Fréttablaðið - 19.09.2018, Page 11

Fréttablaðið - 19.09.2018, Page 11
Að mínu áliti er með núverandi skipulags- og byggingar-stefnu á höfuðborgarsvæð- inu, einkum innan Reykjavíkur, verið að fremja stórfelld umhverfis- spjöll. Í meira en aldarfjórðung hef ég gagnrýnt hvernig heilu hverfin hafa verið skipulögð og byggð án þess að séð verði að tillit sé tekið til íslensks veðurfars eða landfræðilegr- ar legu landsins. Ofan á þetta bætist svo að einstakar byggingar eru þann- ig gerðar að þær geta skapað stór- hættu við tilteknar veðuraðstæður. Nýlega hefur síðan komið fram að þessi skipulags- og byggingarstefna hefur verulega neikvæð áhrif á vel- líðan fólks og jafnvel geðheilsu þess (sbr. rannsóknir dr. Páls Jakobs Lín- dal). Græðgi og skammsýni Það sem hefur ráðið för við uppbygg- ingu og skipulag í höfuðborginni er að mínu mati fyrst og fremst græðgi, tillitsleysi og skammsýni yfirvalda, hönnuða og byggingarverktaka. Þá hefur sú kenning að þétting byggðar sé ávallt til góðs leikið hér stórt hlut- verk. Samt hefur verið sýnt fram á að háreist þétting byggðar getur oft skapað meiri vandamál en hún á að leysa. Græðgisvæðing mið- bæjar Reykjavíkur (Skuggahverfi, Lækjargata og hafnarsvæðið) svo og Grandavegar, Höfðatorgs og Kringlusvæðisins verður örugglega til að rýra lífsgæði margra sem búa fyrir í þessum hverfum. T.d. með vindstrengjum, vindgný og skugga- myndun sem og frekari aukningu á umferðaröng þveiti og rykmengun vegna aukinnar umferðar. Borgar- lína í einhverri mynd eða götu- þrengingar munu ekki laga það nema að litlu leyti. Þessa skipulags- og háþéttingarstefnu mætti skilja ef hér á landi væri landrýmisskortur eða hér byggju margar milljónir manna. Hvorugu er þó til að dreifa. Í einu þéttbýlasta landi Evrópu, Hollandi, hef ég óvíða séð viðlíka skipulagslegan hrylling og hér og hef ég þó komið í allmargar borgir þar, jafnvel mörgum sinnum stærri en Reykjavík. Ferköntuð hugsun Með örfáum undantekningum eru nýju hverfin byggð í því sem ég kalla gámastíl. Einfaldir kassar, 5 til 20 hæða með flötum þökum sem ekki eru að neinu leyti í stíl við þá byggð sem fyrir er í borginni eða öðrum bæjum höfuðborgarsvæðisins. Jafnvel þótt verið sé að byggja við hliðina á eldri húsum er ekki reynt að hafa samfelldni í byggðinni eða ná fram heildarsvip. Gott dæmi um þetta eru fimm hæða gámastæðurnar sem reistar hafa verið sunnan við Útvarpshúsið, nánast skagandi út í Bústaðaveginn. Einhver hefði kannski reynt að taka tillit til þeirra formfallegu húsa sem byggð voru fyrir fáum áratugum litlu vestar við götuna. Sama má auðvitað segja um Skuggahverfið sem er svo skuggalegt að maður verður nánast Gámastíll og græðgisvæðing Magnús Jónsson veðurfræðingur þunglyndur af því að koma inn í það í bleytu og myrkri. Í fyrrahaust heimsótti ég minn gamla heimabæ, Uppsala í Svíþjóð sem er með álíka íbúafjölda og Reykjavík og Kópavogur saman. Á þeim 40 árum sem liðin eru síðan ég bjó þarna hefur mikið verið byggt, byggðin þétt og útvíkkuð. Þrennt vakti sérstaka athygli mína: Í fyrsta lagi hafa nánast engin háhýsi verið byggð í borginni og hvergi inni í grónum íbúðarhverfum. Í öðru lagi eru flest ný fjölbýlishús 3-5 hæðir í stíl við þau sem