Fréttablaðið - 19.09.2018, Síða 11
Að mínu áliti er með núverandi skipulags- og byggingar-stefnu á höfuðborgarsvæð-
inu, einkum innan Reykjavíkur,
verið að fremja stórfelld umhverfis-
spjöll. Í meira en aldarfjórðung hef
ég gagnrýnt hvernig heilu hverfin
hafa verið skipulögð og byggð án
þess að séð verði að tillit sé tekið til
íslensks veðurfars eða landfræðilegr-
ar legu landsins. Ofan á þetta bætist
svo að einstakar byggingar eru þann-
ig gerðar að þær geta skapað stór-
hættu við tilteknar veðuraðstæður.
Nýlega hefur síðan komið fram að
þessi skipulags- og byggingarstefna
hefur verulega neikvæð áhrif á vel-
líðan fólks og jafnvel geðheilsu þess
(sbr. rannsóknir dr. Páls Jakobs Lín-
dal).
Græðgi og skammsýni
Það sem hefur ráðið för við uppbygg-
ingu og skipulag í höfuðborginni er
að mínu mati fyrst og fremst græðgi,
tillitsleysi og skammsýni yfirvalda,
hönnuða og byggingarverktaka. Þá
hefur sú kenning að þétting byggðar
sé ávallt til góðs leikið hér stórt hlut-
verk. Samt hefur verið sýnt fram
á að háreist þétting byggðar getur
oft skapað meiri vandamál en hún
á að leysa. Græðgisvæðing mið-
bæjar Reykjavíkur (Skuggahverfi,
Lækjargata og hafnarsvæðið) svo
og Grandavegar, Höfðatorgs og
Kringlusvæðisins verður örugglega
til að rýra lífsgæði margra sem búa
fyrir í þessum hverfum. T.d. með
vindstrengjum, vindgný og skugga-
myndun sem og frekari aukningu á
umferðaröng þveiti og rykmengun
vegna aukinnar umferðar. Borgar-
lína í einhverri mynd eða götu-
þrengingar munu ekki laga það
nema að litlu leyti. Þessa skipulags-
og háþéttingarstefnu mætti skilja ef
hér á landi væri landrýmisskortur
eða hér byggju margar milljónir
manna. Hvorugu er þó til að dreifa.
Í einu þéttbýlasta landi Evrópu,
Hollandi, hef ég óvíða séð viðlíka
skipulagslegan hrylling og hér og
hef ég þó komið í allmargar borgir
þar, jafnvel mörgum sinnum stærri
en Reykjavík.
Ferköntuð hugsun
Með örfáum undantekningum eru
nýju hverfin byggð í því sem ég kalla
gámastíl. Einfaldir kassar, 5 til 20
hæða með flötum þökum sem ekki
eru að neinu leyti í stíl við þá byggð
sem fyrir er í borginni eða öðrum
bæjum höfuðborgarsvæðisins.
Jafnvel þótt verið sé að byggja við
hliðina á eldri húsum er ekki reynt
að hafa samfelldni í byggðinni eða
ná fram heildarsvip.
Gott dæmi um þetta eru fimm
hæða gámastæðurnar sem reistar
hafa verið sunnan við Útvarpshúsið,
nánast skagandi út í Bústaðaveginn.
Einhver hefði kannski reynt að taka
tillit til þeirra formfallegu húsa sem
byggð voru fyrir fáum áratugum litlu
vestar við götuna. Sama má auðvitað
segja um Skuggahverfið sem er svo
skuggalegt að maður verður nánast
Gámastíll og græðgisvæðing
Magnús
Jónsson
veðurfræðingur
þunglyndur af því að koma inn í það
í bleytu og myrkri.
