Fréttablaðið - 24.09.2018, Side 6

Fréttablaðið - 24.09.2018, Side 6
Meira til skiptanna Reykjavík Skuldir Gagnaveitu Reykjavíkur, dótturfélags Orkuveitu Reykjavíkur, jukust um tæplega fjóra milljarða milli ára samkvæmt nýbirtum ársreikningi félagsins fyrir árið 2017. Fjárfest var fyrir ríflega 3,2 milljarða króna í fyrra eða hátt í sömu upphæð og kynnt var fyrir borgarstjórn í árslok 2016 að ætti að fjárfesta fyrir á fimm ára tíma- bili 2018-2022. Framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur (GR), Erling Freyr Guð- mundsson, segir að hina auknu skuldsetningu félagsins upp á 3.938 milljónir í fyrra megi rekja til aukinna fjárfestinga í innviðaupp- byggingu höfuðborgarsvæðisins í verkefnum ársins 2017 og að hluta til 2018. Árið 2017 hafi verið stærsta framkvæmdaár GR þegar 11 þúsund heimili voru tengd við ljósleiðar- ann. Samhliða fjölgun viðskiptavina hafi tekjur aukist um 321 milljón á milli ára, úr 1,8 milljörðum í 2,1 milljarð. Heildarskuldir GR fóru á síðasta ári úr 7,6 milljörðum í 11,5 milljarða. Á síðasta ári var samkvæmt árs- reikningi fjárfest fyrir rúmlega 3,2 milljarða en samkvæmt fjárfest- ingaráætlun OR sem lögð var fyrir borgarstjórn í nóvember 2016 var gert ráð fyrir að fjárfesting vegna gagnaveitu yrði alls 3,9 milljarðar króna á árunum 2018 til 2022. Í uppfærðu plani tæpu ári síðar, í október 2017, var sú áætlun komi í 7,4 milljarða. Aðspurður um þessa hækkun segir Erling að hin upp- færða áætlun hafi verið útkomuspá ársins 2017. „Tímabil hennar var því heilu ári lengri en hinnar. Síðari áætlunin var líka gerð með uppfærðum for- sendum sem tóku tillit til örari vaxtar. Meðal þess sem breyttist var aukin eftirspurn á fyrirtækjamark- aði, fleiri nýbyggingar, vinsældir á Eitt gíg þjónustuleið ljósleiðarans til heimila og sum svæði reyndust dýrari en fyrirséð var til að ljúka ljósleiðaravæðingu höfuðborgar- svæðisins.“ Erling segir að miðað við stöðuna í dag bendi allt til að heildarniður- staða 2018 verði jákvæð í árslok, þrátt fyrir allar þær fjárfestingar sem staðið hafi verið í og fara á í á árinu. Gagnaveita Reykjavíkur hefur aldrei skilað hagnaði en tap félagsins nam tæplega hundrað milljónum í fyrra, samanborið við 172 milljónir árið áður. mikael@frettabladid.is Skuldir Gagnaveitunnar jukust um fjóra milljarða á síðasta ári Aukin innviðauppbygging varð til þess að skuldir Gagnaveitu Reykjavíkur, dótturfélags Orkuveitunnar, jukust um tæpa fjóra milljarða í fyrra. Fjárfest var fyrir 3,2 milljarða í fyrra. Áætlun sem kynnt var borgar- stjórn í árslok 2016 gerði ráð fyrir fjárfestingu upp á 3,9 milljarða til fimm ára. Örari vöxtur skýringin. Aukin innviðauppbygging og örari vöxtur en gert hafði verið ráð fyrir hjá Gagnaveitunni. Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur, segir allt benda til að niðurstaðan í árslok nú verði jákvæð. FRéttAblAðið/GVA Sum svæði reyndust dýrari en fyrirséð var til að ljúka ljósleiðara- væðingu höfuðborgarsvæðis- ins. Erling Freyr Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur SamgönguR Indverjinn Sushil Reddy lauk í gær hringferð sinni um landið á rafhjóli. Ferðalag Reddy hófst miðvikudaginn 12. september og tók ferðalagið því 11 daga. Setti það reyndar