þar voru þegar ég átti þarna heima. Í þriðja lagi er húsagerðin meira og minna svipuð og hún var í borginni gömlu þar sem menn virðast taka tillit til þess að vindurinn streymir auðveldar yfir rislaga þök en flöt og að heppilegra sé að láta regnið og snjóinn renna af þökum húsanna en að gera flest þök að safnþró fyrir úrkomu, óhreinindi og gróður eins og gert er hér á höfuð- borgarsvæðinu. Auk þess er Uppsala þrátt fyrir þéttinguna með urmul opinna grænna svæða sem fengið hafa frið fyrir græðgissinna skipu- lagsyfirvöldum og byggingarverk- tökum. Geðheilsa og vellíðan Nýlega hefur komið fram að gáma- stíllinn og háhýsin valda bæði van- líðan og depurð hjá mörgum mann- inum. Er það í fullu samræmi við það sem ég las fyrir margt löngu, að fólki almennt, einkum börnum, liði mun betur í lágum húsum en háum. Þetta á örugglega enn frekar við hér en í öðrum löndum enda hér bæði vindasamara og skuggsælla (sólin lágt á lofti) en víðast hvar annars staðar. Auk þess ku lögun, litir og birta frá húsum skipta máli. Það er því að vonum að hér skulu heilu hverfin byggð svörtum eða dökk- gráum háhýsum. Er ég ekki í nokkr- um vafa um að slíkt umhverfi hefur mun meiri neikvæð áhrif á líðan fólks heldur en birtutími og stilling klukkunnar á sumar- eða vetrartíma. Lokaorð Fyrir rúmum fjórum áratugum tókst að bjarga Bernhöftstorfunni frá skammsýnum skipulags yfir völdum. Var það virkilega gert til þess að hálfri öld síðar verði búið að „rústa“ heildarsvip á Lækjargötunni með byggingu yfirgnæfandi gámakumb- alda fyrir auðjöfra? Götu í hjarta borgarinnar þar sem fyrir standa mörg af sögufrægustu og fallegustu húsum hennar sem verða nú ofur- liði borin af ljótleikanum. Manni blöskrar að sjá og reyna þau ósköp sem þarna eru að eiga sér stað. Græðgisvæðing miðbæjar Reykjavíkur (Skuggahverfi, Lækjargata og hafnarsvæðið) svo og Grandavegar, Höfða­ torgs og Kringlusvæðisins verður örugglega til að rýra lífsgæði margra sem búa fyrir í þessum hverfum. T.d. með vindstrengjum, vindgný og skuggamyndun sem og frek­ ari aukningu á umferðaröng­ þveiti og rykmengun vegna aukinnar umferðar. *M ið að v ið u pp ge fn ar tö lu r f ra m le ið an da u m e ld sn ey tis no tk un í bl ön du ðu m a ks tr i BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 E N N E M M / S ÍA / N M 8 9 7 9 8 R e n a u lt 3 x a t v in n u b íl a r 5 x 2 0 s e p t www.renault.is Þú tankar sjaldnar á Renault sendibíl RENAULT KANGOO, DÍSIL 1,5 L. VÉL, 90 HESTÖFL Verð: 2.330.000 kr. án vsk. 2.890.000 kr. m. vsk. Eyðsla 4,3 l/100 km* RENAULT TRAFIC, DÍSIL 1,6 L. VÉL, 115 HESTÖFL Verð frá: 3.137.000 kr. án vsk. 3.890.000 kr. m. vsk. Eyðsla frá 6,5 l/100 km* RENAULT MASTER, DÍSIL 2,3 L. VÉL, 125 HESTÖFL Verð frá: 3.911.000 kr. án vsk. 4.850.000 kr. m. vsk. Eyðsla 7,8 l/100 km* S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11M i ð V i k u D A G u R 1 9 . S e p T e M B e R 2 0 1 8 1 9 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :3 4 F B 0 4 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 D B -E 1 4 0 2 0 D B -E 0 0 4 2 0 D B -D E C 8 2 0 D B -D D 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 0 s _ 1 8 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.