Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.06.2018, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.06.2018, Blaðsíða 29
Í Færeyjum heyrast sögur um allt og hægt að hitta á sagnaþuli víða sem taka Íslendingum fagnandi. Og ekki er bara gam- an að rölta um svið sagna meistara Heinesens í Þórshöfn heldur er óhætt að mæla með því að lesa Færeyinga sögu í út- gáfu Fornritafélagsins og Fær- eyjar út úr þokunni, eftir Þor- grím Getsson, áður en lagt er upp í söguferð um eyjarnar. Færeyinga saga gerist á níu af eyjunum 18. Tvær kempur koma þar mest við sögu, breyskir menn en misvinsælir; Þrándur í Götu á Austurey nýt- ur hylli en Sigmundur Brestis- son frá Skúfey síður enda seldi hann eyjarnar undir erlent vald. Ferð um söguslóðir leiðir áhugasama meðal annars um Straumey, Austurey, Skúfey, Sandey, Svíney og Suðurey. Mynd Hans Paulis Olsens af Þrándi í Götu á heimaslóðum hans í Götu. Morgunblaðið/Einar Falur SÖGUSTAÐIR UM ALLAR EYJAR Með Færeyinga sögu botn-tónlistarhátíðinni sem haldin er árlega við höfnina, 30. júní nú í ár. Götum kringum höfnina er lokað og selt er inn á hátíðina þar sem fólk á öllum aldri fjölmennir þótt ungmenni séu áberandi og drykkjan hressileg – og tónlistin fjölbreytileg og fín. Óhætt er að mæla með hægu flakki milli eyjanna, með tilheyrandi sam- ræðum við heimamenn og skoðunar- ferðum og ekki einungis um þær fjöl- mennari, eins og Straumey, Austurey og Suðurey – þótt á þeim öllum séu fagrir staðir og áhugaverð þorp að skoða. Mikilvægt er að taka líka litlu ferjubátana út í fámenn byggðarlög eins og Skúfey, Svíney og Fugley. Það er eins og að stíga inn í annan tíma, hægan og góðan. Á öllum þessum stöð- um búa góðir grannar okkar sem taka Íslendingum svo vel að strax hlakkar maður til næstu Færeyjaferðar. Vinafundur við veitingastaðinn Sirkus í miðbæ Þórshafnar á mannmargri Voxbotn-tónlistarhátíðinni. Gargandi gítarsóló og rokkað feitt á sviði Voxbotn-hátíðarinnar í Þórshöfn. Kví fyrir börn uppi á landi og margar fyrir eldislaxa fyrir utan Hov á Suðurey. Húsin á Tinganesi, í hjarta Þórshafnar, eru full af minningum um liðna tíma. 3.6. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 Fyrir þig í Lyfju Voltaren Gel er bæði verkjastillandi og bólgueyðandi Vöðva eða liðverkir? Voltaren 11,6 mg/g hlaup. Inniheldur díklófenaktvíetýlamín. Staðbundnir bólgukvillar. Lesið vandlega Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplý g y y j up lýsingar á umbúðum og fylgiseðl si ar um l fið á www.serl f askra.is. 15% afslátturaf 100g og 150gVoltaren Gel

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.