Fréttablaðið - 19.09.2018, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 2 1 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r M i ð V i K u d a g u r 1 9 . s e p t e M b e r 2 0 1 8
Fréttablaðið í dag
sKoðun Magnús Jónsson skrifar
um gámastíl og græðgisvæðingu. 11
sport Mistök dómarans í leik
liða um miðjan ágúst urðu til
þess að liðin þurfa að mætast
aftur. 12
tÍMaMót Skákkennsla efld í
grunnskólum Akureyrar. 14
lÍfið Fréttablaðið bjó til
lista fyrir ríkið, vilji
það halda áfram
að eyða pening-
um í óþarfa eins
og að lýsa upp
hátíðarsviðið
um hábjartan
júlídag. 20
plús sérblað l fólK
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
Faxafeni 11 • Sími 534 0534
Októberfest
Finndu okkur á
SYKURLAUS
ViðsKipti Samkeppniseftirlitið gerir
fjórar alvarlegar athugasemdir við
viðskiptahætti Guðmundar Krist-
jánssonar, aðaleiganda Brims og
HB Granda, og segir að ef frummat
stofnunarinnar sé á rökum reist sé um
að ræða „alvarleg brot“ á samkeppnis-
lögum.
Fram kemur í bréfi frá Samkeppnis-
eftirlitinu, sem Markaðurinn hefur
undir höndum, að sú staða að aðal-
eigandi Brims sé forstjóri HB Granda
kunni að leiða til brota á samkeppnis-
lögum. Guðmundur tók við sem for-
stjóri HB Granda í júní eftir kaup
á kjölfestu hlut í fyrirtækinu í vor.
Stofnunin rifjar upp að í Fréttablaðinu
hafi komið fram að hann hafi áhuga á
að auka samstarf á milli útgerðanna
tveggja og að einkum sé horft til sölu-
og markaðsmála í þeim efnum.
Auk þess er sagt í bréfinu að sú
staða að aðaleigandi Brims sitji í
stjórn Vinnslustöðvarinnar, en hann
átti þriðjungshlut í fyrirtækinu þar til
í gær, kunni að leiða til samkeppnis-
brota. Guðmundur gekk úr stjórn
Vinnslustöðvarinnar á aðalfundi
félagsins í vor. Samkeppniseftirlitið
segir að það sé varhugavert í sam-
keppnislegu tilliti að sami aðili, sem
eigi allt hlutafé í einu félagi, sé á sama
tíma forstjóri félags á sama markaði
og stjórnarmaður í því þriðja.
Enn fremur telur Samkeppniseftir-
litið að tilkynningarskyldur samruni
kunni að hafa átt sér stað þegar Brim
eignaðist hlut í HB Granda. Hann hafi
ekki verið tilkynntur til eftirlitsins
og virðist hafa komið þegar í stað til
framkvæmda. Sömuleiðis kunni til-
kynningarskyldur samruni að hafa
átt sér stað sumarið 2016 þegar Brim
eignaðist Ögurvík. Þau kaup hafi ekki
verið tilkynnt til eftirlitsins.
Páll Gunnar Pálsson, framkvæmda-
stjóri Samkeppniseftirlitsins, segir
að málinu sé ólokið. „Í framhaldi af
framkomnum sjónar miðum er Sam-
keppniseftirlitið að afla frekari upp-
lýsinga. Niðurstaða í málinu liggur því
ekki fyrir.“ – hvj / sjá Markaðinn
Guðmundur sakaður um „alvarleg brot“
Samkeppniseftirlitið gerir fjórar alvarlegar athugasemdir við viðskiptahætti Guðmundar Kristjánssonar útgerðarmanns. Meðal annars
að hann skuli eiga Brim og stýra HB Granda á sama tíma. Auk þess að hann hafi verið í stjórn keppinautarins Vinnslustöðvarinnar.
Guðmundur
Kristjánsson,
forstjóri
HB Granda.
Það var fámennt í þingsal þegar Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, ræddi um breytingar á ýmsum lögum vegna fjárlaga. Ef til vill hefur meginþorri þingmanna verið í kaffipásu
eða á öðrum mikilvægum fundum. Þó er vert að taka fram að fjöldi annarra þingmanna tók til máls í sömu umræðu og voru fleiri þingmenn því vissulega í húsi. FréttaBlaðið/SiGtryGGur ari
saMfélag Unglingar í dag eru mun
jákvæðari gagnvart neyslu kanna-
bisefna en jafnaldrar þeirra voru
fyrir 20 árum. Þetta sýna niður-
stöður ESPAD-rannsóknar sem
lögð hefur verið fyrir 15 ára ung-
menni á fjögurra
ára fresti allt frá
árinu 1995.
Þetta kemur
rannsakendum
lítið á óvart en
langflestar rann-
sóknir bendi
til þess að
regluleg neysla
á kannabis hafi
slæm áhrif á heilsu.
– sa / sjá síðu 2
Jákvæðari
gagnvart neyslu
kannabisefna
1
9
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:3
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
D
B
-D
7
6
0
2
0
D
B
-D
6
2
4
2
0
D
B
-D
4
E
8
2
0
D
B
-D
3
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
1
8
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K