Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.06.2018, Síða 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.06.2018, Síða 16
VIÐTAL 16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.6. 2018 A lbert Guðmundsson var enn hvít- voðungur þegar fjölmiðlar tóku að skrifa um hvað drengurinn ætti að heita, hvort það væri ekki augljóst að hann yrði nefndur eftir langafa sínum og fyrsta atvinnu- manni Íslendinga í knattspyrnu, Alberti Guð- mundssyni, síðar ráðherra og sendiherra. Pressan var þó lítil frá fjölskyldunni þótt drengurinn endaði á að fá nafn langafa. Tví- tugur er Albert að feta kannski ekki ósvipuð spor og langafi hans, hann er í atvinnu- mennsku í Hollandi með PSV Eindhoven og fékk einstakt tækifæri til að æfa erlendis að- eins 16 ára gamall. Með landsliðinu fer hann svo á heimsmeistaramótið í Rússlandi í júní. Daníel Ólafsson heiti ég Hæfileikarnir koma ekki á óvart ef Kári Stef- áns er hafður með í för. Albert er samsuða af genum afreksfólks í knattspyrnu sem allt hef- ur leikið með landsliðunum. Faðir hans er knattspyrnumaðurinn og íþróttalýsandi Ís- lands, Guðmundur Benediktsson. Móðir Al- berts, Kristbjörg Ingadóttir, lék með landslið- inu í knattspyrnu. Faðir Kristbjargar, Ingi Björn Albertsson, var lengi markahæsti leik- maðurinn í íslenskri knattspyrnu og svo er það langafinn Albert, sem lék meðal annars með AC Milan og Arsenal. Albert var farinn að elta bolta um leið og hann gat skriðið. Að ná árangri í íþrótt gerist þó sjaldnast bara með góðum genum, það þarf líka gott atlæti eins og foreldrar Alberts hafa veitt honum. Móðir Alberts, sem alltaf er kölluð Krissa, býð- ur blaðamanni í snúða og kaffi einn úrvalsrign- ingardag maímánaðar og kærasta Alberts, Guðlaug Elísa, sest niður með okkur, en Guð- laug býr úti með Alberti og er bæði í vinnu og fjarnámi við Háskóla Íslands í efnaverkfræði. Albert er nýlentur og farinn að æfa með lands- liðshópnum. Við ætlum að kynnast Alberti bet- ur, að sjálfsögðu í gegnum hann sjálfan en það skaðar aldrei að komast ofan í kjarnann með hjálp mæðra. Krissa hefur sjálf bæði spilað fót- bolta og þjálfað í gegnum tíðina en í dag starfar hún sem umsjónarkennari í Brúarskóla. Hvernig barn var Albert? Krissa: „Albert var allt of fljótur að skríða, allt of fljótur að standa upp og allt of fljótur að fara að ganga. Sex mánaða gamall var hann staðinn upp og gekk átta mánaða. Þegar hann var tveggja ára sparkaði hann svo fast og ákveðið í boltann að hann braut ljósakrónu í stofunni. Eins og er með fyrsta barn áttaði maður sig ekkert á vandræðunum og klappaði saman höndunum yfir því hvað hann var dug- legur. Svo fattaði maður að það að elta svona orm, með óþroskaða rýmisgreind, yrði vinna. En hann var með afar gott geðslag og það var auðvelt að eiga við hann þótt hann væri fjör- kálfur. Albert lék sér eiginlega ekki með leikföng, hann vildi bara elta bolta, og svo kynnti hann sig fyrir öllum sem Daníel Ólafsson.“ Daníel Ólafsson? Ha? „Hann hélt upp á bíómyndina Löggulíf og vildi bara vera Daníel.“ Elti Albert til Hollands Fyrstu minningarnar um fótbolta, Albert? Albert: „Fyrstu minningarnar snúast um að fara með pabba, þriggja til fjögurra ára, á æf- ingar á KR-vellinum, horfa á og tína saman bolta. Ég var um tíma lukkudýr KR, litla ljónið, og hljóp þá út um allt í búningnum. Hef verið heillaður af fótbolta frá því ég man eftir mér.