Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.09.2018, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 19.09.2018, Qupperneq 28
PwC | Sími 550 5300 | www.pwc.is PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar, endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem aðstoðar viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn. Reykjavík | Akureyri | Reykjanesbær | Húsavík | Selfoss | Hvolsvöllur Bókhald Áhættustýring Endurskoðun Verðmæti Hafðu samband því þinn árangur er mikils virði. Ráðgjöf Hámarkaðu árangurinn þinn og verðmæti með því að nýta þér fjölbreytta þekkingu og víðtæka reynslu PwC á öllum sviðum rekstrar Skattamál Jafnlaunavottun Markaðurinn instagram fréttablaðsins @frettabladidfrettabladid.is Miðvikudagur 19. september 2018fylgirit fréttablaðsins um Viðskipti og fjármál | Stjórnar- maðurinn 13.09.2018 @stjornarmadur Mókollur, félag Péturs Guðmundssonar, hagnaðist um rúma 2,2 milljarða króna á árinu 2017 en það er þriðjungi meiri hagnaður en árið á undan. Mestu munar um matsbreytingu fasteigna sem var 1,4 milljarðar á síðasta ári en um 750 milljónir árið 2016. Mókollur er fjárfestingarfélag sem er að fullu í eigu Péturs og fjárfestir einkum í félögum tengdum byggingariðnaði og fast- eignarekstri. Innan samstæðunnar eru sautján félög, þar á meðal byggingarverktakinn Eykt. Verðmætasta eign Mókolls er hótelbyggingin við Höfðatorg sem er bókfærð á átta milljarða. Þá er skrifstofuhúsnæðið við Höfðatorg sem hýsir skrifstofur Reykjavíkurborgar bók- fært á 4,2 milljarða króna og atvinnu- húsnæðið að Fosshálsi 25 á 2,3 milljarða. Alls nema eignir Mókolls rúmum 30 millj- örðum króna og eigið féð 11,7 milljörðum. Pétur bætti nýlega við hlut sinn í Steypu- stöðinni. Hann keypti 40 prósent og jók þannig hlut sinn upp í 90 prósent. – tfh Félag Péturs í Eykt hagnast um 2,2 milljarða Vinnslustöðin veiðir lítið á sínum skipum. Þeir lifa á því að leigja kvótann og reksturinn er subbulegur eins og komið hefur í ljós. Guðmundur Kristjáns- son, forstjóri og stærsti hluthafi HB Granda Langþráð fréttatilkynning af skulda­ fjárútboði WOW air barst loks í gær. Félaginu tókst að loka 50 milljóna evra útgáfu og hyggur á útgáfu 10 milljóna evra til viðbótar. Til lengri tíma er ætlunin að skrá félagið samhliða á hlutabréfamarkaði hér heima og í Noregi. Ef framtíðarfjár­ mögnun WOW er þar með tryggð eru það auðvitað gleðitíðindi fyrir Ísland og íslenska markaðinn. WOW flytur þriðja hvern farþega til landsins, og er stór atvinnurekandi. Þá er ekki minnst á alla þá sem eiga störf sín og starfsöryggi undir því að ferðamenn skili sér til landsins. Afleidd störf skipta sennilega tugum þúsunda. Fall WOW eða Icelandair hefði því samkvæmt öllum mælikvörðum getað haft mikil bein áhrif á efna­ hagsástandið á Íslandi og lífsgæði þúsunda. Er því ekki nema von að fjölmiðlar hafi fylgst náið með málinu. Fréttablaðið var leiðandi í þessari umfjöllun alla síðustu viku og má segja að gengi hlutabréfa og gjaldmiðils hafi sveiflast í takt við forsíður að morgni. Morgunblaðið gerði málinu sömuleiðis góð skil. Auðvitað er það svo að í viðkvæm­ um og mikilvægum málum orkar ýmislegt tvímælis. Svo virðist hins vegar í þessu máli sem miðlarnir hafi farið rétt með í öllum megin­ atriðum. Því skaut það nokkuð skökku við að sjá reyndan fjölmiðlamann af ríkismiðlinum slá því fram á Twitter að svo virtist sem stóru blöðin tvö hefðu skipað sér í lið þegar kemur að umfjöllun um málefni flugfélag­ anna. Ekki var það reyndar rökstutt nánar hvað fjölmiðlamaðurinn átti við. Hins vegar lýsir þessi athuga­ semd einkennilegri heimssýn. Er óhugsandi að blaðamönnunum hafi hreinlega gengið það eitt til að flytja fréttir af máli sem sannarlega átti erindi við almenning, og segja satt og rétt frá? Að minnsta kosti tókst fjölmiðlamanninum ekki að benda á nein ósannindi eða ónákvæmni í fréttaflutningi. Kannski veitir staðhæfingin einfaldlega innsýn í vinnustaðamenninguna á RÚV, þar skipi fólk sér í fylkingar áður en umfjöllun hefst? Hvað sem slíkum bollaleggingum líður er að minnsta kosti ljóst að RÚV var ekki í neinu liði þegar kom að umfjöllun um málefni flugfélag­ anna, enda hafði stofnunin ekkert til málanna að leggja annað en endurtekningar á því sem áður kom fram í þeim fjölmiðlum sem lögðu sig fram um að kynna sér málið. Einkennileg heimssýn 1 9 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :3 4 F B 0 4 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 D B -F 5 0 0 2 0 D B -F 3 C 4 2 0 D B -F 2 8 8 2 0 D B -F 1 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 0 s _ 1 8 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.