Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.06.2018, Síða 12
Kunna ekki að nota
klósett
„Einhverjir kunna greinilega hvorki
mannasiði né að nota klósett.“
Skilaboð á fésbókarsíðu sem
Miðaldadagar á Gásum halda úti en
skemmdarverk voru unnin á salernis-
aðstöðu sem komið hefur verið upp
skammt frá minjum eina verslunar-
staðarins á Íslandi frá miðöldum.
Fær ekki frið fyrir orðum
„Stundum fær maður ekki frið fyrir
orðum og stundum fær maður al-
gjörlega frið fyrir þeim.“
Kristín Ómarsdóttir, sem hlaut ljóða-
bókaverðlaunin Maístjörnuna í ár.
Koma ekki í stað BF
„Við erum ekki að koma í stað Bjartrar fram-
tíðar. Við erum að fara að hefja viðræður um
myndun nýs meirihluta.“
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í
Reykjavík, sem hafið hefur formlegar viðræður
við gamla meirihlutann í borginni.
Óskráðar reglur
„Hvaða óskráðar reglur og hefðir gilda um störf
þingmanna? Skriflegt svar óskast.“
Svo hljóðar fyrirspurn Björns Levís Gunnarssonar,
þingmanns Pírata, til Steingríms J. Sigfússonar,
forseta Alþingis.
Endurtók leikinn
Valgarð Briem, sem skipti fyrst-
ur manna úr vinstri yfir í hægri
umferð árið 1968, endurtók
leikinn hálfri öld síðar í vikunni.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
VIKAN SEM LEIÐ
VETTVANGUR
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.6. 2018
Það er svo skemmtilegt að heimurinn samanstenduraf reglum sem er ekki hægt að breyta. Massi allser alltaf sá sami, við munum öll deyja, tveir plús
tveir eru fjórir og það er ekki hægt að sleikja á sér oln-
bogann.
Við getum treyst þessu. Sumir treysta meira að segja
öðrum reglum eins og að hádegisverðurinn sé aldrei
ókeypis eða enska landsliðið verði aldrei heimsmeistari í
fótbolta. Það er kannski ekki alveg jafn öruggt.
En reglan er sú að við höfum reglur. Framboð og
eftirspurn og sigur og tap. Nema í pólitík. Þá á síðari
reglan ekki við. Og jafnvel stundum ekki sú fyrri heldur.
Um síðustu helgi kusum við og flokkunum gekk mis-
jafnlega eins og gengur. En eins merkilegt og það hljóm-
ar þá sigruðu flestir flokkar en enginn tapaði. Í Silfrinu
sat fluggáfað fólk sem lét eins og langt komnir fjár-
hættuspilarar sem muna bara eftir því þegar þeir
græddu en geta ómögulega munað eftir því að hafa
nokkurn tímann tapað.
Samt segir það sig sjálft. Tveir stórir flokkar sem eiga
sæti á Alþingi buðu fram í fyrsta sinn í sveitarstjórnum,
auk nokkurra smærri. Þeir fengu slatta af atkvæðum
sem segir að einhver hlýtur að hafa haft þau áður. Í stað
þess að viðurkenna það þá fara menn með langar ræður
um að flokknum þeirra hafi nú gengið vel í Árborg eða
Borgarnesi eða Blönduósi.
Sex framboð í Reykjavík náðu ekki einu prósenti og
þrjú þeirra náðu ekki einu sinni lágmarksfjölda með-
mælenda, sem er 160 manns. Töpuðu þau? Ekki að ræða
það!
Þetta er ekki einhver ákvörðun sem er tekin í veip-
fylltum bakherbergjum. Þetta eru ósjálfráð viðbrögð í ís-
lenskum stjórnmálum (og mögulega úti um allan heim).
Þau eru tilkomin vegna þess að enginn vill viðurkenna að
hafa tapað.
Það vill enginn vera sá sem lendir í fyrirsögn sem and-
lit þess sem tapaði. Alveg sama hvað við tölum mikið um
að vera heiðarleg og viðurkenna mistök. Því er aldrei
tekið þannig. Aldrei búast við því að einhver segi: „Það
er drengilegt að viðurkenna þetta.“ Það eina sem gerist
er að andstæðingar þínir munu nudda þér upp úr því og
þú verður fyrirsögnin. Sá sem viðurkennir og horfist í
augu við tap, sem er reyndar yfirleitt bara tímabundin
lægð frá venjulegu kjarnafylgi, verður andlit taparans.
Vandinn liggur í því að þegar stjórnmálamenn viður-
kenna mistök þá er þeim yfirleitt velt upp úr þeim. Sem
gerir það svo að verkum að slíkt gerist nánast aldrei.
Jafnvel þótt ein reglan í viðbót væri að stjórnmálamenn
séu líka mannlegir og geti gert mistök.
Þetta er til dæmis ástæðan fyrir því að okkur tókst að
halda kalda stríðinu lifandi löngu eftir að múrinn féll.
Það vildi enginn játa það að hafa mögulega haft rangt
fyrir sér til að forðast að vera nuddað upp úr því um ald-
ur og ævi af sigurvegurunum.
Afi minn sagði mér þegar ég var lítill strákur að það
skipti miklu máli að kunna að tapa en það skipti jafnvel
meira máli að kunna að vinna. Þegar við lærum það má
kannski búast við því að einhver fáist til að viðurkenna
ósigur í kosningum.
Listin að tapa og vinna
Á meðan ég man
Logi Bergmann
logi@mbl.is
’Þetta er ekki einhver ákvörðun sem er tekin í veipfylltum bakherbergjum. Þettaeru ósjálfráð viðbrögð í íslenskum stjórnmálum (og mögulega úti um allan heim).Þau eru tilkomin vegna þess að enginn vill viðurkenna að hafa tapað.
UMMÆLI VIKUNNAR
’Ég er á réttri braut ennþá oger mjög bjartsýnn á að veraklár fyrir Argentínuleikinn.
Aron Einar Gunnarsson,
fyrirliði karlalandsliðsins í knattspyrnu,
sem glímt hefur við meiðsli.
Ein öflugustu meltingarensím ámarkaðnum í dag
l Ensím eru nauðsynleg fyrir meltingu og
öll efnaskipti líkamans.
l Betri melting, meiri orka!
l Inniheldur ATPro (ATP (orkuefni líkamans),
Magnesíum Citrate, Coensime Q10, Phytase).
l Söluhæsta meltingarvaran í Bandaríkjunum.
l 100% vegan hylki. Án fylliefna, bindiefna eða
annarra flæðiefna.
Fæst í flestum apótekum, heilsubúðum og Fræinu Fjarðarkaupum.
Mér finnst gott að fá mér bjór með pizzu
en því miður þá verð ég alltaf útþaninn
eftir það. Ég að prófaði að taka „Digest
Gold“ fyrir máltíðina og viti menn, það bara
svínvirkaði!
Haraldur Egilsson, 46 ára sjómaður og
ævintýragjarn matgæðingur
Það bara svínvirkaði!
Digest Gold
Ensím geta hjálpað til við að slá á óþægindi svo sem,loftmyndun,
uppþembu, meltingartruflanir og meltingaróreglu
Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is
Stóll 38.000
Stóll 38.000
Borð 27.000
Borð 27.000
Sessa 4.500fasteignir