Fréttablaðið - 24.09.2018, Síða 2
Veður
Allhvöss eða hvöss suðvestanátt og
vætusamt í dag, en úrkomuminna
austan til og fremur milt veður.
sjá síðu 20
BRIDS
SKÓLINN
Námskeiðin hefjast í næstu viku ...
BYRJENDUR (stig 1) 1. okt. 8 mánudagar frá 20-23
KERFIÐ (stig 2) 3. okt. 8 miðvikudagar frá 20-23
STIG 1 Hvað þarf að kunna fyrirfram? Ekki neitt, en það
spillir ekki að þekkja ás frá kóng. Ekkert mál að mæta ein/einn.
STIG 2 Farið er vel yfir framhald sagna í Standard og ýmsar
stöður í sagnbaráttu. Mikið spilað og hægt að koma ein/einn.
Upplýsingar og innritun ...
í síma 898-5427 og á netinu bridge.is
Staður: Síðumúli 37, Reykjavík - Bridgesamband Íslands
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
Fiðrildi fyrir frumsýningu fréttamyndvers
Erna Ómarsdóttir. Fréttablaðið/GVa
samfélag Erna Ómarsdóttir, listrænn
stjórnandi Íslenska dansflokksins, er
meðal þeirra listamanna sem stíga
fram og lýsa óviðeigandi hegðun og
kynferðislegri áreitni belgíska lista-
mannsins Jan Fabre í ítarlegri umfjöll-
un The New York Times í gær. Í viðtali
við bandaríska stórblaðið lýsir Erna
því hvernig Fabre hafi haldið að henni
fíkniefnum í myndatöku í íbúð hans
og hún ekki þorað að neita honum.
Fabre þessi er einn virtasti lista-
maður Belga og þiggur sem nemur
ríflega 100 milljónum króna frá belg-
íska ríkinu á ári hverju. Verk hans
hafa verið sýnd í helstu söfnum og
sýningarsölum listheimsins auk þess
sem hann hefur verið sæmdur æðstu
orðu belgíska ríkisins.
Fyrr í þessum mánuði skrifuðu 20
listamenn bréf í anda Metoo-bylt-
ingarinnar sem birtist í belgískum
fjölmiðlum en þar er Fabre sakaður
um kynferðislega áreitni.
Í úttekt The New York Times í gær
lýsir Erna samskiptum sínum við
Fabre en hún gekk til liðs við fyrirtæki
hans þegar hún var rétt um tvítugt.
Hún hafi notið þess að vinna með
honum fyrst en það breyst þegar hann
bað hana að sitja fyrir hjá sér. Þar hafi
hann viljað mynda augu hennar á
meðan hún stundaði sjálfsfróun,
nokkuð sem hún hafi ekki þorað að
segja nei við.
„Þú vissir að ef þú hafnaðir honum
myndi það koma niður á þér annars
staðar,“ er haft eftir Ernu. Þá hafi hann
í annað sinn haldið að henni kókaíni
og áfengi þar til hún hafi látið undan.
Erna kveðst hafa viljað stíga fram
til að vara aðra dansara við og stöðva
Fabre. – smj
Vill vara aðrar
við Jan Fabre
stjórnmál Árshátíð Stjórnar-
ráðsins sem halda átti 6. október
næstkomandi hefur verið blásin
af eftir afskipti tveggja ráðherra í
ríkisstjórninni. Samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins gætir nokk-
urrar óánægju meðal starfsmanna
vegna þessarar afskiptasemi ráð-
herranna af skemmtanahaldi starfs-
manna, en það mun vera dagsetn-
ingin sem ráðherrunum hugnast
ekki. Á umræddum degi verða tíu
ár liðin frá því að Geir H. Haarde,
þáverandi forsætisráðherra, flutti
tilfinningaþrungið sjónvarpsávarp
sem endaði á orðunum „Guð blessi
Ísland“. Ávarpið markar í hugum
flestra Íslendinga upphaf efnahags-
hrunsins.
Ráðuneytin skiptast á að halda
árshátíð Stjórnarráðsins og að þessu
sinni var röðin komin að mennta-
og menningarmálaráðuneytinu. Er
skipulagningin í höndum starfs-
mannafélags ráðuneytisins.
