarkerfi á síðari árum. En því er þannig háttað, að því meiri eignir og tekjur skattþegns- ins verða, því stærri hundraðshluta verður hann að leggja fram af þeim til ríkis og bæjar éða sveitarfjelága. Er sumsstaðar svö langt géngið á þessari braut, að þegar eignir og tekjur hafa náð ákveðnu marki, fellur það, sem fram yfir er, óskift til ríkisins. III. Vjer íslendingar höfum haft aíl náin kynni af skattakerfum þeim, sem nefnd eru í næsta kafla hjer á undari, nú en síðari misseri. Höfum vjer í því efni enn á ný sýnt vanmátt vorn til að hrinda af oss ámælinu forna, sem við oss festist í myrkviðri einokunarinnar á 17. og 18. öld, »að dependera af þeim dönsku«. Vjer höf- um í skattamálum gripið erlendar fyrir- myndir, hugsunarlítið eða hugsunarlaust um það, hvort þær ættu við vora þjóðar- hætti og þjóðarhag. Að því er kemur til stighækkunarkerfis beinu skattanna, á það eina, sem því hef r verið fært til gildis eða afsökunar að stóreigna- og hátekjumenn hafa svo veigamikið gjaldþol að þeir eigi að síður stæðu föstum fótum, alls eigi við vora þjóðarhagi. Hjá oss eru eigi til stór- eigna- og hátekjumenn í þeim skilningi, sem erlendis er við það hugtak bundinn. í annan stað er þeir menn, sem hjá oss eiga mestar eignir og hafa hæstar tekjur svo að segja einvörðungu atvinnurekendur sem vinna að framleiðslu þeirra vöruteg- unda, sem vjer seljum erlendum þjóðum, eða og hafa á hendi sölu þeirrar framleiðslu og miðlun nauðsynja landsbúa til fram- færslu og framleiðslu. En slíku starfi fylgir svo mikil áhætta, að sá, sem á vorn mæli- kvarða er ríkur í dag getur verið orðinn öreigi á morgun, eins og að orði er komist nema hann eigi sterkan bakjarl. Loks er á að líta, að sá atvinnuvegur vor og grein- ar hans, sem möguleika hefir til að skapa stóreignir og hátekjur, sjáfarútvegurinn, er enn í bernsku og er glötun vís, ef lang- varandi andstreymi steðjar að, nema því

x

Verslunartíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.