Fréttablaðið - 19.09.2018, Side 2

Fréttablaðið - 19.09.2018, Side 2
Veður Gengur í hvassa norðanátt með rigningu norðan- og austanlands, seinnipart dags fer kólnandi þannig að þá má búast við slyddu eða snjó- komu í fjöll á þessum slóðum. Útlit er fyrir þurrt veður á sunnanverðu landinu. sjá síðu 16 Geislavirk efni geymd bak við þykkar blýhurðir samfélag Unglingar í dag eru mun jákvæðari gagnvart neyslu kannabis- efna en jafnaldrar þeirra voru fyrir 20 árum. Þetta sýna niðurstöður ESPAD- rannsóknar sem lögð hefur verið fyrir 15 ára ungmenni á fjögurra ára fresti allt frá árinu 1995. Árið 1995 töldu 1,9 prósent 15 ára ungmenna hér á landi enga eða litla áhættu fylgja reglulegri kannabis- neyslu. Í síðustu rannsókn, sem lögð var fyrir árið 2015, hækkaði hlutfallið í 10,7 prósent. Að sama skapi töldu níu af hverjum tíu ungmennum mikla hættu stafa af reglulegum kannabis- reykingum um miðjan tíunda ára- tuginn. Jafnaldrar þeirra nú sem telja mikla hættu af kannabisreykingum eru aðeins sjö af hverjum tíu. Rannsókninni er stýrt af Ársæli Má Arnarssyni, prófessor í tómstunda- og félagsmálafræði við Menntavísinda- svið Háskóla Íslands. Hann segir normalíseringu kannabisreykinga skipta höfuðmáli þegar kemur að viðhorfi ungmenna til reyking- anna. „Þetta er það sem við sjáum í amerískum sjónvarpsþáttum sem þessir krakkar eru að horfa á. Þar er þetta eðlilegur hlutur, að fólk fái sér jónu. Þau auðvitað pikka það upp. Á þessum mótunarárum eru þau að finna út hvað má og hvað má ekki og þetta stóra og mikilvæga félagslega mótunartæki sem sjónvarpsþættir og kvikmyndir eru sýna þetta í jákvæðu ljósi,“ segir Ársæll. Engilbert Sigurðsson, yfirlæknir á geðsviði Landspítala, segir óhætt að fullyrða að regluleg kannabisneysla sé afar skaðleg. „Allar vandaðar rannsóknir benda til þess að regluleg kannabisneysla unglinga hafi slæm áhrif á heilsu þeirra,“ segir Engilbert. „Sér í lagi getur neyslan haft afar slæm áhrif á ungt fólk þar sem saga er um geðsjúkdóma meðal náinna ætt- ingja.“ Ársæll segir samskipti ungmenna við foreldra skipta gríðarlega miklu máli. „Samskipti barna og foreldra á Íslandi eru mjög góð og hafa farið batnandi. Sterk tengsl eru milli jákvæðra samskipta milli foreldra og barna og minni notkunar á vímu- gjöfum.“ sveinn@frettabladid.is Æ fleiri ungmenni telja kannabis ekki skaðlegt Sex sinnum fleiri unglingar telja nú kannabisneyslu skaðlausa en jafnaldrar þeirra fyrir 20 árum. Þetta kemur rannsakendum lítið á óvart. Langflestar rann- sóknir bendi til þess að regluleg neysla á kannabis hafi slæm áhrif á heilsu. Meirihluti ungmenna telur kannabisneyslu hættulega. Nordicphotos/Getty mat unglinga á áhættu af reglulegri áfengisdrykkju og kannabisneyslu 1995 samanborið við 2015 Hversu mikil áhætta er að reykja kannabis reglulega? 1995 2015 engin 1,1% 6,1% Lítil 0,8% 4,6% Nokkur 5,5% 11,7% Mikil 89,1% 69,8% Veit ekki 3,5% 7,8% *heimild: espAd – european school survey project on Alcohol and other drugs engilbert sigurðs- son, yfirlæknir á geðsviði Lsh. akureyri Ekkert verður af því að ný stólalyfta rísi í Hlíðarfjalli fyrir veturinn eins og vonir stóðu til. Ekk- ert hefur verið verið unnið við upp- setningu stólalyftunnar frá því um miðjan júlí þar sem Vinir Hlíðarfjalls neita að greiða verktaka fyrir fram- kvæmdir í fjallinu. Verktakafyrirtækið G. Hjálmarsson var fengið til að gera undirstöður fyrir nýja stólalyftu sem kom frá Noregi að undangengnu útboði. Þegar byrjað var að grafa fyrir undirstöðum varð vinnan fljótt umfangsmeiri en að var stefnt. Stöðvuðust því framkvæmdir og neituðu Vinir Hlíðarfjalls að greiða verktakafyrirtækinu reikninginn. Guðmundur Karl Jónsson, yfir- maður skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli, segir ljóst að lyftan komi ekki upp fyrir veturinn og frestist þar af leið- andi um ár. „Eins og staðan er núna mun þessi lyfta bíða til næsta vetrar,“ segir Guðmundur Karl. Áætlaður heildarkostnaður við verkið er 363 milljónir króna en Vinir Hlíðarfjalls fjármagna framkvæmd- ina. – sa Deilur vina og verktaka fresta lyftu Úr hlíðarfjalli. FréttAbLAðið/ViLheLM Jáeindaskanninn hefur verið tekinn í notkun á Landspítala. Þessi mynd er tekin í hjarta framleiðslueiningar skannans þar sem unnið er með geisla- virk merkiefni. Efnin gefa frá sér jáeindir sem gera læknum kleift að rýna í mein sjúklinga af mikilli nákvæmni. Efnin eru geymd bak við þykkar blýhurðir, ein slík sést hægra megin á myndinni. Geislavirku efnin eru búin til í hraðli sem er í steinsteyptum klefa neðanjarðar. FréttAbLAðið/eyþór 363 milljónir króna fara í nýja skíðalyftu í Hlíðarfjalli Bandaríkin Deilt er um kynhneigð Sesame Street-brúðnanna Berta og Árna (e. Bert and Ernie) í Bandaríkj- unum. Í viðtali við hinsegin miðil- inn Queerty um helgina sagði Mark Saltzman, áður handritshöfundur fyrir þættina, að sjónvarpspersón- urnar ættu í samkynja ástarsam- bandi. Hafi verið byggðar á sambandi Saltzmans og þáverandi maka hans. Sesame Workshop, félagið sem heldur utan um framleiðslu þáttanna, tjáði sig um orð Saltzmans í gær. Í til- kynningu þaðan kom fram að Berti og Árni væru bara vinir, brúður án nokkurrar kynvitundar. – þea Ástarsamband Berta og Árna vekur deilur 1 9 . s e p t e m B e r 2 0 1 8 m i ð V i k u d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 1 9 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :3 4 F B 0 4 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 D B -D C 5 0 2 0 D B -D B 1 4 2 0 D B -D 9 D 8 2 0 D B -D 8 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 0 s _ 1 8 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.