strik í reikninginn að hann þurfti að taka sér tveggja daga hvíld sökum hvassviðris. Reddy fór hringinn á IKEA-rafhjóli með sólar- sellu á tengivagni. Tilgangur ferða- lagsins var að vekja athygli á vist- vænum samgöngum en ferðafélagi Reddy fylgdi honum á Volkswagen Golf rafbíl. Ferðalagið mun að sögn hafa gengið vel. Reddy hefur þrisvar áður farið í langferð á rafhjóli, fyrst 7.400 kíló- metra um Indland sem skráð var í Heimsmetabók Guinness sem lengsta rafhjólaferð sögunnar. Síðan hefur hann hjólað bæði um Frakk- land og Bandaríkin til að vekja athygli á vistvænum orkugjöfum. Hringferð hans hér á landi er farin í tengslum við Charge-ráðstefnuna sem fram fer í Hörpu í dag og á morgun þar sem framtíð orkumála verður rædd. – smj Í kringum landið á ellefu dögum Reddy á rafhjólinu. FRéttAblAðið/ERniR LögRegLumáL Upp kom vélarbilun í tvíþekju á flugi nærri Reykjavík síðdegis í gær. Samkvæmt upp- lýsingum frá lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu kom bilunin ekki að sök og tókst að lenda vélinni á Reykjavíkurflugvelli án vand- kvæða. – smj Vélarbilun í tvíþekju aLþingi Sex frumvörp eru á þing- málaskrá ríkisstjórnarinnar sem eiga uppruna sinn í svokallaðri IMMI- ályktun Alþingis frá árinu 2010. Frumvörpin eru unnin af nefnd for- sætisráðherra um umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upp- lýsingafrelsis. Nefndin hefur meðal annars haft til skoðunar fyrirliggj- andi frumvörp stýrihóps sem skip- aður var í kjölfar fyrrnefndrar álykt- unar Alþingis um að Ísland skapi sér afgerandi lagalega sérstöðu varðandi vernd tjáningar- og upplýsingafrelsis. Ráðgert er að frumvörpin verði lögð fram í desember, nema frum- varp um bætur vegna ærumeiðinga sem sett er á dagskrá í mars en ákvæði þar að lútandi á að færa úr refsirétti í einkarétt og endurskoða með hlið- sjón af dómaframkvæmd hér á landi og hjá Mannréttindadómstól Evrópu. Einnig á að mæla fyrir nýjum lögum um vernd uppljóstrara sem skýra frá lögbrotum eða brotum á siðareglum sem þeir verða áskynja um í starfi; gera breytingar á þagnarskyldu- ákvæðum opinberra starfsmanna í stjórnsýslulögum og annarri löggjöf, auka skýrleika í ákvæði hegningar- laga um hatursáróður, auk breytinga sem tryggja eiga heimildarmönnum og hýsingaraðilum aukna vernd. Fjórir ráðherrar munu mæla fyrir málunum, forsætisráðherra, dóms- málaráðherra, samgöngu- og sveitar- stjórnarráðherra og nýsköpunar- ráðherra. Fleiri þingmál eru boðuð af ríkisstjórninni á sviði tjáningar- og upplýsingafrelsis. Má þar nefna bæði nýkynnt áform menntamálaráðherra um aukinn stuðning við einkarekna fjölmiðla og frumvarp forsætisráð- herra um breytingar á upplýsingalögum. – joe IMMI-frumvörp á dagskrá eftir átta ára bið Árið 2010 lagði birgitta Jónsdóttir fram tillögu um sérstöðu Íslands á sviði tjáningar- frelsis. tillagan var samþykkt en hefur velkst um í stjórnkerfinu síðan. FRéttAblAðið/ StEFÁn 2 4 . S e p t e m b e R 2 0 1 8 m á n u D a g u R6 f R é t t i R ∙ f R é t t a b L a ð i ð 2 4 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :3 4 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 E 5 -7 2 4 0 2 0 E 5 -7 1 0 4 2 0 E 5 -6 F C 8 2 0 E 5 -6 E 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.