Verslunartíðindi - 01.02.1932, Qupperneq 12
22
VERSLUNARTÍÐINDI
ekki gengið að sama skapi vel og aflinn,
ekki numið eins miklu og hann nam tvö
árin á undan, sem var 12,8 milj. mk. 1930
og 12,6 milj. mk. 1929 og stafar þetta af
því að kaupgetan hefur alment minkað.
Vegna þess að þýski sildariðnaðurinn er
ekki svo vel úr garði gerður, að hægt sje
að vinna að fuilu að allri þeirri síld, sem
berst að í einu, heldur aðeins að nokkru
leyti með það fyrir augum að Ijúka við
það síðar, verður það af síldinni, sem ekki
er markaður fyrir í þann svipinn að seljast
með lágu verði, Mikill hluti af birgðum
þeim, sem fyrirliggjandi eru nu í þýsku
síldarverksmiðjunum hafa verið keyptar
fyrir 5 6 pfening pr. pund. Og þó að
reikna megi 2—3 pf. pr. pd. til þess að
annast um síldina og í vaxtatap, þá hefur
iðnaðurinn þó þar góðan bakhjall þegar
viðskiftin hefjast bæði með ensku og
norsku síldina.
Meðalverðið var síðustu vertíð hæst í
Altona, 8 pf. pr. pd.; næst er Cuxhaven 7
pf. og Westermiinde með 6V2 pf. Að með-
altalið er hæst í Altona, stafar að likum
af því að sildarreykhúsin í Altona geta
tekið við mun meiru en hægt er í hinum
bæjunum, og ný síld, sem ætluð er til
reykingar fer hærra verði en sú sild, sem
ætluð er í krydd eða til annarar meðferðar.
Skipasmíðar um áramótin.
Af skipabyggingarskýrslu Lloyds má sjá,
að um áramótin hafa verið 281 skip í
smíðum.
Þetta er 127.325 smál. minna en var í
septemberlok og um 1 milj. smál. minna
en var í árslok 1930. Ennfremur má sjá,
að síðasta ársfjórðunginn var lokið við
301.678 smál., en byrjað aðeins á 225.482
smál.
Eins og að undanförnu er England efst
á blaði með 400.505 smál., næst eru Banda-
ríkin með 207.837 smál. og þvínæst Ítalía
með 178.287 smál. Frakkland er nr. 4 með
164.440 smál., Þýskaland 103.981 smál.,
Svíþjóð 95.380 smál., Holland 67.866, Spánn
55.241, Japan 53.280 smál., Danmörk 51.800
smáL og Noregur 15.785 smál. í öðrum
löndum náði talan ekki 10 þús. smál.
45 tankskip voru í smíðum 351.320 smá!.,
og voru þrjú þeirra smíðuð í Danmörk,
24.535 smál. Danskar skipasmíðastöðvar
luku í október við 3 skip. 14.850 smál. og
voru þá byrjaðar á þremur gufuskipum,
4.150 smál. og tveimur mótorskipum 5.600
smál.
5 ára áætiun Rússa,
í árslok 1931 var Iiðið þriðja árið af 5
ára áætluninni. Eins og menn muna kom
áætlunin fyrst til framkvæmda 1. október
1928, og var þá fyrsta vinnuárið til 1.
okt 1929. Þá var ákveðið að næsta áætl-
unarár næði til 31. des. 1930 og væri svo
fylgt almanaksárinu úr því. Á árinu 1931
komu fram óskir innan Sovjetstjórnarinnar
um að áætlunartíminn væri styttur og
með einkunnarorðum »5 ára áætlunin á
fjórum árum«, var reynt að vinna þessari
stefnu áhangendur um land alt; er því nú
eftir þessu að byrja fjórða og síðasta ár
5 ára áætlunarinnar.
Seint í desember kom skýrsla frá fram-
kvæmdarstjórn áætlunarinnar um hvað á-
unnist hefði á undanförnum þrem árum.