Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.06.2018, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.6. 2018
Í niðurstöðu nefndarinnar
sem rannsakaði matarsóun
í Kanada segir að veitinga-
staðir í Kanada gætu lagt
sitt af mörkum til að
minnka matarsóun.
Slíkt væri hægt með því
að minnka skammta og
spyrja gesti hvort þeir vildu
brauð með matnum í stað
þess að bera það fram
að fólki forspurðu.
Á hlaðborðum
ættu diskarnir
að vera minni,
eða skálarnar
grynnri, svo
fólk fengi sér
ekki umfram
það sem það
borðaði.
Sé horft til heimshluta er mestumatarsóun heims að finna íEvrópuríkjum, Bandaríkj-
unum, Kanada og Ástralíu en síðast-
nefnda landið hefur raunar vinning-
inn yfir mestu matarsóara heims.
Kanada er mjög ofarlega á lista;
þar í landi fara um 40 prósent af öll-
um þeim mat sem framleiddur er í
landinu í ruslið, að andvirði 31 millj-
arðs dollara. Í síðasta mánuði birt-
ust sláandi niðurstöður nefndar um
umhverfissamvinnu sem starfar
undir NAFTA, fríverslunarsamn-
ingi Norður-Ameríku. Samkvæmt
þeim eru það um 400 kíló af mat, á
hvern íbúa, sem enda í ruslinu áður
en nokkur nær að neyta hans. Þar af
hendir hinn almenni neytandi tæp-
lega 180 kílóum af mat í ruslið ár-
lega, veitingahús, matvöruverslanir
og birgjar sjá um hitt.
Þetta er talsverð aukning en
Bandaríkjamenn, sem hafa verið
stóru skrefi á undan í matarsóun,
henda aðeins 19 kílóum umfram ná-
granna sína á íbúa eða 415 kílóum. Á
rúmum áratug hefur matarsóun í
Kanada rúmlega tvöfaldast en sam-
kvæmt opinberum tölum henti hver
Kanadabúi 184 kílóum af mat á ári
árið 2007.
Yfirvöld í Kanada hafa þó reynt að
bregðast við og finna rót vandans og
í vikunni birtust niðurstöður rann-
sóknar sem samtökin The National
Zero Waste Council stóðu fyrir en
tilgangur hennar var meðal annars
að skoða af hverju matvæli Kanada-
manna enda í ruslafötunni. Þær
niðurstöður sýna að Kanadamönn-
um gengur illa að lesa og skilja dag-
setningar á matvælum og henda mat
sem er enn í lagi vegna þess. Einnig
hræðast þeir að bragða á matvöru
sem er komin rétt fram yfir „best
fyrir“-dagsetningu af ótta við að var-
an sé hættuleg heilsu þeirra og þeir
fái einhvers konar matareitrun.
Heil vara endar í ruslinu
Vandinn er því bæði bundinn við að
fólk hendir matvælum af hræðslu
og, eins og rannsóknin leiddi í ljós,
þá eru merkingar matvæla oft mjög
villandi og illskiljanlegar, fólk á í
erfiðleikum með að finna út hve
lengi matvaran er heil. Einn af höf-
undum skýrslunnar, Denise Phil-
ippe, sagði í viðtali við kanadíska
fjölmiðilinn Global News að fólk
skildi hreinlega ekki hvað á matvæl-
unum stæði.
„Neytendur hafa oft ekki hug-
mynd um hvað tölustafirnir og dag-
setningarnar eiga að tákna. Það get-
ur staðið „best fyrir 1/3“ og þá er
ekki ljóst hvort átt er við 3. janúar
eða 1. mars,“ sagði Philippe og segir
að það skorti samræmingu og skýr-
leika á því í Kanada hvernig texta á
að nota og framsetningu dagsetn-
ingar. Einnig sé óljóst hvort dag-
setningin þýði að hún sé hreinlega
skemmd eftir stimplaða dagsetningu
eða bragðist kannski bara best fyrir
hana þótt maturinn sé heill.
Afleiðingin er sú að vara sem er í
fullkomnu lagi endar ýmist í rusli
heimila eða matvöruverslana en 47
prósent þeirrar matvöru sem hent
er kemur frá heimilishaldi hins al-
menna borgara.
