Fréttablaðið - 01.10.2018, Side 43

Fréttablaðið - 01.10.2018, Side 43
Við látum framtíðina rætast. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum www.volkswagen.is Touareg Offroad. 3.0 TDI V6. Verð 9.290.000 kr. T- Roc. Fjórhjóladrifinn og sjálfskiptur. Verð 4.590.00 kr. Fjórhjóladrifna fjölskyldan. Tiguan Allspace. 7 manna og rúmgóður. Verð 7.635.000 kr. Tilboðsverð 6.990.000 kr. Tiguan Offroad. Fjórhjóladrifinn og sjálfskiptur. Verð 5.790.000 kr. Tilboðsverð 4.990.000 kr. Síðumúla 34 • 108 Reykjavík Sími 696 5600 • rafsol@rafsol.is ENDURNÝJUN OG VIÐHALD Löggiltur rafverktaki Sími: 696 5600 rafsol@rafsol.is Hvað? Hvenær? Hvar? Mánudagur hvar@frettabladid.is 1. október 2018 Viðburðir Hvað? Gengið um arkitektúr við Arnarbakka í 109 Reykjavík Hvenær? 17.30 Hvar? Breiðholtsskóli Kynnumst nærumhverfi okkar á nýjan hátt og sjáum hið mann- gerða umhverfi í nýju ljósi. Í tilefni af Alþjóðlegum degi arkitektúrs í dag, mánudaginn 1. október, munu Halldór Eiríksson arki- tekt og Ágústa Kristófersdóttir, sagnfræðingur og forstöðumaður Hafnar borgar, ganga um Arnar- bakkann í Breiðholti í Reykjavík. Gangan er öllum opin, ungum sem öldnum. Gangan hefst kl. 17.30 við aðalinngang Breiðholtsskóla. Hvað? Kötlugosið – Sögunnar minnst Hvenær? 10.00 Hvar? Bókasafn Seltjarnarness Bókasafn Seltjarnarness gerir sér far um að minnast atburða ársins 1918 í tilefni 100 ára afmælis full- veldis Íslands með sýningu og framsetningu á bókum, lesefni og myndefni. Nú er það Kötlugosið. Hvað? Gengið um arkitektúr við Freyjugötu-Bjargarstíg-Skálholtsstíg Hvenær? 17.30 Hvar? Freyjugata Kynnumst nærumhverfi okkar á nýjan hátt og sjáum hið mann- gerða umhverfi í nýju ljósi. Í tilefni af Alþjóðlegum degi arkitektúrs í dag, mánudaginn 1. október, mun Bjarki Gunnar Halldórsson arkitekt ganga um Freyjugötu, Bjargarstíg og Skálholtsstíg í 101 Reykjavík. Gangan hefst kl. 17.30 á horni Freyjugötu og Barónsstígs og verður gengið í átt að tjörninni. Gangan er öllum opin, ungum sem öldnum. Hvað? Tímagöng til 1918 Hvenær? 16.00 Hvar? Bíó Paradís, Hverfisgötu Tímagöng til 1918 er sýndarveru- leikasýning þar sem gestum gefst kostur á því að skyggnast inn í íslenskan veruleika ársins 1918 með aðstoð 360° sýndarveruleika- gleraugna. Sýninguna vann Árni Gunnarsson, kvikmyndagerðar- maður hjá Skotta Film. Gestir horfa á myndbönd með sýndar- veruleikagleraugum og fræðast á lifandi hátt um samgöngur, verslun og viðskipti árið 1918. Árni verður á staðnum kl. 16.00- 18.00 og 19.00-21.00 og aðstoðar fólk með gleraugun. Verkefnið var styrkt af afmælisnefnd aldar- afmælis fullveldis Íslands og af Uppbyggingarsjóði. Hvað? Gengið um arkitektúr við Silfurtún í Garðabæ Hvenær? 17.30 Hvar? Silfurtún Kynnumst nærumhverfi okkar á nýjan hátt og sjáum hið mann- gerða umhverfi í nýju ljósi. Í tilefni af Alþjóðlegum degi arkitektúrs í dag, mánudaginn 1. október, mun Baldur Ó. Svavarsson arkitekt ganga um Silfurtúnið í 210 Garða- bæ, en þangað má rekja upphaf skipulagðrar byggðar í Garðbæ. Gangan er öllum opin, ungum sem öldnum. Gangan hefst kl. 17.30 og lýkur kl. 18.30. Nánari upplýsingar um hvar gangan hefst verða veittar síðar. Sýningar Hvað? Tryggvi Ólafsson – grafíkverk á Mokka Hvenær? 