Fréttablaðið - 01.10.2018, Síða 37
Meira til skiptanna
Segðu bless við sköfuna og hitaðu bílinn
með Webasto bílahitara – Webasto bílahitari
-8°
-6°
-7°
0_StH_ANZ_Snow_99,3x99,5_Island.indd 4 27.10.17 14:2
21° Tilfinning
BÍLASMIÐURINN HF
BÍLDSHÖFÐA 16
SÍMI: 567-2330
www.bilasmidurinn.is • bilasmidurinn@bilasmidurinn.is
Vináttulandsleikur
Ísland 20-33 Svíþjóð
(13-16)
Mörk Íslands Þórey Rósa Stefáns-
dóttir 5, Helena Rut Örvarsdóttir 5,
Ragnheiður Júlíusdóttir 2, Lovísa
Thompson 1, Hrafnhildur Hanna
Þrastardóttir 1, Þórey Anna Ásgeirs-
dóttir 1, Perla Ruth Albertsdóttir 1,
Thea Imani Sturludóttir 1, Arna Sif
Pálsdóttir 1/1, Karen Knútsdóttir 1,
Sigríður Hauksdóttir 1.
Varin skot: Hafdís Renötudóttir 5,
Elín Jóna Þorsteinsdóttir 3.
Fótbolti Valsmaðurinn Patrick
Pedersen var valinn besti leikmaður
Pepsi-deildar karla af leikmönnum
deildarinnar. Pedersen fékk einn-
ig Gullskó Adidas sem veittur er
markahæsta leikmanni efstu deildar.
Pedersen skoraði 17 mörk í 21 leik
í Pepsi-deildinni í sumar. Hann var
sérstaklega heitur í seinni umferð-
inni þar sem hann skoraði ellefu
mörk, þar af tvær þrennur. Þetta er
annað sinn sem Daninn fær Gullskó-
inn.
Pedersen er fjórði erlendi leik-
maðurinn sem er valinn bestur í
efstu deild á Íslandi. Landi hans,
Allan Borgvardt, var valinn bestur
2003 og 2005. Luca Kostic fékk
þessa viðurkenningu 1992 og David
Winnie 1998.
Willum Þór Willumsson, 19 ára
miðjumaður Breiðabliks, var valinn
efnilegasti leikmaður deildarinnar.
Hann lék 19 deildarleiki fyrir silfur-
lið Breiðabliks og skoraði sex mörk.
Willum er sjötti Blikinn sem er
valinn efnilegasti leikmaður efstu
deildar. Hinir eru Arnar Grétarsson
(1991), Jóhann Berg Guðmundsson
(2008), Alfreð Finnbogason (2009),
Kristinn Steindórsson (2010) og
Höskuldur Gunnlaugsson (2015).
Ekkert lið hefur átt fleiri leikmenn
sem hafa fengið þessa viðurkenn-
ingu. – iþs
Pedersen bestur og markahæstur
Handbolti Svíar sýndu styrk sinn
í seinni vináttulandsleiknum gegn
Íslandi á Ásvöllum á laugardaginn.
Íslenska liðið lék mjög vel í fyrri
leiknum á fimmtudaginn og tapaði
með minnsta mun, 25-26. Seinni
leikurinn var öllu ójafnari og endaði
með 13 marka sigri þeirra sænsku,
20-33.
Íslenska liðið byrjaði leikinn
reyndar ágætlega og munurinn
í hálfleik var aðeins þrjú mörk,
13-16. Í seinni hálfleik átti Ísland
hins vegar afar erfitt uppdráttar,
skoraði aðeins sjö mörk og bilið
breikkaði með hverri mínútunni.
Síðasti þriðjungur leiksins var sér-
staklega slæmur og þegar uppi var
staðið munaði 13 mörkum á lið-
unum, 20-33.
„Fyrstu fjörutíu mínúturnar í
dag voru fínar en síðan átti sér stað
ákveðið gjaldþrot hjá liðinu. Við
náðum ekki að fylgja því eftir sem
við höfum verið að gera, því miður,“
sagði landsliðsþjálfarinn Axel Stef-
ánsson við Fréttablaðið eftir leikinn
á laugardaginn. Hann sagði sóknina
hafa orðið íslenska liðinu að falli.
„Mér fannst þær ekkert spila eitt-
hvað mun betur, þess í stað vorum
við okkar versti óvinur sóknarlega.
Þó að þær hafi skorað 33 mörk áttu
þær oft í vandræðum með varnar-
leikinn okkar en fengu auðveld
mörk eftir mistök í sóknarleik
okkar. Þegar við náðum að standa
varnarleikinn rétt var hann mjög
góður þó að það megi auðvitað allt-
af bæta eitthvað. Sóknarleikurinn
fer með okkur í dag.“
Þetta voru síðustu leikir íslenska
liðsins áður en fyrsta stig undan-
keppni HM 2019 hefst í nóvem-
ber. Þar er Ísland í riðli með Tyrk-
landi, Makedóníu og Aserbaídsjan.
ingvithor@frettabladid.is
Stórt tap í seinni leiknum
Eftir góða frammistöðu í fyrri vináttulandsleiknum gegn Svíþjóð tapaði íslenska kvennalandsliðið þeim
seinni með 13 mörkum, 20-33. Uppstilltur sóknarleikur gekk brösuglega, sérstaklega í seinni hálfleik.
Helena Rut Örvarsdóttir tekin föstum tökum af sænsku varnarmönnunum. FRéttablaðið/SigtRygguR aRi
Handbolti Sigríður Hauksdóttir,
leikmaður HK, lék sinn fyrsta leik
fyrir A-landsliðið í handbolta þegar
Ísland tapaði fyrir Svíþjóð, 20-33, í
vináttulandsleik á laugardaginn.
Sigríður, sem leikur í horninu, skor-
aði eitt mark í leiknum.
Sigríður er dóttir Guðríðar Guð-
jónsdóttur sem lék 80 landsleiki og
skoraði 372 mörk. Hún vann einnig
fjölda titla með Fram.
Amma Sigríðar er Sigríður
Sigurðar dóttir sem var fyrst kvenna
valin Íþróttamaður ársins. Sigríður
var fyrirliði íslenska kvennalands-
liðsins sem varð Norðurlanda-
meistari 1964. Sama ár var hún valin
Íþróttamaður ársins. Sigríður eldri
vann einnig fjölda titla með Val. – iþs
Þriðji ættliður
sem skorar fyrir
landsliðið
Pedersen með gripinn sem hann fékk fyrir að vera valinn bestur í Pepsi-deild
karla. Með honum er guðni bergsson, formaður KSÍ. Mynd/ValuR Fótbolti
Sigríður Hauksdóttir eftir fyrsta
landsleikinn. Mynd/HK
S p o r t ∙ F r É t t A B L A ð i ða b l a 17M Á n U d a G U r 1 . o k t ó b e r 2 0 1 8
0
1
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:2
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
F
3
-4
5
3
4
2
0
F
3
-4
3
F
8
2
0
F
3
-4
2
B
C
2
0
F
3
-4
1
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
3
0
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K