Fréttablaðið - 01.10.2018, Blaðsíða 12
OPINN FUNDUR ÞRIÐJUDAGINN 2. OKTÓBER
KL. 12:45-14:00, STOFU N-132 Í ÖSKJU, HÁSKÓLA ÍSLANDS
Frummælendur:
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra
Michael Mann, yfirmaður sendinefndar ESB á Íslandi
Fundarstjóri: Guðrún Pétursdóttir, forstöðumaður Stofnunar
Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun
Fundurinn fer fram á ensku og er opinn öllum
Á fundinum verður farið yfir stöðu mála í
dag hvað varðar markmið Parísarsamkomu-
lagsins, sem náðist í desember 2015, og
aðgerðaráætlun Íslands í loftslagsmálum.
Fjallað verður um þann árangur sem hefur
náðst auk þess sem gert verður grein fyrir
brýnustu verkefnunum framundan, bæði
frá sjónarhóli Íslands og Evrópusambandins.
Nánari upplýsingar: www.caps.hi.is / www.esb.is / www.hi.is
ALÞJÓÐAMÁLASTOFNUN
RANNSÓKNASETUR UM NORÐURSLÓÐIR
HÁSKÓI ÍSLANDS
Sendinefnd ESB
á Íslandi UMHVERFIS- OG AUÐLINDAFRÆÐI
Parísarsamningurinn
2 árum seinna
Hverju hefur verið áorkað og hvað þarf að gera?
Valur - Keflavík 4-1
1-0 Einar Karl Ingvarsson (8.), 2-0 Haukur
Páll Sigurðsson (14.), 3-0 Aron Kári Aðal-
steinsson, sjálfsmark (19.), 4-0 Dion Acoff
(57.), 4-1 Helgi Þór Jónsson (88.).
Stjarnan - FH 0-1
0-1 Brandur Olsen (5.).
Breiðablik - KA 4-0
1-0 Thomas Mikkelsen, víti (5.), 2-0 Willum
Þór Willumsson (28.), 3-0 Willum Þór (35.),
4-0 Mikkelsen (67.).
Víkingur R. - KR 2-3
1-0 Rick Ten Voorde, víti (21.), 1-1 Óskar Örn
Hauksson (24.), 1-2 Atli Sigurjónsson (52.),
1-3 Halldór Smári Sigurðsson, sjálfsmark
(61.), 2-3 Geoffrey Castillion (70.).
Grindavík - ÍBV 2-5
1-0 Aron Jóhannsson (4.), 1-1 Gunnar Heiðar
Þorvaldsson (6.), 1-2 Gunnar Heiðar (10.),
2-2 Jose Sito Enrique (50.), 2-3 Jonathan
Franks (60.), 2-4 Kaj Leo í Bartalsstovu (83.),
2-5 Gunnar Heiðar (88.).
Fylkir - Fjölnir 7-0
1-0 Daði Ólafsson (27.), 2-0 Albert Brynjar
Ingason (38.), 3-0 Hákon Ingi Jónsson (41.),
4-0 Albert (66.), 5-0 Jonathan Glenn (74.),
6-0 Glenn (82.), 7-0 Albert (83.).
Rautt spjald: Guðmundur Karl Guðmunds-
son, Fjölni (52.).
Efri
Valur 46
Breiðablik 44
Stjarnan 40
KR 37
FH 37
ÍBV 29
Neðri
KA 28
Fylkir 26
Víkingur R. 25
Grindavík 25
Fjölnir 19
Keflavík 4
Nýjast
Pepsi-deild karla
Haukar - Keflavík 77-83
Haukar: LeLe Hardy 23/9 fráköst, Sigrún
Björg Ólafsdóttir 15, Þóra Kristín Jónsdóttir
13, Magdalena Gísladóttir 11, Rósa Björk
Pétursdóttir 7, Eva Kristjánsdóttir 4, Bríet
Lilja Sigurðardóttir 3, Akvilé Baronénaité 1.
Keflavík: Brittanny Dinkins 26, Bryndís
Guðmundsdóttir 18, Birna Benónýsdóttir
15, Salbjörg Sævarsdóttir 7/12 fráköst,
Erna Hákonardóttir 6, Telma Lind Ásgeirs-
dóttir 5, Embla Kristínardóttir 3, Katla Rún
Garðarsdóttir 3.