Í fyrrahaust heimsótti ég minn
gamla heimabæ, Uppsala í Svíþjóð
sem er með álíka íbúafjölda og
Reykjavík og Kópavogur saman. Á
þeim 40 árum sem liðin eru síðan ég
bjó þarna hefur mikið verið byggt,
byggðin þétt og útvíkkuð. Þrennt
vakti sérstaka athygli mína: Í fyrsta
lagi hafa nánast engin háhýsi verið
byggð í borginni og hvergi inni í
grónum íbúðarhverfum. Í öðru lagi
eru flest ný fjölbýlishús 3-5 hæðir
í stíl við þau sem þar voru þegar
ég átti þarna heima. Í þriðja lagi er
húsagerðin meira og minna svipuð
og hún var í borginni gömlu þar
sem menn virðast taka tillit til þess
að vindurinn streymir auðveldar yfir
rislaga þök en flöt og að heppilegra
sé að láta regnið og snjóinn renna af
þökum húsanna en að gera flest þök
að safnþró fyrir úrkomu, óhreinindi
og gróður eins og gert er hér á höfuð-
borgarsvæðinu. Auk þess er Uppsala
þrátt fyrir þéttinguna með urmul
opinna grænna svæða sem fengið
hafa frið fyrir græðgissinna skipu-
lagsyfirvöldum og byggingarverk-
tökum.
Geðheilsa og vellíðan
Nýlega hefur komið fram að gáma-
stíllinn og háhýsin valda bæði van-
líðan og depurð hjá mörgum mann-
inum. Er það í fullu samræmi við
það sem ég las fyrir margt löngu, að
fólki almennt, einkum börnum, liði
mun betur í lágum húsum en háum.
Þetta á örugglega enn frekar við hér
en í öðrum löndum enda hér bæði
vindasamara og skuggsælla (sólin
lágt á lofti) en víðast hvar annars
staðar. Auk þess ku lögun, litir og
birta frá húsum skipta máli. Það er
því að vonum að hér skulu heilu
hverfin byggð svörtum eða dökk-
gráum háhýsum. Er ég ekki í nokkr-
um vafa um að slíkt umhverfi hefur
mun meiri neikvæð áhrif á líðan
fólks heldur en birtutími og stilling
klukkunnar á sumar- eða vetrartíma.
Lokaorð
Fyrir rúmum fjórum áratugum tókst
að bjarga Bernhöftstorfunni frá
skammsýnum skipulags yfir völdum.
Var það virkilega gert til þess að
hálfri öld síðar verði búið að „rústa“
heildarsvip á Lækjargötunni með
byggingu yfirgnæfandi gámakumb-
alda fyrir auðjöfra? Götu í hjarta
borgarinnar þar sem fyrir standa
mörg af sögufrægustu og fallegustu
húsum hennar sem verða nú ofur-
liði borin af ljótleikanum. Manni
blöskrar að sjá og reyna þau ósköp
sem þarna eru að eiga sér stað.
Græðgisvæðing miðbæjar
Reykjavíkur (Skuggahverfi,
Lækjargata og hafnarsvæðið)
svo og Grandavegar, Höfða
torgs og Kringlusvæðisins
verður örugglega til að rýra
lífsgæði margra sem búa fyrir
í þessum hverfum. T.d. með
vindstrengjum, vindgný og
skuggamyndun sem og frek
ari aukningu á umferðaröng
þveiti og rykmengun vegna
aukinnar umferðar.
*M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
tö
lu
r f
ra
m
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tr
i
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
9
7
9
8
R
e
n
a
u
lt
3
x
a
t
v
in
n
u
b
íl
a
r
5
x
2
0
s
e
p
t
www.renault.is
Þú tankar sjaldnar
á Renault sendibíl
RENAULT KANGOO, DÍSIL
1,5 L. VÉL, 90 HESTÖFL
Verð: 2.330.000 kr. án vsk.
2.890.000 kr. m. vsk.
Eyðsla 4,3 l/100 km*
RENAULT TRAFIC, DÍSIL
1,6 L. VÉL, 115 HESTÖFL
Verð frá: 3.137.000 kr. án vsk.
3.890.000 kr. m. vsk.
Eyðsla frá 6,5 l/100 km*
RENAULT MASTER, DÍSIL
2,3 L. VÉL, 125 HESTÖFL
Verð frá: 3.911.000 kr. án vsk.
4.850.000 kr. m. vsk.
Eyðsla 7,8 l/100 km*
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11M i ð V i k u D A G u R 1 9 . S e p T e M B e R 2 0 1 8
1
9
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:3
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
D
B
-E
1
4
0
2
0
D
B
-E
0
0
4
2
0
D
B
-D
E
C
8
2
0
D
B
-D
D
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
1
8
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K