Þegar spurðist út um ráðuneytið
að halda ætti árshátíðina 6. október
mun Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra, hafa lýst
áhyggjum af dagsetningunni við
Katrínu Jakobsdóttur forsætisráð-
herra. Hafi þær báðar í kjölfarið lýst
andstöðu sinni við skipuleggjendur
og lagt bann við því að árshátíðin
yrði haldin umrætt kvöld. Hefur
árshátíðinni því verið frestað fram
á næsta vor.
Björk Óttarsdóttir, formaður
starfsmannafélags ráðuneytisins,
vildi ekki tjá sig um málið þegar
Fréttablaðið sló á þráðinn en sam-
kvæmt heimildum blaðsins hefur
málið verið töluvert rætt á göngum
menntamálaráðuneytisins. Furða
einhverjir starfsmanna sig á þessari
afskiptasemi ráðherranna tveggja
og óþarfa viðkvæmni með dagsetn-
inguna. Aðrir starfsmenn Stjórnar-
ráðsins hafi hins vegar samúð með
sjónarmiðum ráðherranna um
að partístand æðstu ráðamanna
þjóðarinnar á þessum degi myndi
lýsa skeytingarleysi á þessum tíma-
mótum.
Atburðirnir fyrir tíu árum eru ráð-
herrunum tveimur eflaust minnis-
stæðir en Katrín var þingmaður í
stjórnarandstöðu í október 2008 og
varð ráðherra í minnihlutastjórn-
inni sem tók við í lok janúar 2009.
Lilja starfaði hins vegar sem sér-
fræðingur í Seðlabankanum þegar
hrunið varð og ætla má að þessir
dagar í október 2008 líði hvorugri
þeirra úr minni. Hvorki Lilja né
Katrín vildu hins vegar tjá sig um
málið þegar eftir því var leitað.
adalheidur@frettabladid.is
Katrín bannar djamm á
tíu ára afmæli hrunsins
Halda átti árshátíð Stjórnarráðsins 6. október næstkomandi. Forsætisráðherra
stöðvaði þau áform eftir samtal við menntamálaráðherra. Nokkurrar óánægju
gætir í starfsliðinu með afskiptasemi og meinta viðkvæmni ráðherranna.
Geir flutti þjóðinni minnisstætt
ávarp þann 6. október 2008.
Katrín Jakobsdóttir og lilja alfreðsdóttir vilja ekki skemmta sér með öðru
starfsfólki ráðuneytanna á tíu ára afmæli hrunsins. Fréttablaðið/anton brinK
Ríkisútvarpið frumsýndi á föstudag nýtt og tæknivætt fréttamyndver sem leysir af hólmi eldra óhagkvæmara myndver. Kostnaður við hið nýja
myndver er áætlaður 184 milljónir króna. Tilhlökkun og spenna skein úr augum þeirra Jóhönnu Vigdísar Hjaltadóttur og Rakelar Þorbergsdótt-
ur fréttastjóra fyrir frumsýninguna á föstudag. Ekki var annað að sjá en að allt hefði gengið að óskum í útsendingunni. Fréttablaðið/SiGtryGGur ari
nÝja-sjálanD Nálar hafa fund-
ist í jarðarberjum í stórmarkaði
í Auckland á Nýja-Sjálandi.
Umrædd jarðarber voru innflutt
frá Ástralíu.
Undanfarnar vikur hafa nálar
og títuprjónar fundist í jarðar-
berjum í verslunum í Ástralíu en
yfir hundrað slíkar tilkynningar
hafa borist. Talið er að hluta þeirra
megi rekja til fólks sem hefur tekið
upp á því að troða nálum í ber eftir
að sagt var frá málinu í fréttum.
Málið hefur orðið til þess að
sala á ávöxtum og berjum hefur
dregist saman og nauðsynlegt
hefur verið að henda tonnum af
matvælunum. Ástralskir bændur
óttast að það muni hafa talsverð
áhrif á afkomu sína í lok árs.
Enginn hefur slasast vegna þessa
en yfirvöld hvetja fólk til að skoða
og skera ávextina áður en þeirra er
neytt. – jóe
Nálar í berjum
á Nýja-Sjálandi
2 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 m á n u D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
2
4
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:3
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
E
5
-4
A
C
0
2
0
E
5
-4
9
8
4
2
0
E
5
-4
8
4
8
2
0
E
5
-4
7
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K