Víkurfréttir - 30.08.2018, Síða 60
60 LJÓSANÆTURBLAÐ VÍKURFRÉTTA f immtudagur 30. ágúst 2018 // 33. tbl. // 39. árg.
í vefverslun husa.is
ÚTSALAN ER LÍKA
verðið
Við BERJUM n
iður
RISA
útsala hef
st
Á fimmtud
aginn
Hreinlætistæki 25-35% • Blöndunartæki 25-35% • Flísar 25-40% • Harðparket Kaindl 25-40% • Frystikistur 20% • kæliskápar 20%• Frystiskápar 20% • Ryksugur 20-30%
Eldavélar 20-30% • Helluborð electrolux 20% • Bökunarofnar electrolux 20% • Smáraftæki í eldhúsið 25% • Olíufylltir rafmagnsofnar 20-35% • Hársnyrtitæki remington 25%
Hnífapör 30% • matarstell 30% • Glös og könnur 30% • Pottar og pönnur 30% • Plastbox, geymslubox og körfur 25% • útivistarfatnaður 25-50%
Vinnufatnaður 20% • Rafmagnsverkfæri Hitachi 20-30% Rafmagnsverkfæri Dewalt 20% • Rafmagnsverkfæri black+decker 25-35% • Handverkfæri stanley 25%
Handverkfæri NeO 25% • Hillurekkar 20% • Garðverkfæri hand, rafmagns og bensín 30% • slönguhjól og úðarara Claber og Verto 40-50% • Verkfæratöskur 30-40% • LJós 25%
Þvottahringsnúrur Blome 50% • Áltröppur og stigar 20-25% • Lady innimálning og lökk 20% • Útimálning 30% • Viðarvörn 30% • penslar og rúllur 25%
...OG ÓTAL MARGT FLEIRA!
Ein stærsta útsala Húsasmiðjunnar hefst á fimmtudaginn
Allt pallaefni á TAX FREE Fura, lerki, skjólveggir, girðingaeiningar, hattar blómapottar o.fl. Gildir einnig af vatnsklæðningu og panil
Skemmtilegt rigningarsumar
– segir Guðrún Sigríður Jóhannesdóttir, sérfræðingur í heilbrigðislausnum hjá Origo
„Helsta afrek mitt og fjölskyldunnar rigningarsumarið 2018 var hringferð um
landið til að hitta Rún Kormáks vinkonu mína og fjölskyldu hennar á Borgar-
firði Eystri,“ segir Guðrún Sigríður Jóhannesdóttir, sérfræðingur í heilbrigðis-
lausnum hjá Origo, spurð út í sumarið 2018.
„Suðurlandið var lagt í næturakstri
á meðan blóðmáninn lýsti okkur
leiðina. Á Borgarfirði eystri gengum
við í Stórurð og Dyrfjöll. Fjórtán kíló-
metra „líkamsrækt“ í stórkostlegri
íslenskri náttúru. Það skaðaði ekki
að sólin skein á heiðskírum himni
og engin hreyfing var á logninu. Svo
tókum við auðvitað Druslugönguna
líka og tjúttuðum á Bræðslunni. Daði
Freyr heillaði fleiri en bara unglings-
stelpurnar og hljómsveitin Between
Mountains var líka frábær en fag-
mennskan draup af öllum hljóm-
sveitunum. Við skoðuðum lunda í
Hafnarhólma, fylgdumst með hvölum
í höfninni og syntum þar sjálf í ís-
köldum sjónum“.
Guðrún Sigríður segir að heima fyrir
hafi fjölskyldan nýtt blautviðrið til
jarðvinnu. „Og svo hellulögðum við
einhverja 75 fermetra. Nú er verið
að steypa vegg á baklóðinni og þar
munum við klára pall og heitan pott
áður en frystir í haust. Svo skutumst
við núna í sumarlok á Landsmót ung-
menna í Þorlákshöfn með Ásdísi
Hjálmrós (14 ára) og Jóa Krissa (11
ára) sem kepptu auðvitað í þjóðarí-
þrótt Njarðvíkinga, körfubolta“.
TOBBA ALLTAF HEIMSÓTT Á LJÓSANÓTT
Ertu með hefðir á Ljósanótt?
„Það sem ég hef gert síðastliðin ár á
fimmtudagskvöldinu á Ljósanótt er
að fara út að borða á Library Bistro
með Buddunum, saumaklúbbnum
mínum, og svo tökum við vinkon-
urnar röltið og skoðum listsýningar.
Sá listamaður sem ég vil alls ekki
missa af sýningu hjá er hún Tobba,
en hún er með Gallery Tobbu á
Hafnargötu 18. Ég er mjög hrifin af
listinni hennar, sérstaklega þessum
stórkostlegu skúlptúrum sem hún
gerir. Ég mæli með að allir komi við
í Gallerýi Tobbu á Ljósanótt og skoði
andstæðurnar í verkunum hennar,
húmorinn og fegurðina. Ég bað um
listaverk eftir Tobbu í afmælisgjöf
í desember síðastliðnum og var ég
með ákveðið listaverk í huga sem
ég vildi og ég fékk það í afmælisgjöf
frá eiginmanninum. Það var þessi
risastóra könguló sem nú hangir
fyrir ofan svefnherbergi sonar okkar.
Sumum finnst köngulóin óhugnanleg
en hún er stórfengleg að mínu mati
og heyrst hefur að von sé á fjölgun í
þeirri fjölskyldunni og bætist litlar
köngulór á vegginn hjá okkur. Að
lokum langar mig að segja líka frá
steinaldarmanninum Einari Ben, en
hann er móðurbróðir minn og verður
með listsýningu á Hafnargötu 35.
Hann málar verk í stein sem eru afar
falleg og ég mæli með að sem flestir
leggi leið sína þangað“.
HVERNIG VAR SUMARIÐ 2018?