Fréttablaðið - 01.10.2018, Blaðsíða 2
Veður
Stíf suðaustanátt og rigning eða
slydda. Dregur úr vindi og úrkomu
norðan- og norðvestanlands. Vestan
hvassviðri á Suðurlandi. sjá síðu 22
01 Smærri
viðgerðir
Hraðþjónusta HEKLU.
Hringdu í 590 50 30 eða renndu við.
Hekla.is
Kátir voru karlar
Vegagerðin fékk í gær Hvalfjarðargöngin afhent til eignar. Við athöfn af því tilefni voru meðal annarra Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar, og
tveir fyrrverandi samgönguráðherrar, Steingrímur J. Sigfússon úr VG og Halldór Blöndal úr Sjálfstæðisflokki. Sigurður Ingi Jóhannsson, núverandi
samgönguráðherra úr Framsóknarflokki, var einnig á staðnum ásamt Hreini Haraldssyni, fyrrverandi vegamálastjóra. Fréttablaðið/Sigtryggur ari
stjórnmál „Flest málin sem ég var
með voru tekin yfir af öðrum starfs-
mönnum en það voru þrjú mál
sem ég átti eftir að flytja og ég fékk
undan þágu til að klára það,“ segir
Diljá Mist Einarsdóttir, aðstoðar-
maður Guðlaugs Þórs Þórðarsonar
utanríkisráðherra.
Diljá hefur samhliða aðstoðar-
mannsstarfinu haldið áfram að
sinna lögmennsku hjá lögmanns-
skrifstofunni Lögmál, nú síðast
í Hæstarétti í síðustu viku. Hún
kveðst í tímabundnu leyfi frá
störfum hjá stofunni en hafa fengið
grænt ljós frá ráðuneytisstjóra,
þegar hún hóf störf, á að klára úti-
standandi mál. Sturla Sigurjóns-
son, ráðuneytisstjóri utanríkis-
ráðuneytisins, staðfestir þetta við
Fréttablaðið.
„En þegar ég flutti mig yfir í
febrúar bar ég það undir ráðu-
neytisstjórann hvort ég gæti klárað
útistandandi mál sem ætti eftir að
flytja og væru ekki ósamrýmanleg
störfum mínum fyrir ráðuneytið,“
segir Diljá.
Þar sem aðstoðarmenn eru pól-
itískt skipaðir þurfti ráðuneytið að
meta mögulega hagsmunaárekstra
út frá pólitísku samhengi frekar en
stjórnsýsluhlutverki ráðuneytisins.
Diljá segir að um hafi verið að
ræða þrjú mál sem hafi átt eftir að
flytja og þau hafi öll verið þess eðlis
að á það var fallist að hún fengi að
klára þau, á launum sem aðstoðar-
maður ráðherra. Aðstoðarmenn
ráðherra, sem mikið hefur verið
fjallað um að undanförnu vegna
mikils fjölda þeirra hjá núverandi
ríkisstjórn, fá um 1.200 þúsund
krónur á mánuði.
Diljá segir að hún fái ekki greitt
sérstaklega fyrir að flytja málin sem
um ræðir. En þegar komi til þess að
flytja málin, eins og í Hæstarétti
á dögunum sem hafi tekið tvær
klukkustundir, fái hún frí í vinnunni
sem aðstoðarmaður til að skjótast
frá.
„Svo bæti ég það upp síðar því
ekki minnkar staflinn í ráðuneyt-
inu þó ég skjótist og fari í þessi mál.“
Aðspurð segir hún það vissu-
lega vera fullt starf og rúmlega það
að vera aðstoðarmaður ráðherra.
„Jú, það er það. Maður er aldr-
ei í fríi. En það er þannig að þegar
maður hoppar skyndilega út eins
og ég gerði þarna í febrúar þá getur
verið rosalega erfitt að setja ein-
hvern annan inn í málin.“
mikael@frettabladid.is
Aðstoðarmanni heimilt
að flytja þrjú dómsmál
Diljá Mist Einarsdóttir hæstaréttarlögmaður, aðstoðarmaður utanríkisráðherra,
fékk leyfi ráðuneytisins til að flytja dómsmál sem hún var að vinna í er hún
gerðist aðstoðarmaður í febrúar. Fær ekki greitt sérstaklega fyrir að flytja málin.
aðstoðarmaður utanríkisráðherra, Diljá Mist Einarsdóttir, fékk leyfi til að
klára þrjú útistandandi dómsmál eftir að hún hóf störf. Fréttablaðið/gVa
Ekki minnkar
staflinn í ráðuneyt-
inu þó ég skjótist og fari í
þessi mál.
Diljá Mist Einarsdóttir,
aðstoðarmaðu
utanríkisráðherra
lögreglumál Erlendum ferða-
manni á sextugsaldri var bjargað í
gær úr í klettum í Skjálfandafljóti
talsvert neðan við Goðafoss. Mað-
urinn hafði fallið fram af klettunum
og reyndist vera með talsverða
áverka á höfði og var við skerta
meðvitund er náðist til hans að sögn
lögreglu. Hann var lemstraður víða
um líkamann.
„Ágætlega gekk að komast til hans
en hann hafði staðnæmst í klett-
unum og féll því aldrei í Skjálfanda-
fljótið sjálft,“ segir í tilkynningu sem
lögregla sendi frá sér síðdegis í gær.
Ferðamaðurinn var fluttur til Akur-
eyrar og síðan með þyrlu til Reykja-
víkur. „Þessi aðili er á ferðalagi hér á
landi ásamt fjölskyldu sinni og nutu
þau áfallahjálpar hjá áfallateymi
Rauða krossins á Akureyri.“ - gar
Bjargað eftir fall
í klettum við
Skjálfandafljót
goðafoss í Skjálfandafljóti er tignar-
legur. Fréttablaðið/VilhElM
Hlúð var að manninum á
Akureyri en hann síðan
fluttur með þyrlu til frekari
meðferðar á Landspítalanum
í Reykjavík.
Bretland Gjáin í breska Íhalds-
flokknum vegna útgöngumála
breikkar og dýpkar. Þetta kom í
ljós í gær á fyrsta degi landsfundar
flokksins, sem haldinn er í Birming-
ham og er sá síðasti fyrir útgöngu.
Sjálf kallaði Theresa May for-
sætisráðherra eftir því að flokks-
menn fylktu sér um útgöngustefnu
hennar, sem felur meðal annars í sér
áframhaldandi aðild að tollabanda-
lagi ESB og ESB segir ekki ganga upp.
Priti Patel, áður ráðherra í stjórn
May, sagði að Bretar ættu ekki undir
neinum kringumstæðum að sam-
þykkja áætlun forsætisráðherrans.
Þeir ættu heldur að búa sig undir
samningslausa útgöngu.
Jacob Rees-Mogg, einn leiðtoga
útgöngusinna innan flokksins, spáði
því svo að hvorki breska þingið né
ESB myndu samþykkja áætlunina.
Ekki þyrfti þó að óttast samnings-
lausa útgöngu. – þea
Harðnandi tónn
gegn stefnu May
1 . o k t ó B e r 2 0 1 8 m á n u d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
0
1
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:2
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
F
3
-4
A
2
4
2
0
F
3
-4
8
E
8
2
0
F
3
-4
7
A
C
2
0
F
3
-4
6
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
3
0
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K