Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.06.2018, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.06.2018, Blaðsíða 18
Feðgarnir snæða pítsu og fara yfir leik Alberts með U21. hans oft niður á KR-völl, stóðum og horfðum á vini hans spila í sárabætur og tókum andköf af tilfinningasemi.“ Var ekkert skrýtið þegar mamma fór heim? Albert: „Svolítið jú, en þá kom kærastan mín og það var líka ágætt að fá smá persónu- legt speis. Fyrst þegar ég flutti út var auðvitað erfitt að vera frá fjölskyldu og vinum en það vandist hægt og rólega og það hjálpaði að auð- velt var að vera í sambandi í gegnum Skype sem ég nýtti mér mikið til að tala við mömmu og pabba og systur mínar. Mömmu fannst voða gott að hringja í mig þegar hún var að elda kvöldmat, sérstaklega þegar ég var einn.“ Krissa: „Þá var ég að leiðbeina honum í eldamennskunni stundum: „Settu aðeins meiri mjólk þarna og hrærðu nú vel,“ og þannig fór- um við í gegnum matargerðina saman.“ Tókstu einhvern tímann þá ákvörðun, Krissa, að verða svona mamma? Krissa: „Ég er alin upp í stórum systkina- hópi og er elst svo ég þekki hlutverkið vel. En mér finnst þetta hafa mikið uppeldislegt gildi; að fylgja börnunum sínum eftir, bæði þegar vel gengur og illa. Þau misstíga sig eins og við öll og þá er mikilvægt að vera til staðar. Það er ekkert mál að standa á hliðarlínunni þegar vel gengur en það er mikill skóli fyrir börnin og foreldra að fara í gegnum mistökin. Þau þurfa að læra að vinna, að tapa, vera sanngjörn og heiðarleg. Við foreldrarnir höfum alveg þurft að draga þau afsíðis og benda þeim á eitthvað eftir leiki, hvort sem það er tapleikur eða sigurleikur. Við hrósum þeim fyrir það sem þau gera vel en bendum þeim líka á það sem miður fór, hvort þau hefðu getað gert öðruvísi einhvers staðar eða sleppt því að tuða þarna, svo dæmi sé tekið. Því finnst mér mikilvægt að vera í augnablikinu með þeim því það er ekki alltaf hægt að spóla til baka eða segja: Var það rétt sem ég heyrði að þú hefðir gert þetta og hitt? Ef við erum þarna og sjáum sjálf hvað er að gerast getum við grip- ið þetta strax. Þetta hafa verið lítil atvik eins og að á einu móti skoraði Albert og pabbi hans tal- aði við hann eftir á og sagði honum að þetta hefði verið frábært mark en hann hefði gleymt að fara og þakka stráknum sem lagði markið upp, enda snýst þetta alltaf um heildina.“ Albert: „En af því að ég er búinn að tala um mömmu og svo ég komi að pabba þá hefur hans aðferð verið að tala við mig á rólegum nótum um hvað ég geti bætt í mínum leik. Mamma hefur meira verið í því að ég eigi að setja klærnar út og bíta frá mér. Hún er alveg glerhörð í því. En þetta er mjög gott mix, hvað mamma og pabbi eru ólík í sinni nálgun. Svo koma systur mínar sterkar inn.“ Það er greinilega kært með þeim systkinum. Yngri systur hans setjast í kringum okkur og fylgjast með öllu sem fram fer af áhuga. Var mikil afastelpa Í gömlu viðtali talaðir þú um að þú ætlaðir að komast í lið Barcelona, Albert. Albert: „Ætlaði? Þú meinar ætlar.“ Krissa: „Ég reyndi nú mjög oft að ræða þetta við hann, þetta gerðist ekki alltaf eins og maður vildi.“ Albert: „Mamma og pabbi minntu mig reglulega á að ef ég vildi láta þessa drauma rætast yrði ég kannski að sleppa einhverju í staðinn, böllum í skólanum og að hanga lengi fram eftir með vinum mínum. Mér fannst það ekkert mál því það var fyrir fótboltann.“ Krissa: „Albert fékk einstakt tækifæri til að fara út og æfa, aðeins 14 ára gamall, með liðum eins og Liverpool og Arsenal. Þá þéttist ramm- inn auðvitað svolítið kringum hann og hann sá að atvinnumennska var möguleiki. Þegar hann fór út 16 ára lögðum við mjög hart að honum að gera sér grein fyrir að það yrði enginn at- vinnumaður 16 ára gamall, þetta væri ekkert komið og úti í þessum stóra heimi er enginn sem hjálpar manni, þú ert þarna upp á eigin spýtur og aðeins manns eigið vinnuframlag kemur manni lengra, í mjög hörðum heimi. En þarna fékk hann einstakt tækifæri til að kom- ast nær markmiði sínu.“ Er annars aldrei deilt um boltann á heim- ilinu? Albert: „Það er helst við pabbi sem erum aðeins ósammála. Pabbi er meira fyrir Man- chester United en ég held með Arsenal.