Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.06.2018, Síða 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.06.2018, Síða 20
Leikurinn Fortnite frá Epic Games þénaði 269 milljónir dala (29,94 milljarða króna) í apríl og þá eru teknar saman tekjur af notkun leikja- og heim- ilistölva auk farsíma og spjald- tölva samkvæmt SuperData Research. Þetta er tvöfalt meira en tekjur af leiknum voru í febrúar þegar þær voru 126 milljónir dala (3,5 milljarðar króna) og náði þá Fortnite hin- um vinsæla leik Player- unknown’s Battlegrounds í mánaðarsölu í fyrsta sinn. Munurinn á leikjunum og það sem gerir Fortnite svona áhuga- verðan hvað þetta verðar er að hann er ókeypis en tekjurnar koma í gegnum ýmislegt sem hægt er að kaupa í leiknum. Epic selur notendum ýmsa hluti sem hafa ekki áhrif á gang leiks- ins heldur eru aðeins útlitslegir eins og margar gerðir af mis- munandi búningum og líka geta notendur látið persónur sínar dansa ýmiss konar dansa. Enn fremur er seld ákveðin áskrift sem heitir Battle Pass sem kost- ar um tíu dali (rúmar þúsund krónur). Þessir hlutir seljast svo vel að Fortnite þénaði meiri peninga en miðasalan á Aven- gers: Infinity War í sama mán- uði, sem er einhver vinsælasta kvikmynd síðari tíma, að því er fram kemur á vef The Verge. Það eru nokkrar ástæður fyr- ir því að tekjurnar af Fortnite aukast stöðugt. Leikurinn kom út fyrir iOS-stýrikerfið á síma um miðjan mars í beta-útgáfu og síðan fyrir alla Apple- notendur fyrstu vikuna í apríl. Það er líklegt að það hafi haft mikil áhrif á tekjumöguleika en fyrirtækið Sensor Tower, sem sérhæfir sig í farsímatengdum markaðsmálum, greinir frá því að leikurinn þéni milljón banda- ríkjadali (107,6 milljónir króna) á dag á útgáfunni fyrir farsíma/ spjaldtölvu. Leikurinn á eftir að ná til enn fleiri, en Epic áætlar að senda frá sér útgáfu fyrir Android í sumar. Hægt er að kaupa ýmsa dansa. Tekjur í apríl tæpar 300 milljónir dala ÚTTEKT 20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.6. 2018 Tölvuleikurinn Fortnite hefurnotið sívaxandi vinsælda á síð-ustu mánuðum. Foreldrar stráka á aldrinum frá tíu ára og fram á unglingsaldur hafa áreiðanlega flest- ir heyrt um þennan leik en leikurinn er sérstaklega vinsæll hjá þessum aldurshópi. Fólk á öllum aldri og af báðum kynjum er líka á meðal þeirra milljóna sem spila leikinn. Nýjustu tölur, sem eru frá því í mars, segja að 45 milljónir manna spili leikinn. Hluti af vinsældum Fortnite er að leikurinn er blanda af byggingaleik eins og Minecraft og skotleik eins og Call of Duty og stemningin minnir á Hunger Games. Sú útgáfa af Fort- nite sem er mest spiluð er ókeypis og kallast Battle Royale, en í henni spila margir á sama tíma; nánar til- tekið allt að hundrað manns í sama leik. Það er hægt að spila mismun- andi útgáfur, allir á móti öllum, tveir í liði, allt að fjórir í liði eða 50 á móti 50. Keppt er þar til ein manneskja eða eitt lið stendur eftir. Leikinn er hægt að spila á Play- Station 4, Xbox One, Windows, Mac og iOS-stýrikerfi fyrir farsíma og spjaldtölvur. Hægt að spila saman Það eru margar ástæður fyrir því að leikurinn er svona vinsæll hjá krökk- um. Ein er sú að hann minnir á aðra vinsæla leiki. Hann lítur ekki eins ógeðslega út og sumir; hann er teiknimyndalegri og það er til dæm- is ekkert blóð í Fortnite. Það sem er ekki síst skemmtilegt við leikinn er félagslegi hluti hans. Vinir geta