08.00 Hvar? Mokka-Kaffi, Skólavörðustíg Tryggvi Ólafsson sýnir grafíkverk á Mokka til 3. október. Þetta er fimmta einkasýning Tryggva á Mokka á einum 40 árum. Verkin sem hann sýnir nú eru offset litó- grafíur og öll unnin hér á landi á síðustu fjórum til fimm árum. Sýningin er sölusýning og þeir sem hafa áhuga á að eignast verk geta fengið upplýsingar hjá starfsfólki Mokka eða haft samband með tölvupósti, mokkaart@gmail.com. Hvað? Ný verk Hvenær? 12.00 Hvar? Listasalur Mosfellsbæjar Listamennirnir Guðni Gunnars- son og Ingirafn Steinarsson sýna í Mosfellsbæ. Til sýnis verða ný verk en undanfarin misseri hafa báðir listamennirnir unnið tví- vítt, annars vegar samklipp og hins vegar teikningar. Í verkum Guðna getur að líta margbreyti- legar súrrealískar fígúrur samsettar úr fundnu myndefni, tímaritum og dagblöðum. Verk Ingarafns eru samhverfar teikningar úr trélitum, álíkar sprengingum sem minna samtímis á fljótandi síkadelísk form og svífandi geimstöðvar. Hvað? Innrás III: Matthías Rúnar Sigurðsson Hvenær? 10.00 Hvar? Ásmundarsafn Matthías Rúnar Sigurðsson vinnur meðal annars höggmyndir í stein. Klassísk handverksnotkun hans kallast skemmtilega á við verk Ásmundar og er fróðlegt að sjá ungan og upprennandi mynd- höggvara sýna verk sín í samhengi Ásmundarsafns. Árið 2018 eru fyrirhugaðar fjórar innrásir inn í sýninguna List fyrir fólkið, þar sem völdum verkum Ásmundar Sveins- sonar er skipt út fyrir verk starf- andi listamanna. Hvað? Ásmundur Sveinsson: List fyrir fólkið Hvenær? 10.00 Hvar? Ásmundarsafn Yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara. Á sýningunni er sjónum beint að öllum ferli listamannsins allt frá tréskurðarnámi hjá Ríkarði Jóns- syni og til síðustu ára listamanns- ins. Sýnd eru verk unnin í ýmis efni, þar á meðal verk höggvin úr tré, steinsteypu og bronsi. Á sýn- ingunni eru jafnframt frummyndir þekktra verka sem stækkuð hafa verið og sett upp víða um land. Hvað? Ýmissa kvikinda líki Hvenær? 10.00 Hvar? Listasafn Íslands Á sýningunni má sjá hvernig lista- mennirnir hafa beitt margbreyti- legri skapandi færni og ýmiss konar tækni. Sýningarstjórarnir Ingibjörg Jóhannsdóttir og Pari Stave hafa valið verk á sýninguna eftir listamenn sem vinna jafn- hliða í grafík og aðra miðla. Meðal sýnenda eru rithöfundar og tón- skáld en einnig myndlistarmenn sem eru síður þekktir fyrir grafík- verk sín, frekar fyrir málverk, þrí- víð verk, innsetningar, gjörninga, ljósmyndaverk eða vídeólist. Þess er mInnst í ár að hundrað ár eru liðin frá því að síðast gaus í Kötlu undir Mýrdalsjökli. FréttablaðIð/VIlHelM Ágústa Kristófersdóttir sagnfræð- ingur. FréttablaðIð/VallI m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 23m Á n U D A g U R 1 . o k T ó B e R 2 0 1 8 0 1 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :2 7 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 F 3 -7 1 A 4 2 0 F 3 -7 0 6 8 2 0 F 3 -6 F 2 C 2 0 F 3 -6 D F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 3 0 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.