Verslunartíðindi - 01.02.1932, Qupperneq 9
VERSLUNARTÍÐINDI
19
Tollhækkanir og viðskifta-
höft ýmsra landa.
Bretland: Haustið 1931 samþykti enska
parlamentið heimildarlög til tollhækkana,
sem gátu á einstaka vörum numið altað
100% aí verði vörunnar. Nokkru síðar var
tollur hækkaður á ferskum ávöxtum, græn-
meti og blómum. samkvæmt þessum laga-
heimildum hafa verið gefnar út tilkynningar,
þar sem tollur hefir verið hækkaður á mörg-
um iðnaðarvörum upp í 50°/0 af verði
vörunnar.
Frakkland: Á árinu 1931 höfðu Frakkar
hækkað toll á ýmsum vörum. Og um
haustið er sterlingspundið fór að lækka
var samþykt 15% gengisgjald á vörur frá
þeim löndum, þar sem lággengi var, og
ennfremur var sett fast gjald á ýmsar
vörur, einkum landbúnaðarvörur og niður-
suðuvörur. Þá fjekk franska stjórnin einnig
heimild í desember til þess að leggja inn-
flufningshöft á vörur frá þeim löndum þar
sem lagðar höfðu verið á einhverjar gjald-
eyrishömlur.
Spánn: Haustið 1931 fjekk stjórnin
heimild til þess að beita sjerstökum á-
kvörðunum gegn þeim löndum, sem hafa
gjört haftaráðstafanir, tollhækkanir eða inn-
flutningshöft á spönskum vörum.
Ítalía: Á árinu voru tollhækkanir á
ýmsum vörum, og svo kom viðbótartollur
í september á nálega allar vörutegundir,
er nam 15% af vöruverðinu. Þá hefir
ítalska stjórnin einnig fengið heimild til
að hefta vöruinnflutning frá þeim löndum,
sem ekki leyfi frjáksan innflutning af ítölsk-
um vörum.
Belgía: Þar hefur einnig verið hækkað-
ur tollur á ýmsum vörum, sjerstaklega
landbúnaðarvörum; og stjórninrti falið að
hafa eftirlit með vöruinnflutningnum.
Holland: Um áramótin var vörutollur
hækkaður á nálega öllum vörum um 25°/0.
Ennfremur hefir Holland strangar innflutn-
ingsreglur viðvíkjandi kjöti, og stjórnin
fengið heimild til að hafa eftirlit með
vöruinnflutningi yfirhöfuð, sjerstaklega með
tilliti til verslunarjafnaðarins.
Noregur: Þar voru tollar hækkaðir
næstum alment um 20% í janúarmánnði.
Svíþjóð: Þ. 1. febrúar lögðu Svíar tölu-
verðan viðbótartoll á ónauðsynlegan
varning.
Þýskaland: Þar hefur með gjaldeyris-
ráðstöfunum verið gerðir miklir erfiðleikar
með vöruinnflutninginn. Ennfremur hafa
tollar verið hækkaðir á fjölda af vöruteg-
undum. Siðari hluti ársins 1931 var einnig
gengisuppbót lögð á vörur frá löndum,
sem hafa lággengi.
Finnland: Innflutningstollar hafa þar
einnig verið hækkaðir að mun og ennfrem-
ur ýmsar gjaldeyrisráðstafanir verið gerðar.
Estland: í desember voru vörutollar
hækkaðir að mun. Þá hefir einnig tölu-
verður hluti af vöruinnflutningi til Estlands
verið einokaður, og ennfremur gerðar
ýmsar gjaldeyrisráðstafanir.
Letland: Tollar á mörgum vörum voru
hækkaðir í júlímánuði, og í októbermánuði
var lagt viðbótargjald á ýmsar innflutnings-
vörur, og ennfremur gerðar gjaldeyris-
ráðstafanir.
Litauen: Nokkrar tollhækkanir urðu á
árinu 1931 og í janúar 1932 var tollur á
nokkrum vörum hækkaðar mjög mikið, á
sumar jafnvel meira en 100°/0.
Tjekkoslóvakia: Eftirliti var komið á
með ýmsar innflutningsvörur í janúar 1932.
Argentína: Þar voru tollar hækkaðir á
fjölda vörutegunda framan af árinu 1931,
og í október var lagður 10% viðbótar-
verðtollur á nálega allar vörur.
Kanada: InnflutningstoIIur var hækkað-
Uí að mun í septembermánuði 1931,