Nefndin kemst að þeirri niður-
stöðu að afar brýnt sé að yfirvöld
setji reglur um hvernig dagsetn-
ingar eru settar fram á samræmdu
stöðluðu formi en stingur einnig upp
á ýmsum ráðstöfunum. Hún bendir á
að hægt væri að setja reglur um að
matvælum skuli einnig pakkað í
minni einingar fyrir minni fjöl-
skyldur þar sem tals-
verð matar-
sóun á sér stað. Einnig að skoða
hvort hægt væri að setja reglur um
eitt algengasta markaðsbragð síðari
tíma; tvo fyrir einn af hinum og
þessum vörum. Þá er bent á hvernig
hægt er að nýta gamlar matvörur í
að útbúa nýjar, og brauðafganga til
að brugga bjór líkt og gert hefur
verið hérlendis.
Mikil umhverfisáhrif
Yfirvöld í Kanada hafa sett árið 2030
sem markmiðsár í þessum efnum en
að 12 árum liðnum er ætlunin að
matarsóun hafi minnkað um helm-
ing. Þau eru einnig að skrifa stefnu-
markmið sem á að taka á matarsóun
sem verður kynnt þjóðinni bráðlega
og þá er þjóðarátak fyrirhugað þar
sem ætlunin er að kenna fólki að
kaupa skynsamlegar inn og henda
minni mat.
Afleiðingarnar eru ekki aðeins í
peningasóun heldur hefur þetta mik-
il umhverfisáhrif, losun gróðurhúsa-
lofttegunda er umtalsverð, eða um
21 tonn á ári, þar sem umframmatur
er urðaður í landfyllingar.
Tvöfalda só-
un á 10 árum
Kanadamenn eru í hópi þeirra sem verst standa
sig í að fara vel með mat. Stór þáttur í því að mat-
varan þeirra endar í ruslinu eru lélegar merkingar.
Veitinga-
staðirnir
Getty Images/iStockphoto
Matarsóun er vaxandi vandamál í Kanada en yfirvöld vinna að því að setja sér skýr stefnumarkmið í þeim málum.
’
Að henda mat er svipað því að stela mat af
borði þeirra sem eru fátækir og svangir.
Frans páfi
ERLENT
JÚLÍA MARGRÉT ALEXANDERSDÓTTIR
julia@mbl.is
NÍKARAGVA
MASAYA Á einum mánuði hafa
að minnsta kosti 86 fallið og 860
særst í óeirðum í Mið-Ameríkurík-
inu Níkaragva. Upphaf mótmæl-
anna má rekja til niðurskurðar
í velferðarmálum og fámennra
mómæla ellilífeyrisþega sem
breyttust í ofsafengin átök en yfi r-
völd og hópar sem hliðhollir eru
ríkisstjórninni brugðust hart við og
beittu barsmíðum. Í kjölfarið gengu
þúsundir almennra borgara til liðs
við mótmælendurna. BRETLAND
MANCHESTER Enski knattspyrnu-
maðurinn Raheem Sterling hefur þurft að
verja ákvörðun sína um nýtt húðfl úr sem
er byssa á hægri fæti, M16-riffi ll. Hann
segir húðfl úrið hafa djúpstæða merkingu
en faðir hans var skotinn til bana þegar
Sterling var ungur. Gagnrýnendur, svo
sem hópar sem berjast gegn byssueign
hafa gagnrýnt Sterling, sem leikur með
Manchester City.
FRAKKLAND
GAP Sjálfboðaliði hjá
Amnesty International,
Martine Landry, kom
fyrir dómara í Frakklandi
í vikunni en hún er ákærð
fyrir að hafa aðstoðað tvö
afrísk ungmenni við að
koma inn í landið á ólög-
legan hátt. Landry er 73
ára gömul en dómsmálið
gegn henni er það fyrsta í
Frakklandi gegn sjálfboða-
liða Amnesty sem hefur
veitt fl óttafólki aðstoð við
að komast inn í landið.
BANDARÍKIN
FLÓRÍDA Tölvuleikur sem snýst um að leikmenn hefja skot-
hríð í skóla er harðlega gagnrýndur af foreldrum fórnarlamba
slíkra árása sem og stjórnmálfólki. Leikurinn, Active Shooter, er
væntanlegur á markað 6. júní en framleiðandi hans er Valve. Á
vefnum gengur áskorun sem meira en 100.000 manns hafa skrif-
að undir um að framleiðendur hætti við útgáfu hans.