spil- að saman og talað saman án þess að vera á sama stað. Í liðakeppni þarf líka að vinna saman og ekki dugar að hugsa um eigin hag til að liðinu gangi sem best. Leikurinn hefst á því að þátttak- endur hoppa út úr fljúgandi rútu á eyju og velur hver og einn sér lend- ingarstað. Þegar þangað er komið þarf að finna sér viðeigandi vopn. Leikmaðurinn ferðast um eyjuna og reynir að finna bestu byssurnar, skildi og annað sem ver gegn árásum. Það er mikilvægt að útvega sér byggingarefni en leikmenn geta höggvið niður næstum hvað sem er í umhverfinu til að útvega sér við, stein og málma til að geta byggt brýr og hýsi til að verjast árásum og hindra framgang annarra leikmanna. Þátttakendur þurfa enn fremur að vara sig á storminum sem stækkar og færist en þeir leikmenn sem lenda í storminum eiga á hættu að láta lífið. Fleiri konur Í nýrri frétt á Bloomberg kemur fram að nærri helmingur þeirra sem spila leikinn sé kvenkyns, sam- kvæmt mati rannsóknarfyrirtækis- ins Apptopia Inc. Hlutfallið hjá leikj- um eins og Call of Duty eða Grand Theft Auto er að einn spilari eða færri af þremur sé kona. Í auglýsingum og öllu efni frá Fortnite eru konur áberandi. Bæði strákar og stelpur geta spilað sem kvenkyns fígúra. Ólíkt öðrum leikj- um geta Fortnite-leikmenn ekki ákveðið hvernig þeir líta út í leiknum þegar þeir byrja, þannig að karlkyns spilari lítur kannski út eins og kona og öfugt. Ef þátttakendur vilja ráða útlitinu verða þeir að borga og jafn- vel þá eru ekki allar persónur til í bæði kvenkyns og karlkyns út- gáfum. Leikurinn varð í mars vinsælasti tölvuleikur allra tíma á YouTube því ekki er aðeins vinsælt að spila held- ur líka að horfa á aðra . Á YouTube er Ali-A einn sá vinsælasti, en al- gengt er að myndbönd hans nái yfir tveimur milljónum áhorfa á um sól- arhring. Ninja er annar vinsæll For- tnite-spilari, en hann spilar mikið í beinni á Twitch. Fyrr á árinu spilaði hann leikinn í beinni ásamt tónlistar- manninum Drake og yfir 630.000 manns fylgdust með, sem er met. Á vefnum commonsensemedia.org er leikurinn metinn að vera við hæfi 13 ára og eldri, sá aldur sem for- eldrar meta í lagi er 11 ár en krökk- um finnst í lagi að 10 ára spili leikinn. Það er samt gott að fylgjast með yngri börnum spila leikinn og forðast að þau hafi kveikt á hljóð- nemanum þegar þau spila við ein- hvern sem þau þekkja ekki. Framleiðandinn Epic Games hef- ur ákveðið að setja 100 milljónir dala í verðlaunasjóð fyrir Fortnite- keppnir, sem hefjast síðar á þessu ári. Seinna á þessu ári verður líka hægt að spila leikinn í Kína þannig að það er alveg ljóst að vinsældir Fortnite eiga aðeins eftir að vaxa. Ris tölvuleiksins Fortnite Hefur þú heimsótt Tilted Towers? Eða ferðu oftar til Tomato Town eða í Pleasant Park? Þá ertu á meðal þeirra milljóna sem spila tölvuleikinn Fort- nite. Ef ekki er hér allt sem þú vildir vita um Fortnite en þorðir ekki að spyrja um. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Konur eru líka áberandi í útliti Fortnite og geta bæði strákar og stelpur spilað sem kvenkyns fígúra. Mynd/Epic Games Leikurinn hefst á því að þátttak- endur hoppa út úr fljúgandi rútu á eyju og velur hver og einn sér lendingarstað. ’Hluti af vinsældum Fortnite er að leikurinner blanda af byggingaleik eins og Minecraftog skotleik eins og Call of Duty og stemninginminnir á Hunger Games.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.