Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.06.2018, Page 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.06.2018, Page 2
Hvernig hafa viðbrögðin við Vargi verið? Þau hafa verið alveg hreint frábær. Fólk kemur að fyrra bragði til að hrósa og ég hef heyrt sögur af því að það hafi verið með andarteppu allan tím- ann af spenningi. Ein þurfti að gera einhverjar jóga öndunaræfingar í bílnum á leiðinni heim til þess að ná sér niður eftir myndina. Þetta er stærsta hlutverkið þitt í stórmynd til þessa – hvernig var reynslan frábrugðin þeirri sem hefur verið í öðrum hlutverkum sem þú hefur tekið að þér í gegnum tíðina? Helsti munurinn var kannski sá að þurfa að ná utan um allan tímann sem líður og skilja nákvæmlega á hvaða stað karakterinn er líkamlega og andlega hverju sinni. Ferðalagið sem hann fer í. Annars er kannski ekki mjög mikill munur á því að leika aukahlutverk og aðal- hlutverk. Maður þarf alltaf að vinna sömu vinnuna. Hins veg- ar hefur maður meira úr að moða í stærri hlutverkum og fleiri leiðir sem maður getur farið. En auðvitað er alltaf skemmtilegra að leika stór hlutverk. Íslenskar spennumyndir eiga það til að vera misgóðar – hvað gerði Vargur rétt? Vargur er ekki með neina stæla. Hún er mjög látlaus á yfir- borðinu en undir niðri kraumar allt. Ástæðan fyrir því að hún heldur manni svona held ég að sé að spennan slaknar aldrei. Það er mikið í húfi allan tímann og allir karakterarnir eru að berjast fyrir lífi sínu og annarra. Þó að hún sé spennumynd þá fjallar hún líka um þessa tvo bræður og þeirra samband og sögu og það finnst mér gefa henni aukastyrk. Hún dýfir tán- um í dramað og styrkir þar með allar forsendur. Hvað er í gangi hjá þér núna, í starfi og utan þess? Ég er að leggja lokahönd á tónlistarmyndband sem ég leik í og leikstýri ásamt tveimur vinum mínum og vonandi kemur það út fljótlega. Svo hef ég verið að leika í sjónvarpsseríu sem er framleidd af HBO og Sky, og heitir Chernobyl. Fyrir utan það er ég bara að skipuleggja næsta vetur og skoða alla möguleika. Það er margt spennandi að gerast í íslenskri kvikmyndagerð og vonandi kemur eitthvað fleira á daginn úti líka. Svo er maður bara að reyna að koma sér í almennilegt form fyrir sumarið. BALTASAR BREKI SAMPER SITUR FYRIR SVÖRUM Öndunar- æfingar í bílnum M or gu nb la ði ð/ Va lli Í PRÓFÍL 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.6. 2018 Ritstjórn Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama, stend-ur í lögum um mannanöfn. Bóndinn Sigurður Hlynur Snæbjörnssoner eflaust fær um að ákveða sjálfur hvort nafn hans er honum til ama, enda er hann fyrir löngu orðinn sjálfráða. Þó er honum ekki treyst fyrir nafn- inu sem hann vill helst bera. Hann má ekki heita Sigríður. Reyndar er Sigurði, sem við skulum hér eftir kalla Sigríði, ekki neitað á grundvelli áðurnefndrar lagagreinar, þótt hún sé talin upp í bréfi sem honum var sent og hefur verið birt víða á vefmiðlum, heldur er honum neitað um nafnið vegna þess að „stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn“ eins og stend- ur á öðrum stað í lögunum. Sigríður vill heita því nafni í höfuðið á ömmu sinni en fær það ekki því hann er víst ekki stúlka. Og Sigríður er víst kvenmannsnafn og hæfir aðeins stúlkum að mati stjórn- valda. Þetta mál Sigríðar vekur ótal spurningar og varpar í raun enn nýju ljósi á fáránleika þess að til séu sérstök, og frekar ströng, lög yfir mannanöfn. Hvað með rétt fólks til að skilgreina kyn sitt eftir sinni upplifun? Í tilviki áðurnefndrar Sigríðar þá snýst umsókn hans um nafnabreytingu reyndar alls ekki um kyn nafnberans, þ.e. þótt hann vilji sannarlega heita Sigríður hefur hann engan áhuga á að vera kona. Karlinn Sigríður er sáttur við það kyn sem honum var úthlutað við fæðingu. En nafni sínu vill hann fá að breyta. Íslensk stjórnvöld taka það hins vegar upp á sína arma að úthluta fólki samþykktum nöfnum og vilja flokka þau og skilgreina eftir kyni. Öllum nöfnun er úthlutað sérstöku kyni og svo þarf fólk að gjöra svo vel að passa inn í nafna- og kynjakerfið. Stjórnarskráin segir að ekki megi mismuna fólki eftir kyni. Hvers vegna sættum við okkur þá við að hægt sé að segja Sigurði að hann fái ekki að taka nafnið Sigríður? Nafnið uppfyllir öll önnur viðmið sem sett eru. Það er gott og gilt nafn, engum til ama og fellur vel að beygingarkerfi. Sigríður bóndi á að sjálfsögðu að andmæla þessum ólögum og fara lengra með málið. Kyn hans á ekki að hindra hann í að heita Sigríður. Hann á jafn- mikinn rétt á þessu nafni og hver annar, burtséð frá kyni. Fyrir þeim aug- ljósu réttindum ættu allir Sigurðar og Sigríðar þessa lands að berjast. Af hverju þarf að flokka nöfn eftir kynjum? Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Bóndinn sem vill heita Sigríður Pistill Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is ’Sigríður bóndi á aðsjálfsögðu að andmælaþessum ólögum og faralengra með málið. Kyn hans á ekki að þurfa að hindra hann í að heita Sigríður. Irma Hlynsdóttir Nei. Ég horfi ekki á íþróttir. SPURNING DAGSINS Ætlar þú að fylgjast með HM í fótbolta? James Tómas Long Já, ég mun halda með Íslandi því hitt lið- ið mitt, England, á ekki góða möguleika, en ég er hálfíslenskur og hálfenskur. Ís- land er með betri stuðningsmenn. Esther Steinson Já, að sjálfsögðu. Ég mun fylgjast með því í sjónvarpinu og er nokkuð viss að við komumst áfram upp úr riðlinum. Óðinn Máni Gunnarsson Já, auðvitað. Ég horfi alla vega á alla Íslandsleikina og held pottþétt að við komumst upp úr riðlinum. Forsíðumyndina tók Eggert Jóhannesson

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.