Meistarakeppni KKÍ kvenna
KR - Tindastóll 72-103
KR: Julian Boyd 28, Sigurður Á. Þorvaldsson
10, Björn Kristjánsson 7, Dino Stipcic 5,
Vilhjálmur Kári Jensson 5, Emil Barja 5, Jón
Arnór Stefánsson 4, Ólafur Þorri Sigurjóns-
son 3, Orri Hilmarsson 3, Þórir Lárusson 2.
Tindastóll: Urald King 27, Pétur Rúnar
Birgisson 19, Brynjar Þór Björnsson 17,
Danero Thomas 12, Dino Butorac 11, Viðar
Ágústsson 5, Ragnar Ágústsson 3, Helgi
Freyr Margeirsson 3, Finnbogi Bjarnason 2,
Hannes Ingi Másson 2, Helgi Rafn Viggós-
son 2.
Meistarakeppni KKÍ karla
Fótbolti Það var glatt á hjalla á
Hlíðarenda eftir að Vilhjálmur
Alvar Þórarinsson flautaði leik Vals
og Keflavíkur í lokaumferð Pepsi-
deildar karla á laugardaginn af.
Valsmenn unnu 4-1 og urðu þar með
Íslandsmeistarar annað árið í röð,
og í 22. sinn alls. Þetta er jafnframt í
fyrsta sinn síðan 1967 sem Valur ver
Íslandsmeistaratitilinn.
Síðan Ólafur Jóhannesson tók við
Val haustið 2014 hefur liðið unnið
stóran titil á hverju tímabili. Vals-
menn urðu bikarmeistarar 2015 og
2016 og Íslandsmeistarar í fyrra.
Valsmenn endurtóku leikinn
í ár. Þeir fóru rólega af stað, voru
aðeins með sex stig eftir fyrstu
fimm umferðirnar en svo komu sex
sigurleikir í röð sem komu þeim í bíl-
stjórasætið. Þrátt fyrir tap fyrir FH í
næstsíðustu umferðinni var Valur
í þeirri stöðu að þurfa aðeins að
vinna botnlið Keflavíkur til að verða
Íslandsmeistarar. Og það gekk eftir.
Þetta var fimmti Íslandsmeistara-
titillinn sem Ólafur vinnur á sínum
langa og merkilega þjálfaraferli. Eftir
fimm ára útlegð frá efstu deild sneri
Ólafur aftur til FH fyrir tímabilið
2003. Hann stýrði FH í fimm ár. Á
þeim tíma urðu FH-ingar þrisvar
sinnum Íslandsmeistarar, einu sinni
bikarmeistarar, lentu tvisvar í 2. sæti
í deild og einu sinni í bikar.
Ólafur sneri aftur í efstu deild
þegar hann tók við Val og tók upp
þráðinn frá tíma sínum hjá FH. Á
síðustu níu tímabilum Ólafs í efstu
deild hefur hann fimm sinnum orðið
Íslandsmeistari og þrisvar sinnum
bikarmeistari.
Með Íslandsmeistaratitlinum í ár
jafnaði Ólafur lærisvein sinn, Heimi
Guðjónsson, í fjölda titla. Óli B. Jóns-
son er sá eini sem hefur unnið fleiri
titla (6) en Ólafur frá deildaskipt-
ingu 1955. Miðað við uppganginn á
Hlíðar enda og eldmóðinn sem Ólafur
býr yfir er margt ólíklegra en að hann
verði kominn á toppinn yfir sigur-
sælustu þjálfara Íslands innan tíðar.
ingvithor@frettabladid.is
Kóngurinn Ólafur Jóh
Síðustu níu tímabil
Ólafs í efstu deild
FH
2003: 2. sæti í deild og bikar
2004: Íslandsmeistari
2005: Íslandsmeistari
2006: Íslandsmeistari
2007: 2. sæti í deild og bikar-
meistari
Valur
2015: 5. sæti í deild og bikar-
meistari
2016: 5. sæti í deild og bikar-
meistari
2017: Íslandsmeistari
2018: Íslandsmeistari
Fótbolti Gunnar Heiðar Þorvalds-
son skoraði þrennu í síðasta leik
sínum á ferlinum, þegar ÍBV vann
Grindavík, 2-5, í lokaumferð Pepsi-
deildar karla á laugardaginn. Það
var viðeigandi að Gunnar Heiðar
skyldi enda ferilinn á því að skora
á Grindavíkurvelli en þar skoraði
hann einmitt sitt fyrsta mark í efstu
deild árið 2001.
