Fréttablaðið - 06.10.2018, Qupperneq 88
Heimamenn á Ísafirði fara með gesti sína í mat á Tjöruhúsið, túristar lesa lofsam-legar umsagnir um staðinn á netinu og
láta ekki hjá líða að gera eigin bragð-
prufur þegar þeir eiga leið um. Því
er Tjöruhúsið tvísett öll kvöld yfir
sumartímann.
Það er fjölskylda sem rekur Tjöru-
húsið. Magnús Hauksson og Ragn-
heiður Halldórsdóttir tóku þar við
rekstri árið 2004, sem þá hafði verið
í formi kaffi- og vöfflusölu, og þau
bættu hádegismat við en höfðu
einungis opið yfir sumarmánuðina
fyrstu tvö árin. Nú er opið frá pásk-
um út október og þrjú börn þeirra
hjóna, Haukur, Salóme og Guð-
mundur, hafa tekið við stjórninni.
Salóme sér um skipulag og gestamót-
tökur, Haukur um daglegan rekstur,
bókanir og stefnumótun og Guð-
mundur er innkaupastjóri og kokk-
ur, ásamt föður sínum. Foreldrarnir
leggja hönd á plóg líka, enda annríki
mikið, einkum yfir sumartímann.
„Þetta er fimmtánda sumarið okkar
en við erum að eldast,“ segir Magnús.
„Við vorum með veitingastað hér
við höfnina áður, sem hét Sjómanna-
stofan, það er að vísu langt síðan,
1987 til 1993. Seinna var Maggi
beðinn að taka þetta að sér,“ lýsir
Ragnheiður.
„Þá var þetta bara í mýflugu-
mynd,“ segir Magnús. „Þetta var
sumarstaður, það var erfitt að fá fólk
til að vinna og Ísafjarðarbær bauð
150 þúsund króna meðgjöf með
rekstrinum.“
„Ég sagði nei fyrst,“ segir Ragn-
heiður. Við áttum þá lítil börn og
þetta er svo mikil vinna. En Maggi
bað svo fallega, „geerðu það“, þá
sagði ég já! Svo voru börnin hlaup-
andi hér um og þau vaxa ekkert upp
úr því.“
Fiskurinn er aðalhráefnið í matar-
gerðinni að sögn Ragnheiðar. „Ég
sagði við Magga að við skyldum bara
hafa fisk. Þegar við rákum Sjómanna-
stofuna með alls kyns mat, þá voru
97% allra útlendinga sem völdu fisk.“
Eru fastir réttir? „Nei, það er
breytilegt frá degi til dags og fer
Notum bara
það nýjasta
og ferskasta
Tjöruhúsið er merkilegt kennileiti á Ísafirði.
Það er eitt af friðlýstu húsunum í Neðsta-
kaupstað, fulltrúum 18. aldar. Húsið hefur
breyst í vel metinn veitingastað og betri
fiskur en þar er framreiddur er vandfundinn.
Innanstokks er allt í fornum stíl eins og vera ber.
Hjónin Magnús og Ragnheiður, ásamt sonum sínum Guðmundi og Hauki. Öll eru þau samtaka í að gera vel við gesti sína í Tjöruhúsinu, sem þau tóku við árið 2004. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Kolapannan með kartöflum og salati komin á borð úti á stétt á milli húsanna fjögurra sem tilheyra Neðstakaupstað.
Hveitiblanda
n 1 bolli hveiti
n 2 matskeiðar Knorr fiskikrydd
n Kryddað eftir smekk (t.d. má nota
kóríanderduft, paprikuduft, sítr
ónupipar).
Til steikingar
n Tvö væn flök af nýjum kola
n Fjórar matskeiðar (60 g) íslenskt
smjör, mjúkt.
n Háhitaþolin matarolía til steikingar
n Safi úr hálfri sítrónu
n 250 g kirsuberjatómatar
n Knippi af steinselju (saxað smátt)
n Soðnar eða steiktar kartöflur sem
bæta má á pönnuna áður en hún
er borin fram, ef fólk vill.
n Smá af cayennepipar
Aðferð
Hrærið saman hveitiblönduna og komið fyrir í djúpum diski. Snyrtið
kolaflökin ef með þarf, skerið þau í hentugar stærðir (miðlungs kola
flak mætti hluta í 3 til 4 bita, hægt er líka að steikja flakið heilt, en
það er meiri kúnst að snúa).
Hitið matarolíu á pönnu þar til hún er við það að fara rjúka – mikil
vægt er að ná góðum hita til að steikingin takist vel, þó ekki þannig
að kolinn brenni.
Veltið kolastykkjum úr hveitiblöndu og komið þeim fyrir á rjúkandi
pönnu með sárið niður, roðið upp. (Sýnið ávallt aðgát við meðferð
steikjandi heitrar olíu.) Steikið þau við háan hita í ca. 90 sekúndur og
bætið þá smjörinu á pönnuna. Látið það bráðna í ca. 20 sekúndur.
Snúið flökunum við. Þau eiga að vera vel brúnuð að þessu ferli loknu.
Bætið við kirsuberjatómötum, kreistið sítrónu yfir og stráið stein
selju yfir til skrauts, auk cayennepipars eftir smekk.
Ath! – Pannan ætti að vera í þykkri kantinum, svo hitadreifingin
sé sem jöfnust. Heimakokkar eru öruggastir með að velja nonstick
pönnur en lengra komnir geta gert tilraunir með aðrar gerðir.
algerlega eftir því hvað kemur upp úr
sjónum. Við notum bara það nýjasta
og ferskasta,“ segir Magnús.
„Maggi sér um löndun hér og veit
alveg hvernig fiskur á að vera. Hann
þekkir hvað er best. Keypti til dæmis
gríðarlega fallegan kola í gær,“ segir
Ragnheiður. „Svo erum við mjög
heppin að vera með svona ungan
mann í eldhúsinu eins og Guðmund,
hann kemur með nýjar hugmyndir
að matreiðslu, því maður staðnar
með aldrinum.
Hann er búinn að þróa ýmsa rétti.
Þetta er í raun hlaðborð á kvöldin
með sjö til ellefu tegundum, plús
meðlæti, og við erum með tvísett í
salnum í þrjá mánuði á sumrin.“
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Koli fyrir tvo að hætti Tjöruhússins
6 . O K T Ó B E R 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R36 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
6
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:1
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
0
2
-F
F
B
C
2
1
0
2
-F
E
8
0
2
1
0
2
-F
D
4
4
2
1
0
2
-F
C
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
0
s
_
5
_
1
0
_
2
0
1
8
C
M
Y
K