“ Krissa: „Þetta var allt í lagi í fyrstu, Albert hélt upp á Beckham sem spilaði á þeim tíma með United en svo fór ég að fara með Albert um helgar til fjölskyldu minnar, þegar Gummi var upptekinn við að lýsa leikjum. Fjölskylda mín er gallhart Arsenal-fólk enda spilaði afi með liðinu. Það er alltaf svakaleg stemning um helgar þegar pabbi og bræður mínir hittast og Albert datt inn í þá stemningu. Það hefur farið svolítið í taugarnar á Gumma, sem er alltaf að reyna að ná honum til baka í sitt lið.“ Talandi um föðurafa þinn, Krissa, og langafa þinn, Albert, varstu meðvitaður um þá goð- sögn sem hann var í knattspyrnunni hann nafni þinn? Hvað hefðirðu viljað ræða við hann? Albert: „Hann lést á 71. aldursári, nokkrum árum áður en ég fæddist, svo ég hef bara sögur af honum. Af þeim er ekki hægt að greina neitt annað en hann hafi verið mjög góður knatt- spyrnumaður og ég er stoltur af því að bera nafnið hans. Ég myndi vilja ræða allt milli him- ins og jarðar við hann; hans sögu, hvernig hann varð atvinnumaður í knattspyrnu, hvern- ig hann fór út til Bretlands fyrst og fremst til að fara í nám og svo er einhver sem spottar að hann er allt of góður til að vera bara að spila með einhverju skólaliði. Og hvernig hann náði að vinna sig upp.“ Var Albert mikill afi, Krissa? Krissa: „Hann var mér mikill afi, með sinn breiða faðm og stóra vindil. Það var ákaflega gaman að spjalla við hann, var mjög beinskeyttur. Ég gisti gjarnan um helgar hjá ömmu og afa á Laufásveginum og fór þá snemma á fætur með afa og við fórum í morgunmat á Borgina þar sem hann hitti „mafíuna“ sína, eins og hann kallaði það. Afi minn var mikill Valsari en við tókum samt alltaf sama hringinn í sunnudags- bíltúrnum eftir morgunmatinn á Borginni og keyrðum alltaf framhjá KR-vellinum, þá var KR-heimilið bara braggi. Afi byrjaði í KR sem smástrákur en færði sig svo yfir í Val og hann bar því alltaf taugar til KR líka. Við enduðum svo alltaf á Valssvæðinu, þar sló hjarta hans.“ Í pressunni nokkurra vikna Varstu ákveðin í að frumburðurinn yrði nefnd- ur Albert? „Nei, það var ekki neglt niður. Ég eignaðist Albert 15. júní, þegar Gummi var á fullu að spila, og sumarið leið. Ég var einhvern tímann búin að segja við sjálfa mig að ef við eignuðumst strák myndi ég leyfa Gumma að velja nafnið. En vissi líka að ef ég væri ekki sátt myndi ég alltaf segja nei! En svo var smá pressa líka því við hefðum getað gefið pabba Gumma, Benedikt Guðmunds- syni, alnafna líka. Pressan var ekki frá fjölskyld- unni, það voru meira fjölmiðlar. Það var skrifað í blöðin að nú gæti orðið til alnafni afa en fyrir norðan, þaðan sem fjölskylda Gumma er, að þetta gæti orðið lítill alnafni föðurafans. Um haustið þegar við setjumst niður að ræða þetta segir Gummi við mig að sig langi til að láta skíra hann Albert. Mér fannst það auðvitað alveg dásamlegt en benti honum á að við gæt- um gefið pabba hans nafn. Gummi svarar: Benedikt kemur næst. Síðan þá hafa þrjár stelpur fæðst. Tilviljun réð því svo skemmtilega að skírnardaginn bar upp á fæðingardag afa.“ Af hverju hefurðu lært mest í fótboltanum, Albert, og hvernig stúderarðu hann? Albert: „Fyrir utan pabba og mömmu hef ég tekið sitthvað inn frá mjög mörgum. Ef ég sé eitthvað gott sem gæti gagnast mér, hvort sem það er hjá öðrum leikmönnum eða þjálf- urum, reyni ég að læra af því og tileinka mér. Úti eru allir leikir klipptir fyrir mann, við fáum myndskeið af eigin frammistöðu þar sem okk- ur er bent á hvað við gerðum vel og hvar við megum bæta okkur, sem er mjög gagnlegt. Þegar ég var yngri var ég í tölvuleikjum eins og Fifa, þar sem maður lék sér að því að stilla liðum upp. Þetta var auðvitað bara leikur þá en Albert Guðmundsson og Guðlaug Elísa búa saman í Hollandi. ’Mamma hefur meiraverið í því að ég eigi aðsetja klærnar út og bíta frámér. Hún er alveg glerhörð í því. En þetta er mjög gott mix, hvað mamma og pabbi eru ólík í sinni nálgun. Blaðaskrif árið 1997; um þá nýfæddan Albert Guðmundsson sem pressan velti fyrir sér hvað ætti að heita. VIÐTAL 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.6. 2018

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.