Gunnar Heiðar sneri aftur til
ÍBV um mitt
s u m a r
2015 eftir
mörg ár í
a t vi n n u -
mennsku.
Hann skor-
aði tíu mörk
í 17 deildar-
leikjum í fyrra
og sigurmarkið
í bikarúrslita-
leiknum gegn
FH. Með því
t r yg g ð i h a n n
Eyjamönnum fyrsta
stóra titil sinn síðan
1998.
Gunnar Heiðar skor-
aði svo níu mörk í 18
deildarleikjum í sumar.
Hann skoraði alls 61
mark í 127 leikjum í efstu
deild á Íslandi. Gunnar
Heiðar varð markakóngur
efstu deildar 2004.
Ári seinna varð hann
m a r k a k ó n g u r s æ n s ku
úrvalsdeildarinnar en þá lék
hann með Halmstad. Gunn-
ar Heiðar varð einnig næst-
markahæstur í sænsku deild-
inni 2012 þegar hann lék með
Norrköping.
Gunnar Heiðar lék einnig
með Hannover 96 í Þýskalandi,
Vålerenga og Fredrikstad í Noregi,
Esbjerg í Danmörku, Konyaspor
í Tyrklandi og Häcken í Svíþjóð.
Hann lék 24 landsleiki á árunum
2005-13 og skoraði fimm mörk.
Með sigrinum á laugardaginn
komust Eyjamenn upp í 6. sæti
Pepsi-deildarinnar. Það er besti
árangur þeirra síðan 2013 þegar
þeir lentu einnig í 6. sæti.
Leikurinn í Grindavík var ekki
einungis kveðjuleikur Gunnars
Heiðars heldur stýrði Kristján
Guðmundsson ÍBV í síðasta
sinn í leiknum. Hann var tvö
ár við stjórnvölinn hjá liðinu
og gerði góða hluti, vann
stóran titil og kom Eyja-
mönnum í Evrópukeppni.
Eftirmaður hans verður
Pedro Hipólito sem
hætti hjá Fram í haust.
Portúgalinn stýrði
Fram í hálft annað
á r . B æ ð i t í m a -
bilin endaði Fram
í 9. sæti Inkasso-
deildarinnar. – iþs
Kvaddi með þrennu
61
mark skoraði Gunnar Heiðar
Þorvaldsson í 127 leikjum í
efstu deild á Íslandi.
Valur varð Íslands-
meistari annað árið í röð
eftir 4-1 sigur á botnliði
Keflavíkur í lokaumferð
Pepsi-deildar karla
í fyrradag.
Hákarlarnir á Hliðarenda: Sigurbjörn Hreiðarsson, E. Börkur Edvardsson og
Ólafur Jóhannesson. FRéTTABlAðið/SiGTRyGGuR ARi
Keflavík vann Meistarakeppni
kvenna. FRéTTABlAðið/SiGTRyGGuR ARi
Myndir frá leik Vals og Keflavíkur
og fögnuði Valsmanna má finna
á +Plús síðu Fréttablaðsins.
Fréttablaðið +Plús er eingöngu
í Fréttablaðs-appinu eða í
PDF-útgáfu blaðsins sem er
aðgengileg á frettabladid.is.
+PlúS
Tindastóll vann Meistarakeppni
karla. FRéTTABlAðið/SiGTRyGGuR ARi
1 . o k t ó b e r 2 0 1 8 M Á N U D A G U r12 S p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð
sport
0
1
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:2
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
F
3
-4
5
3
4
2
0
F
3
-4
3
F
8
2
0
F
3
-4
2
B
C
2
0
F
3
-4
1
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
3
0
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K