“ Krissa: „Það kom einhvern veginn aldrei neitt annað til greina í huga Alberts. Við Gummi vorum bæði á fullu í fótbolta þegar hann fæddist, ég hafði alltaf verið í Val en skipti yfir í KR þar sem það hentaði okkur bet- ur, ég gat þá tekið hann með á æfingar og barnapían kom þangað. Við sáum strax á fyrstu æfingum Alberts að hann hafði alveg sérstakan fókus. Það voru ekki allir tilbúnir að vera á fótboltaæfingunni og fannst spennandi að ganga á eftir bláu og grænu línunum í íþróttasalnum. Albert var hins vegar mættur til að spila fótbolta og ekkert annað og neitaði að fara í vesti yfir búninginn því á honum stóð Zidane og hann var Zidane.“ Albert: „Ég fór í gegnum nokkur svona tímabil og á því tímabili sem ég dýrkaði Beck- ham keypti ég mér alla búningana sem hann átti og fékk mér eins hárlit.“ Krissa: „Albert fór í körfubolta níu ára með fótboltanum og var frábær í körfu líka og hefði alveg getað tekið það skref. En þeir sem þjálf- uðu hann í körfunni sögðu alltaf: Við vitum al- veg að hann verður fótboltamaður. – Það var einhvern veginn bara vitað.“ Nú hefur mamma þín lýst þér, Albert, en hvernig er mamma þín? Albert: „Mamma er ofurmamma. Ég á þrjár yngri systur sem allar spila fótbolta og hún er mætt á öll fótboltamót, þótt þau séu öll á sama tíma. Þá er hún bara einhvern veginn á þremur stöðum í einu. Hún hefur eiginlega bara alltaf gert allt fyrir okkur, og oft ein þar sem pabbi er að vinna lengi, fram á kvöld í tengslum við íþróttalýsingar og slíkt. Það sem er mikilvægt er að hún er ekki bara til staðar þegar vel gengur heldur líka þegar við eigum slæma daga, þá er hún þarna líka til að klappa okkur á bakið og styrkja. Ég held að ég átti mig alveg á því að það eru ekki allir svo heppnir að bæði eiga mömmu og það góða mömmu. Kannski kom það best í ljós þegar hún flutti út til mín til Hollands, sem mér þótti reyndar svolítið augljóst skref. Úti hélt hún þessu áfram, sótti mig og keyrði á all- ar æfingar.“ Krissa: „Ég flutti út í eitt ár, 2015. Albert hafði þá verið úti í tvö ár, að spila með Heer- enveen frá 16 ára aldri en hafði þá verið svo heppinn að búa hjá hollenskri fjölskyldu sem hélt vel utan um hann. Þegar hann var keyptur til PSV stóð til að hann myndi búa einn og okk- ur foreldrunum fannst Albert ekki alveg tilbú- inn í það. Ég fór því út með systur hans þrjár og Gummi var heima, en flaug til okkar þegar færi gafst. Það var mjög gaman að fara út og ná að skilja umhverfi Alberts betur þótt það reyndi svolítið á systur hans, sem söknuðu pabba síns. Ég flutti heim þegar kærasta Al- berts flutti út en viðurkenni að sakna þess svo- lítið að vera í kringum hann. Ég er búin að fylgja honum eftir síðan hann byrjaði í fótbolta og finnst oft rosalega erfitt að geta ekki mætt á leikina hans því það hef ég gert alla tíð. Fyrst eftir að Albert flutti út löbbuðum við foreldrar „Ég er búin að fylgja honum eftir síðan hann byrjaði í fótbolta og finnst oft rosa- lega erfitt að geta ekki mætt á leikina hans því það hef ég gert alla tíð. Fyrst eft- ir að Albert flutti út löbbuðum við for- eldrar hans oft niður á KR-völl, stóðum og horfðum á vini hans spila í sárabætur og tókum andköf af tilfinningasemi.“ Morgunblaðið/Eggert Fótboltauppeldi landsliðsmannsins Alberts Guðmundssonar hefur verið í öruggum höndum, meðal annars móður hans, fyrrverandi landsliðskonunnar Kristbjargar Ingadóttur. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Faðir Alberts er Guðmundur Benediktsson og það er stutt í góð ráð og faðmlög frá foreldrunum á vellinum. Albert og ofurmamman

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.